Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2001, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2001
27
Helgarblað
I>V
Þefdýr ársins
Þórarinn V.
Þórarinsson er
þefdýr ársins.
Hann komst inn
á gafl í húsa-
kynnum Lands-
símans og áður
en nokkurn
varði var allt far-
ið aö lykta þar
svo af einkavæðingu að andrúms-
loftið var orðið óbærilegt. Það end-
aði með því að Friðrik húsvörður
Pálsson varð aö hreinsa út og láta
Tóta skunk fara.
Steinbítur
ársins
Steinbítur árs-
ins er Árni
Johnsen. Hann
beit í stein. Það
var kantsteinn.
Hvolpur ársins
Hvolpur árs-
ins er Svala
Björgvinsdóttir
söngkona.
Hvolpar eru
ósköp sætir með-
an þeir eru litlir
en þeir verða
stórir,
spangólandi og
hárleysandi hundar þegar þeir
verða stórir.
Grís ársins
Grís ársins er verðbréfasali. Þeir
voru fjölmargir eins og grísir oftast
eru en nú er stutt í sláturtíð og litlu
grísirnir að komast í sláturstærð
enda fer þeim óðum fækkandi.
Útigangshestur ársins
Útigangshross
ársins er Lalli
Johns. Okkur
hefur verið sýnt
hve dapurleg ör-
lög hans eru og
við höfum djúpa
samúð með þess-
ari lubbalegu
skepnu sem lifir
á vergangi og snöpum. En það þýð-
ir ekki að við viljum taka hann
heim í hús til okkar.
Trjámaur
ársins
Termíti, eða
trjámaur ársins
er Árni Johnsen.
Ef hann sá ein-
hvers staðar nýti-
lega spýtu þá hor-
aði hann sig á kaf
og lagði timbrið
undir sig til eigin nota. En svo sáu
einhverjir holumar og fóru að rann-
saka málið.
Húsamús ársins
Húsamús árs-
ins er ótvírætt
Sigurður Gísli
Pálmason í Þyrp-
ingu sem vill
greinilega eiga
sem flest hús. Ef
hann sá einhvers
staðar autt hús til
sölu á árinu þá
keypti hann það þegar í stað. Sigurð-
ur er jurtaæta eins og húsamúsin.
Griðungur ársins
Griðungur árs-
ins er Guðni
Ágústsson land-
búnaðarráð-
herra. Hann hef-
ur mjög mikinn
áhuga á kúm og
sýnir þeim jafn-
vel blíðuhót og ef
einhver fyrir-
staða verður á vegi hans þá setur
hann undir sig tignarlegan hausinn
og bölsótast uns henni er rutt úr
vegi. Hann er best geymdur í sveit-
inni.
Þröstur ársins
Þröstur ársins
er Hallgrímur
Helgason rithöf-
undur. Hann á
það sameiginlegt
með þrestinum
að vera afskap-
lega skáldlegiir
fugl. Hann situr í
runnanum við
svefnherbergisglugga þjóðarinnar
og syngur. Mörgum finnst söngur-
inn fagur en öðrum finnst hann ein-
tóna og langdreginn og vilja hleypa
kettinum út.
Rjúpur ársins
Rjúpur ársins eru kjósendur Sam-
fylkingarinnar. Það eru undarlegar
sveiflur í stofninum og enginn veit
alveg af hverju þær stafa. Rjúpun-
um fjölgar og fækkar og veiðimenn
standa ráðþrota og heilu heimilin
svelta.
Grábjörn ársins
Grábjörn árs-
ins er Davíð
Oddsson. Hann
er stór, grimmur,
undarlegur í
hárafari og er
efstur í fæðukeðj-
unni í skóginum.
Hann liggur í
dvala tímum
saman en þegar ró hans er raskað
ryðst hann úrillur fram úr híði sínu
og slær frá sér með hramminum.
einstakur í sinni
röð, sumir telja
hann skrímsli
aðrir meinlausa
furðuskepnu.
Þegar dýrið gólar
undan vondum
veðrum leggja
samt flestir við
hlustir. Hannes er sannanlega til.
Krókódíll
ársins
Krókódíll árs-
ins er Dorrit
Mouissaeff sem
er ættuð sunnan
úr heitum og dul-
arfullum löndum
og eins og krókó-
díllinn leggur flnum dömum til hrá-
efni í skó og töskur þá er Dorrit á
skyldum slóðum. Hún er sjaldséð
furðudýr sem margir efast um að
muni þrífast í íslensku loftslagi.
Mörður ársins
Mörður ársins
er auðvitað
Mörður Árnason.
Það kemur ein-
faldlega enginn
annar til greina.
Sebrahestur ársins
Sebrahestur ársins er Ólafur F.
Magnússon læknir en það kom í ljós
á árinu að það er ekki hægt að
temja hann frekar en sebrahestinn.
Þess vegna var
hann látinn fara
úr hesthúsinu.
Að lokum vill
Helgarblað DV
óska lesendum
sinum nær og
flær til sjávar og
sveita árs og friðar á nýju ári með
þökk fyrir samfylgdina. Megi nýtt
ár verða fjörugt og fréttnæmt með
litríku dýralifi til lands og sjávar.
PÁÁ/-sm/-þhs
Jólunum fylgir mikið pappírsflóð, pappakassar, pokar og aðrar
umbúðir.
Katanesdýr ársins
Katanesdýr ársins er Hannes
Hólmsteinn Gissurarson. Hann er
Með dyggri aðstoð okkar allra er hægt að sjá um að allur pappír
fari nú í endurvinnslustöðvar, en ekki í tunnurnar með
heimilissorpinu.
HALL
GERiHDR
Hallgeröur er sannkölluö silfurvalkyrja.
Breiöir silfurhalar skjótast upp og springa í
silfurpálma. Þaö veröur engin svikinn af þessari.
FIUGEUJAMARKADIR
BJORGUKAHSVEItANKA
Þyngd: 5,75 kg Timi: 55 sek
Pappír og pappaumbúðir taka mikið pláss. Tunnurnar fyllast
fljótt ef gjafapappírinn og kassarnir fara þangað, svo ekki sé
talað um ef umbúðirnar eru ekki brotnar saman.
Verum því dugleg að hjálpast að, fyllum ekki sorptunnur af
pappakössum og gjafapappír.
Verum væn - og umhverfisvæn
- notum endurvinnsluna.