Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2001, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2001, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2001 Helgarblað Barn í lausaleik Bandaríski blökkumanna- leiötoginn séra Jesse Jackson gekkst við því snemma árs að hafa eignast barn í lausaleik með ástkonu sinni til margra ára. Jackson sagði að sjálfsagt hefðu margir vina hans og stuðnings- manna orðið fyrir vonbrigðum. „Ég bið þá um fyrirgefningu og vona að þeir biðji fyrir mér,“ sagði Jackson við það tækifæri. Það var slúðurblaðið National Enquirer sem greindi frá framhjá- haldi Jacksons með Karin Stanford, sem um árabil var aðstoðarkona hans. Þau kynntust um miðjan síð- asta áratug, þegar hún ritaði bók um Jackson og alþjóölegt starf hans. Kaldhæðni örlaganna hagaði þvi svo að þegar Hillary Clinton forseta- frú og Chelsea dóttir hennar þurftu á huggun að halda vegna framhjá- halds Bills Clintons leituðu þær einmitt til Jesses Jacksons. Grænmetisæði Sænskir bænd- ur lýstu í upphafi ársins yfir áhyggjum sinum af mataræði Görans Perssons forsætisráðherra, þá sérstaklega auknum áhuga hans á grænmet- isfæði. Bændur töldu að með orðum sínum gæti forsætisráðherrann haft mikil áhrif á matarvenjur sænsks almennings. Persson hafði í nokkra daga á undan geflð í skyn í viðtölum við fjölmiðla að ástæða væri til að íhuga sitt lítið af hverju við fram- leiöslu og neyslu á kjöti. Þá hafði forsætisráðherrann sagt að neysla á grænmeti í stað kjöts væru heil- brigð viðbrögð við því að eitthvað væri ekki eins og það ætti að vera í samfélaginu. Einstök saga Það þótti ganga kraftaverki næst að þrettán mánaða gamalt stúlkubarn í borginni Edmonton í Kanada skyldi hafa lifað af margra klukkustunda vist úti i fimbulkulda á bleiunni einni fata. Hjarta stúlkunnar var reyndar hætt að slá þegar hún fannst en fór aftur i gang eftir að komið var með hana á sjúkrahús. Líkamshiti stúlkunnar litlu var ekki nema sextán gráður. Stúlkan og móðir hennar ætluðu að gista hjá vinafólki sínu en einhvem veginn tókst þeirri stuttu að skríða út. Tuttugu og fjögurra stiga frost var í Edmonton þetta kvöld í febrúar. Læknar telja að kuldinn úti og sihæð stúlkunnar hafði orðið til þess að bjarga henni frá því að fá heilaskaða vegna hjartastoppsins. Drykkjubætur Kanada- menn fengu ærna ástæðu til að hneyksl- ast á síðasta vetri þegar dómari úrskurðaði að árekstur sem drukkin kona átti sök á væri at- vinnurekanda hennar að hluta til að kenna. Konunni voru dæmdar sautján milljónir króna í skaðabæt- ur vegna meiðsla sem hún hlaut i slysinu. Málavextir eru þeir að kon- an fékk sér einum of marga drykki í jólaveislu 1994 og á krá þar á eftir. Dómarinn taldi að yfirmaður kon- unnar hefði átt að koma í veg fyrir að hún settist undir stýri. !OV Faömar hetjurnar sínar Fulloröin kona tekur utan um hetjurnar sínar, tvo slökkviliösmenn, viö minningarathöfn um þá sem týndu lífi í turnunum i World Trade Center þegar hryöju- verkamenn flugu tveimur farþegaþotum á þá. Rúmlega þrjú þúsund manns létust í árásunum á turnana tvo 11. seþtember síöastliöinn. Meöal hinna látnu voru margir slökkviliðsmenn sem þustu á vettvang eftir árásirnar en uröu svo undir þegar turnarnir hrundu til grunna. Þriðjudagurinn 11. september 2001: Ársins sem nú er að líða verður fyrst og fremst minnst fyrir þennan dag, dag sem margir telja að hafi breytt öllu; tilfmningum okkar, afstöðu okk- ar til annarra menningarheima og pólitískum og hernaðarlegum banda- lögum víða um heim. Fólk um allan heim var sem lamað af skelfmgu og hryllingi þegar það horfði á myndir í sjónvarpi þennan dag af því þegar tveimur bandarískum farþegaþotum, sem hryðjuverkamenn höfðu rænt skömmu áður, var flogið á turnana tvo í World Trade Center á Manhattan í New York. Klukkan var að verða niu að morgni og þúsundir manna komnar inn í turnana og aðrar byggingar World Trade Center þegar tveimur þotum var flogið á turnana með fárra mínútna millibili og þeir breyttust í logandi víti áður en þeir hrundu svo til grunna. Snerust til varnar Um svipað leyti var þriðju þotunni flogið á Pentagon, höfuðstöövar banda- ríska landvarnaráðuneytisins, í út- jaðri Washington D.C. og olli hún tals- verðum skemmdum og nokkru mann- tóni. Fjórðu farþegaþotunni var rænt þennan sama þriðjudagsmorgun en hún komst aldrei á áfangastað sem talið er að hafi átt að vera þinghúsið i Washington. Farþegar í þeirri vél snerust til vamar og lauk viðureign þeirra við flugræningjana með þvi að vélin hrapaði niður í skóglendi skammt frá borginni Pittsburgh í Pennsylvaníu. Um tíma var talið að hátt í sjö þús- und manns hefðu týnt lífi í þessu mesta hryðjuverki sem framið hefur samtakanna. Talibanar hörfuöu frá höfuðborginni Kabúl þegar komið var fram undir miðjan nóvember en það var ekki fyrr en í desember að síðasta vígi þeirra, borgin Kandahar í suður- hluta landsins, féll í hendur andstæð- ingum þeirra. Stökkt á flótta Um miðjan desember var síðustu liðsmönnum al-Qaeda, sem héldu til i fjalllendi í austurhluta Afganistans, stökkt á flótta en hvorki fannst tangur né tetur af Osama bin Laden eða múll- anum Ómari, andlegum leiðtoga tali- banahreyfingarinnar. Ekki var þó annað vitað en að þeir væru á lifl. Andstæðingar talibanastjórnarinn- ar, með Norðurbandalagið í broddi fylkingar, settust niður á afskekktu hóteli í Þýskalandi undir lok nóvem- ber og rúmlega viku síðar skrifuðu þeir undir samkomulag um nýja bráðabirgðastjóm í landinu til næstu sex mánaða. Sú stjóm tók formlega við völdum skömmu fyrir jól. í forsæti hennar er pastúnaleiðtoginn Hamid Karzai sem hafði setið í stjórn lands- ins fyrir tíð talibana. íbúar Kabúl og annarra borga í Afganistan fögnuðu mjög ósigri tali- bana sem höfðu stjómað með harðri hendi í fimm ár. Margir karlar rökuðu af sér skeggið sem þeim var gert skylt að bera, konur tóku ofan blæjumar sem huldu andlit þeirra og kröfðust aukinna réttinda og sendar afganska sjónvarpsins voru aftur gangsettir eft- ir nokkurra ára þögn. Standa með forsetanum Bandarískur almenningur hefur staðið meö forseta sinum, George W. Bush, í hernaðinum í Afganistan. Og DV-MYND ÞÖK Flóttamenn frá Afganistan Afganskir flóttamenn koma til landamæranna aö Pakistan meö aleigur sínar á asna. Mikill fjöldi Afgana lagöi á flótta undan talibönum og loftárásum Bandarikjamanna og fóru flestir til landamæranna aö Pakistan. verið á bandarískri grandu. Sú tala hefur hins vegar stöðugt verið að lækka og nú er talið aö látnir og þeir sem saknað er eftir árásirnar séu rétt rúmlega þrú þúsund. Böndin beindust fljótlega að sádi-ar- abíska hryðjuverkamanninum Osama bin Laden og al-Qaeda hryðjuverka- sveitum hans sem höfðu hreiðrað um sig í Afganistan í skjóli talibanastjóm- arinnar. I desember gerðu bandarísk stjórnvöld svo opinbera myndbands- upptöku sem þau segja að sanni, svo ekki verði um villst, sekt bin Ladens i þessu máli. Þykir vænt um dauðann í öðrum upptökum sem gerðar voru eftir 11. september þrætti bin Laden aldrei almennilega fyrir að hafa staðiö að árásunum en hótaði þess í stað að fleiri væra í vændum. Bin Laden var eins og spámaður í þessum upptökum og í desember var ekki annað að sjá en að einn spádóm- ur hans væri um það bO að rætast. „Það er hægt að sprengja þennan stað í loft upp,“ sagði hann eitt sinn við blaðamann sem tók viðtal við hann í helli hans í Afganistan. „Og við verðum drepnir. Okkur þykir vænt um dauðann. Bandaríkjunum þykir vænt um lifið. Sá er munurinn á okk- ur.“ Bandaríkjamenn hófu svo loftárásir á Afganistan í október I þeim tilgangi að hrekja talibana frá völdum og upp- ræta starfsemi al-Qaeda hryðjuverka- 2001 reyndist einstakt fréttaár í útlöndum: í skugga hryðjuverka
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.