Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1997, Qupperneq 27
• »13 I SMQd 1100
LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1997
27
tónlist
Borgarlíf með
J.J. Soul Band
Hljómsveitin J.J.
Soul Band hefur sent
frá sér nýja geislaplötu
er nefnist City Life eða
Borgarlif. Sveitin heitir
í höfuðið á söngvar-
anum og lagasmiðnum
J.J. Soul sem er breskr-
ar ættar en hefur búið
hérlendis í nokkur ár.
Það er Geimsteinn í
Keflavík sem gefur plöt-
una út en Skífan annast
dreifingu. Áform eru
uppi um dreifmgu er-
lendis en óráðið
hvenær af því verður,
að sögn Ingva Þórs
Kormákssonar, hljóm-
borðsleikara sveitar-
innar.
Á plötunni eru þrettán lög og eru
tólf þeirra eftir J.J. Soul og Ingva
Þór. Þrettánda lagið er hið fræga
„My Funny Valentine" eftir Ric-
hard Rogers og Lorenz Hart frá ár-
inu 1936 I útsetningu bassaleikara
sveitarinnar, Stefáns Ingólfssonar.
Auk fyrrnefndra eru í hljómsveit-
inni þeir Eðvarð Lárusson gítarleik-
ari og Steingrímur Óli Sigurðarson
trommuleikari.
Þess má geta að titillag plötunn-
ar, Borgarlíf, hlaut í sumar 1. verð-
laun í bandarískri lagakeppni, USA
Songwriting Competition, í flokki
ryþmablús- og djasslaga.
Platan var tekin upp í Stúdíói
FÍH, Stúdíói Stefi og Stúdfói Gný.
Hljóðblöndun, sem var í umsjón
Birgis Jóhanns Birgissonar, fór
fram í Stefi og Sýr-
landi. Eitt laganna var
tekið upp á tónleikum
sveitarinnar í Borgar-
leikhúsinu i janúar
1996.
J.J. Soul Band var
stofnuð fyrir fjórum
árum af þeim J.J. Soul
og Ingva Þór. Borgar-
líf er önnur plata
sveitarinnar, sú fyrri
kom út 1994 og nefnd-
ist Hungry for News,
eða Hungraðir í frétt-
ir.
„Ég man þegar við
vorum að byrja þá
vissum við ekki alveg
hvaða músík við ætl-
uðum að spila, smekkur okkar er
það margbreytilegur. Sumir hafa
kallað þetta blúsbræðing en við höf-
um frekar talað um bleiknefjablús.
Ég er nú svo skrítinn að mér finnst
þetta stundum vera popp - með
miklum útúrdúrum. Við erum með
blús, fonk, djass og jafnvel suðræna
sveiflu. Það mætti jafhvel tala um
einhvers konar poppbræðing. Þetta
er að minnsta kosti tónlist fyrir
þroskaða hlustendur. Mér finnst allt
of lítið gefið út fyrir þann hóp.
Plötuútgáfa hérlendis er eins og úr-
eldingarsjóður íslenskra dægurlaga.
Gömul lög, sem maður var orðinn
leiður á fyrir 25 árum, eru grafin
upp og maður fær leiða á þeim aft-
ur, bara í geislaplötu í staðinn fyrir
vínylplötu," sagði Ingvi Þór í stuttu
spjalli við helgarblaðið. -bjb
J.J. Soul Band.
HKMXKDf
Grcið§In$kilmálar vio allra hæfi.
Tt:í' P? ^ Skuldabréf til
I V,SA lE alltað36mán.
Hringdu og fáou
sendan bæklinfl.
stadgreitt
Höffintúni 1? *10S Rfivkinvík • Simi SS9-670Í) Z S57-S7S7 • Fmr SS7-6708
Þekking og reynsla
tvinnast saman
í gæðaframleiðslu
rúma og dýna frá
Ragnari Bjömssyni.
Þér líður vel
í rúmi frá
Ragnari Bjömssyni.
RAGNAR BJÖRNSSON ehf.
Dalshrauni 6 • 220 Hafaarfírði
Símar 555 0397 & 565 1740 • Fax 565 1740
Fimmtíuárí
fararbroddi.
vÐAGAÍA/
Jóladagatal
Happaþrennunnar.
þocJ eru spermandi
moíYnor fíximundan!