Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1997, Side 72
-3
2 LD
<
S
</> o
hLO
s 1X5
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
2 k w. v
-2C
á sunnudag og mánudag
Veðrið á morgun
og mánudag:
Víða létt-
skýjað
Á morgun verður austan- og
norðaustangola eða kaldi. Dálítil
él við norðaustur- og austur-
ströndina en annars staðar úr-
komulaust og víða léttskýjað.
Veðrið í dag er á bls. 73.
Magnús Gunnarsson, stjórnarfor-
maður Þróunarsjóðs, kemur til
fundar í gær. DV-mynd S
Þróunarsjóður:
, Engin
ákvörðun um
Norðurtanga
„Við ákváðum að gefa okkur tíma
til að skoða alla þætti málsins og
reyna að finna ásættanlega lausn
fyrir alla,“ sagði Hinrik Greipsson,
framkvæmdastjóri Þróunarsjóðs
sjávarútvegisins, að loknum fundi
stjórnar sjóðsins í gær. Þar var
rædd sú sérstaka staða sem sjóður-
■ ’*3hm er kominn í eftir að bæjarstjóm
Isafjarðar hætti við kaup á húsa-
kosti Norðurtangans. Samkvæmt
lögum er Þróunarsjóði bannað að
kaupa eignir nema fyrir liggi form-
legt kauptilboð frá öðrum aðila.
Þær reglur voru brotnar við kaup
sjóðsins á húsakosti Norðurtangans
af Básafelli hf. Sjóðurinn situr nú
uppi með eign sem kostaði hann
85,5 milljónir króna, nema kaupun-
um verði rift.
„Við munum ræða allar leiðir og
vonandi taka ákvörðun i næstu
viku,“ sagði Hinrik við DV í gær-
kvöld. -Sól/-sv
.. ': ;
V'-t' ' . , - ' f '
Tvcfaldur
i. vinnirígur
S k&SiÚ
Hnjótsmálið:
Bretar funda
- sóst eftir niðurstöðu
Fundur með fulltrúum bæjaryfir-
valda í Grimsby, Hull, Fleetwood og
Aberdeen er fyrirhugaður i næstu
viku þar sem farið verður yfir að-
draganda og stöðu mála um hvar
reisa skuli minnismerki um breska
sjómenn sem drukknað hafa við ís-
landsstrendur. Deilur hafa verið
verið vegna ákvörðuncir meirihluta
bæjarstjómar Vesturbyggðar um að
minnisvarðinn skuli reistur á Pat-
reksfirði en ekki við minjasafnið á
Hnjóti. Bresk bæjaryfirvöld sendu
^ nú í vikunni frá sér yfirlýsingu um
Vv~S?ð farið skuli að vilja bæjaryfir-
valda í þessu máli. -Sól.
Kvótabrask:
Milljarða-
velta
í
Talið er líklegt að veltan í kvóta-
leigu sé á bilinu 2,5 til 3 milljarðar
króna á ári. í úttekt DV á málinu
kemur í ljós að engin leið er að
rekja þessi viðskipti til enda. Sam-
kvæmt tölum frá Fiskistofu eru
kvótar heilu fiskistofnanna færðir á
milli skipa. Þannig er megnið af
skarkolakvótanum millifært sem og
grálúðukvótinn. Stór hluti þessara
viðskipta er vegna skipta á veiði-
heimildum þar sem engar greiðslur
koma til. Hluti af millifærslunum er
kvótabrask þar sem sægreifar hafa
trygga afkomu af þvi að selja sjó-
sóknurum aðgang að sameign þjóð-
arinnar. Hóflega áætlað er sá neð-
anjarðarmarkaður með árlega veltu
rétt innan við 3 milljarða króna. Sjá
fréttaljós á bls. 20
í
V-Húnavatnssýsla:
Kosið um
sameiningu
DV, Akureyri:
Ibúar i öllum sveitarfélögunum í
V-Húnavatnssýslu ganga að kjör-
borðinu í dag og greiða atkvæði um
það hvort sameina skuli öll sveitar-
félögin sem eru Hvammstanga-
hreppur, Staðarhreppur, Fremri-
Torfustaðahreppur, Ytri-Torfustaða-
hreppur, Kirkjuhvammshreppur,
Þverárhreppur og Þorleifshóls-
hreppur.
Guðmundur Guðmundsson, sveit-
arstjóri á Hvammstanga, sem setið
hefur í kynningarnefnd og hefur
farið á fundi í öllum sveitarfélögun-
um segist bjartsýnn á að sameining-
in verði samþykkt í öllum sveitarfé-
lögunum. Hann segir að sér virðist
sem vindar hafi verið að snúast til
þeirrar áttar að undanfornu en fyr-
ir hálfum mánuði teldi hann að
sameining hefði verið samþykkt í 5
sveitarfélaganna en felld i tveimur
þeirra. Kjörfundur í dag hefst kl. 12
og talning hefst kl. 22 í kvöld. -gk
A-flokkar á Húsavík:
Ræða sameig-
inlegt framboð
Alþýðubandalagsmenn á Húsavik
hafa ritað cdþýðuflokksmönnum
bréf þar sem óskað er eftir viðræð-
um um sameiginlegt framboð til
bæjarstjómar. Samkvæmt heimild-
um DV hafa kratar fallist á viðræð-
ur og verður fyrsti fundur á morg-
un. -rt
HVA0 ER EITT
FRYSTIHÚS Á
MILLI VINA?
Skólabömum í Reykjavík var í gær gefinn kostur á að kynna sér fiskvinnslu Granda hf. Það er árviss viðburður að
börn þyggi boð forsvarsmanna fyrirtækisins og komist þannig í snertingu við aðalatvinnuveg þjóðarinnar. Hér má
sjá kátan nemanda sem hefur komið sér fyrir í gini hákarls. DV-mynd E.ÓI.
Uppnámið í bæjarmálum ísfirðinga:
Formaður jafnaðar-
manna sagði af sér
Jóna Símonía Bjarnadóttir
sagði af sér formennsku í Jafnað-
armannafélagi ísafjarðarbæjar á
stjómarfundi félagsins í gærkvöld.
Jafnframt sagði hún af sér sem
fulltrúi flokksins í fræðslunefnd
og sem einn af fjórum fulltrúum
hans í viðræðum um sameiginlegt
framboð í sveitarsjómarkosning-
unum í vor.
„Með þessu læt ég öllum mínum
pólitísku afskiptum af bæjarmál-
um lokið,“ sagði Jóna Símonía.
Jóna átti sæti i vinnuhóp um
húsnæðismál Grunnskólans á ísa-
firði og studdi niðurstöðu ráð-
gjafarfyrirtækisins VSÓ um að
kaup bæjarins á Norðurtanga
væra hagkvæmasti kosturinn fyr-
ir bæinn. Sigurður R. Ólafsson,
bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins, fer
hins vegar fyrir nýjum meirihluta
sem vill aðra lausn á húsakosti
grunnskólans.
Jóna segir að hún vilji ekki
kalla ágreining þeirra Sigurðar
trúnaðarbrest en að hún telji að
þau geti ekki starfað áfram saman
í sátt vegna þess hve stórt þetta
mál sé. Með afsögn sinni vilji hún
afstýra frekari illindum innan
flokksins og að henni finnist eðli-
legt að víkja þar sem Sigurður sé
hinn kjörni fúlltrúi Alþýðuflokks í
bæjarstjórn.
Nýr meirihluti í dag
Bæjarfulltrúar Alþýðuflokks,
Sjálfstæðisflokks og F-lista óháðra
munu halda fund í dag og mynda
þar með nýjan meirihluta í bæjar-
stjóm ísafjarðarbæjar. Jónas
Ólafsson, fulltrúi sjálfstæðis-
manna, segir þann hóp sem mynd-
aði meirihluta gegn kaupum á
Norðurtanganum sem lausn á hús-
næðisvanda grannskólans verða
að axla þá ábyrgð sem aðrir full-
trúar Sjálfstæðisflokks hefðu varp-
að á hann í fyrrakvöld með yflr-
lýsingu sinni.
„Það er ekki hægt annað en að
hafa stjórn á bænurn," sagði Jónas.
Að öllum líkindum verður tekin
ákvörðun um hver verður nýr
bæjarstjóri á fundinum i dag.
Kristján Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri ísafjarðarbæjar, hefur óskað
eftir því að láta af störfum eftir
næsta fund bæjarstjómar sem
verður að öllum líkindum haldinn
þann 4. desember. Kristján segist
ekki vita hvað taki við hjá sér en
hann hefur verið stjómarformað-
ur Samherja frá því í sumar, sam-
hliða bæjarstjórastarfmu. -Sól.
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555