Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1997, Page 49
DV LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1997
Bjarni Guðjónsson og Jon Dahl Tomasson hjá Newcastle:
Einn og hálf-
ur íslendingur
Eins og flestum knattspymuá-
hugamönnum ætti að vera kunnugt
hefur Skagamaðurinn knái, Bjarni
Guðjónsson, verið í herbúðum stór-
liðs Newcastle í Englandi um
nokkurra mánaða skeið. Hins
vegar vita það færri að ís-
lenskt blóð rennur í æðum
annars leikmanns sem er á
mála hjá félaginu. Það er
hinn 21 árs gamli Jon
Dahl Tomasson. Nafnið
er mjög íslenskt en drengur-
inn engu að síður danskur lands-
liösmaður. Föðurafi hans er hins
vegar alíslenskur og ku hafa flutt til
Danmerkur komungur í byrjun ald-
arinnar.
Jon Dahl er kominn í byrjunarlið-
ið en Bjami hefur verið nálægt því
að komast á varamannabekkinn, er
oftast í 20 manna hópi. Helgarblaðið
sló á þráðinn til Bjama og heyröi í
honum hljóðið. ítrekaðar tilraunir
vom gerðar til að ná á Jon Dahl,
m.a. með aðstoð Bjama, en hann gaf
ekki færi á viðtali að þessu sinni.
Bjarni framtíðarmaður
Bjami gerði samning við
Newcastle til aldamóta, þegar hann
verður 21 árs. Forráöamenn liðsins
sjá mikið og gott framtíöarefhi í
honum og Kenny Dalglish og félag-
ar hafa ekki veriö að nota hann í
aðalliðinu í vetur.
„Okkur liður vel héma, lífið er
oröið allt einfaldara, við farin að
rata og ég að kunna á æfing-
amar,“ sagði Bjami en
unnusta hans, Gígja Dögg
Einarsdóttir, býr með hon-
um úti og stundar nám í
ensku. Fyrstu vikuna
varð Bjami reyndar aö
dvelja á hóteli en siðan
fengu þau leigt hús í
útjaðri borgarinnar.
Þau era nýlega búin að
kaupa hús á svipuðum slóð-
um sem þau fá afhent á næstunni.
Þangað flytja þau ásamt heimilis-
hundinum.
Keppt við stórkarla
Bjami og Jon Dahl eru ekki að
keppa við neina aukvisa um fram-
herjastöður í Newcastle. Fyrir em
kappar á borð við Alan Shearer, Ian
Rush og Faustino Asprilla. Bjami
sagðist bíða þolinmóður eftir sínu
tækifæri, hann hefði ekki reiknað
með að vinna sér sæti í aðalliðinu
fýrsta tímabilið. Auðvitað yrði gott
að komast inn á í einum og einum
leik en hann legði kapp á að standa
sig sem best á æfingum og með
varaliðinu. Til þessa hefur Bjami
komist lengst í 18 manna hóp. Hann
hefúr hins vegar skorað nokkur
mörk með varaliðinu, sjaldnast sem
fremsti maður.
íslenski Daninn, Jon Dahl Tomasson, fagnar einu markanna sem hann hef-
ur skoraö fyrir Newcastle. Það síöasta geröi hann í deildarbikarleik gegn
Derby County á dögunum, sjálft sigurmarkiö.
Bjarni á æfingu meö aöalkörlunum ( Newcastle og fyrrum Liverpool-hetjunum, framkvæmdastjóranum Kenny
Dalglish og aöstoöarmanni hans, Terry McDermott.
Sumir ofdekraðir
„Þetta nálgast, hægt og rólega. Ég
læri rosalega mikið á að æfa með
þessum körlum og horfa á þá. Þeir
em auðvitaö mjög ólíkar persónur.
Sumir eru eins og ofdekraðir krakk-
ar sem geta gert hvað sem þeir vilja.
Þeim er sama þó þeir skemmi eitt-
hvað, það verður bara keypt nýtt í
staðinn. Annars er mórallinn góður
í hópnum, oftast mjög létt yfir
mönnum. Þegar Alan Shearer fór að
mæta aftur á æfingar eftir meiðslin
tóku nokkrir sig til og þöktu nýja
Jagúarinn hans með grasi og torfi.
Hann svaraði fyrir sig með því að
dýfa handklæði í drullupoll og
strjúka því yfir bfla sömu leik-
manna,“ sagði Bjami en tekið skal
fram að hann tók ekki þátt í þessum
uppátækjum!
Hann sagði þá Jon Dahl ekki vera
í miklu sambandi fyrir utan æfing-
ar, hann væri þó búinn að segja sér
frá íslenska afanum. Bjami sagði
samgang leikmanna vera yfirleitt
lítinn fyrir utan þá sem væra búnir
að vera lengst hjá félaginu.
Jon Dahl er fæddur í Kaup-
mannahöfn 29. ágúst 1976. Hann hef-
ur leikið nokkra landsleiki fyrir
Dani á þessu ári, þrátt fyrir ungan
aldur. Hann var keyptur í sumar til
Newcastle frá Heerenveen í
Hoflandi. Þangað fór hann í at-
vinnumennskuna aðeins 17 ára
gamall. Á heimasíðu Newcastle
kemur fram að hann hafi verið
keyptur fyrir litlar 260 milljónir
króna og talað um viðskipti s<£?>
kjarakaup. Þannig að eitthvað virð-
ist vera í „okkar mann“ spunnið.
-bjb
IÍÁETAR STaDREYITDIR UM EITURIYFJAMAFÍUITA
jPXIMP wnlLP
EITURLYFJAKOLKRABBANS
ALIÐ VALD EITURLYFJAKOLKRABBANS
r ekki skáldsaga heldur bök sem kafar
ndlr yflrborö fikniefnaheimsins og blrtlr
kkur naktar staöreyndir um eiturlyfla-
ig fjármagnsbrask um allan helm.
óhannes Björn hefur áöur gefiö út hina
imtöluöu bók, Fallö vald, sem flallaöi
im vopnabrask og spillingu í álþjóölegum
jármálaheimi.
luti af andvirði bókarinnar rennur til
amtakanna Vímulausrar æsku.
akolkra
Armar eltu
eru alls
d hans er, hva
munlr eru í splllnu og hvernlg
mlnn f hendi sér.
eru í...
x
símaskránni