Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2001, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2001, Side 8
8 LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2001 Útlönd DV Osama bin Laden Áreiöanlegar heimildir fyrir þvi aö honum hafi veriö smyglaö til Pakistans. Bin Laden smygl- aö til Pakistans? Abdullah Tawheedi, háttsettur full- trúi í afgönsku leyniþjónustunni, sagðist í gær hafa fyrir því áreiðanleg- ar heimildir að Osama bin Laden hefði borgaö Haji Zaman, þekktum stríðsforingja, stórfé fyrir að smygla sér inn í Pakistan. Zaman mun hafa tekið þátt í bardögum gegn al-Qaeda liðum bin Ladens í Tora Bora-fjöllum en ekki staðist mátiö þegar honum var boðið stórfé fyrir að koma hryðju- verkaforingjanum óhultum til stuðn- ingsmanna hans innan landamæra Pakistans. „Þegar Zaman var með lið sitt í Tora Bora, þar sem talið var að bin Laden hefðist við, fór hann fram á vopnahlé. Ég tel að hann hafi ætlað að nota sér það til að læðast meö bin Laden í burtu," sagði Tawheedi. Það var einmitt umræddur Zaman sem lýsti yfir sigrinum gegn al-Qaeda-liðum i Tora Bora eftir að þeir höfðu verið umkringdir í dalverpi í fjöllunum. Frá slysstaö í New York. Sex létust í slysi í New York Sex manns létu lífið og að minnsta kosti átta aðrir slösuðust þegar 77 ára gamall sendibílstjóri ók bíl sínum upp á gangstétt fyrir framan Macy's stórverslunina við Herald-torg í miðborg New York í gær. Maðurinn mun hafa lagt bll sínum ólöglega við 34. stræti en þeg- ar lögregla skipaöi honum að færa bílinn ók hann hratt af stað en lenti þá upp á gangstéttinni með áður- nefndum afleiðingum. Eftir að hafa ekið á fólkið hélt maðurinn áfram ferö sinni út á göt- unu en lenti þá á strætisvagni sem átti leið hjá. Af þeim sex sem létust munu fjórir hafa látist samstundis en hinir tveir á sjúkrahúsi, þar af fimmtán ára gamall drengur. Búist við neyðarástandi á skógareldasvæðinu í Ástralíu um helgina: Sérsveit stofnuð til aö stöðva brennuvarga Hundruð slökkviliðsmanna glíma nú við mikla skógarelda sem geisa á rúmlega hundrað stöðum i næsta nágrenni við ólympíuborgina Sydn- ey í Nýja Suður-Wales í Ástralíu. Eldarnir hafa logað í nærri viku og lítur illa út með veður um helgina en þá er spáð hlýnandi veöri og auknum vindi sem gæti breitt eldana frekar út og nær borginni. Vegna versnandi veðurútlits streyma nú slökkviliðsbílar og tæki frá öðrum fylkjum Ástralíu í löng- um röðum til Nýja Suður-Wales en flestir koma þó slökkviliðsmennirn- ir fljúgandi á staðinn. Vonast yfir- völd í fylkinu til að þeir verði orðn- ir 15 þúsund um helgina en þá er búist viö að algjört neyðarástand geti skapast ef ekki tekst að hefta úbreiðslu eldanna. Að sögn Phils Koperbergs, yfir- manns slökkviliðsins í fylkinu, á hann von á fjórum mjög erfiðum dögum fram yfir helgina. „Á meðan úbreiðsla eldsins er svona mikil þá verður illa ráðið við slökkvistarfið og ef okkur tekst ekki að ná verulega tökum á eldinum í dag þá lýst mér Brunarústir John Howard, forsætisráöherra Ástr- alíu, skoöar hér brunarústir í næsta nágrenni Sydney. ekki á blikuna á morgun þegar fer að blása,“ sagði Koperberg í viðtali við fljömiðla í gærmorgun. Þá voru liðs- menn hans að berjast við tímann en í dag var búist við 40 stiga sólarhita á svæðinu. í gær höfðu að minnsta kosti 5000 manns þurft að yfirgefa heimili sín vegna hættuástands og vitað var um að minnsta kosti 50 heimili sem höfðu orðið eldinum að bráð. Þegar hafa þúsundir hektara skóglendis og ræktarlands fuðrað upp og er talið að vísvitandi hafi verið kveikt í á sumun stöðum. í fyrradag voru til dæmis þrír fimmt- án ára gamlir brennuvargar staðnir að verki og handteknir og í gær var einn nítján ára gómaður við íkveikju. Fleiri liggja undir grun og hafa yfirvöld nú stofnað sérsveit ör- yggisvarða sem ætlað er að hafa hendur í hári brennuvarga. Að sögn ástralskra yfirvalda er ástandið orðið ískyggilegt og verið að skoöa möguleikana á aðstoð er- lendis frá. Munu tvær bandariskar slökkviliðssveitir þegar hafa boðið fram aðstoð sína. Þá munu samtök slökkviliðsmanna hafa lagt hart að yfirvöldum að fá aðstoð Kanada- manna sem hafa yfir að ráða öflug- um vatnssprengjum sem varpað er úr flugvélum. Evran kynnt í Evrópusambandslöndunum Þær Monique Pochanke og Susan Schulze, afgreiöslustúlkur í gjafavöruverslun i Berlín, eru meira en tilbúnar til aö taka viö evrunni þegar hún verður tekinn í gagniö í Evróþusambandslöndunum tólf um áramótin. Þessar mjög svo stóru þlastevrur, sem þær halda á, eru til sölu í búöinni hjá þeim og rjúka út eins og heitar lummur, aö þeirra sögn. Þrír hlutu dauðadóm Hæstiréttur í Malasíu dæmdi í gær þrjá múslímska öfga- menn til dauða með hengingu og sextán aðra til ævilangrar fang- elsisvistar fyrir tilraun til vopn- aðrar byltingar í landinu. Mennirnir eru allir meðlimir í al-Maunah-hreyf- ingunni sem hugðist steypa ríkis- stjóm landsins af stóli meö vopna- valdi og stofna í staðinn íslamskt ríki. Þeir sem hlutu dauðadóminn voru forsprakkar hópsins en upp komst um áform þeirra eftir að þeir höfðu brot- ist inn í tvær skotfærageymslur hers- ins og síðan tekið tvo gísla sem þeir myrtu. Mennirnir trúðu því að áform þeirra væru köllun sem gerði þá ósnertanlega. Talibanar vistaðir á Kúbu Bandarísk yfirvöld hafa ákveðið að þeir talibanar og al-Qaeda-liðar sem teknir hafa verið höndum í Afganist- an verði fluttir til Guantanamo-her- stöðvarinnar á Kúbu og vistaðir þar þar til yfirvöld í Pentagon hafa ákveð- ið hvort þeir verða leiddir fyrir her- rétt eða ekki. „Herstöðin á Kúbu er ekki versti staðurinn fyrir þá,“ sagði Donald Rumsfeld, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, og bætti við að ekkert hefði enn verið ákveðið um ör- lög þeirra þó að Bush hafi gefið grænt ljós á að réttað yrði yfir erlendum borgurum fyrir herrétti. Ben-Eliezer sigraði Binyamin Ben- Eliezer, varnar- málaráðherra ísra- els, var á miðviku- daginn kjörinn nýr formaður ísraelska V erkamannaflokks- ins eftir harða bar- áttu við Abraham Burg, forseta ísra- elska þingsins. Tvær umferðir þurfti til að útkljá hver tæki við for- mannshlutverkinu í flokknum en sú fyrri, sem fram fór í september, lauk með naumum sigri Burgs, en vegna deilna sem upp komu um framkvæmd kosninganna var ákveðið að kjósa aftur. OPEC dregur saman Oliuráðherrar OPEC-ríkjanna sam- þykktu á fundi sínum í Kaíró í gær að draga úr sameiginlegri olíufram- leiðslu sinni um 1,5 milljónir tunna á dag frá og með áramótum í viðleitni sinni til að hækka heimsmarkaðsverð sem verið hefur í lágmarki undan- farna mánuði eða frá hryðjuverka- árásunum á Bandaríkin. Þetta þýðir um 6% samdrátt í framleiðslu og er ætlunin að endurskoða málið eftir sex mánuði. Þetta hefur strax haft áhrif og hækkaði tunnan til dæmis um 43 sent á markaöi í London i gær, eða í 20,77 dollara tunnan. Dóttir Milosevics fyrir rétt Marija Milosevic, 32 ára dóttir Slobodans Milosevics, fyrrum forseta Júgóslavíu, kom í gær fyrir rétt í Belgrad, ákærð fyrir að hafa skotið á opinbera starfsmenn úr skammbyssu þegar þeir komu á heimili fjölskyld- unnar í april sl. til aö fá fóður hennar til að gefast upp fyrir lögreglu. Enginn meiddist í skothríðinni en ef Marija reynist sek getur hún átt von á allt að átta ára fangelsisdómi. ■X' Gleðilegt nýtt dr! Þökkum viðskiptin d liðnu dri. ® UTSALAN * BYRJARÍDAGKL. 10 * Yfirhafnir í úrvali ^Oo 'o Á<#HW5IÐ Mörkinni 6, sími 588 5518

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.