Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2001, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2001, Side 17
LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2001 17 DV Helgarblað Áramótaheit: Meiri óhamingja eða fullkomnun? Áramótaheitin leiöa í flestum tilfellum einungis til óyndis. Best er aö láta þau aiveg eiga sig. Oft er talað um að menn stígi á stokk þegar þeir eru að stíga á svið eða troða einhvers staðar upp. Það upplýsist hér með að þessi notkun orðtaksins að stíga á stokk er alröng. Fólk stígur ekki á stokk nema til þess að strengja einhvers heit eða lýsa einhverju hátíðlega yfir. Líkingin er sennilega dregin af því að er menn kveðja sér hljóðs standa þeir upp og taka sér gjaman stöðu á einhverri upphækkun. í málinu hefur síðan fest sú venja að þegar menn vilja strengja einhvers heit, þá er talað um að þeir stigi á stokk. Og það gera menn um ára- mót. Keppst um feitustu bitana Áramótaheit eru sannanlega fylgi- fiskur áramótanna, líkt og sprengjur og brennur. Það er eins og hver manneskja finni sig knúna til þess um áramót að líta um öxl og skoða í hjartans einlægni hvemig líf hennar er og hvað hún vill gera til þess að bæta það. Menn ímynda sér að nú hafi þeir hreint borð - séu tabula rasa - óskrifað blað, nýtt ár, nýtt líf. Það er engu líkara en flestir hugsi um áramót: „Nú er ég svona, en svona vil ég ekki vera. Nú strengi ég áramóta- heit.“ Ef menn hafa ánetjast einhverjum ósiðum, eins og tóbaksreykingum eða of mikilli áfengisdrykkju, er sjálfsagt að nota þennan heitstrengingatíma til þess að láta ósiðinn lönd og leið. Stjómlaust ofát er líka nauðsynlegt að stöðva áður en í óefni er komið, en algengara er að fólk sé bara af einhverjum ástæðum ekki ánægt með líkamann sem guð gaf þvi og langi til þess að móta hann betur að smekk annarra. Konur sem eru flmm kíló yfir svokallaðri kjörþyngd verða smátt og smátt leiðar á því að fá ekki fót á sig nema í sérstökum fltubollubúðum og langar að ná fimm kílóunum af með megrun eða líkamsrækt. Stjórnendur líkamsræktarstöðva hafa sannanlega áttað sig á þessu og keppast því um feit- ustu bitana eítir áramót. Óþægileg hreinskilni Áramótaheitin sem áður eru neínd eru réttnefnd yflrborðsáramótaheit. Margir seilast hins vegar undir yfir- borðið og vilja móta líf sitt í átt til full- komnunar. Sumir vilja sinna guði sín- um betur, en aðrir kjósa bara að sinna sjálfum sér. Áramótaheit af því tagi gæti til dæmis verið að láta langþráða drauma rætast - fara nú loksins í sigl- inguna um Karíbahafið eða byija á því að safna fyrir draumahúsinu. Einhverj- ir seilast alveg inn að kviku og strengja þess heit að breyta persónuleika sínum. Ef menn láta gjarnan vaða yflr sig gætu þeir ákveðið að standa á rétti sínum á nýju ári. Heyrst hefúr af einum náunga sem hefur strengt þess heit að segja alltaf meiningu sina og liggja aldrei á skoðunum sínum. Ég hef heyrt að vinnufélagar mannsins beri nokkum kvíðboga fyrir næsta ári, enda hefúr hann nú þegar orð á sér fyrir óþægilega hreinskilni. Þessi maðui- fyilir flokk þeirra sem hafa einsett sér að ná full- komnun á einhverju ákveðnu sviði, en láta fullkomleikann máske lönd og leið á öðrum sviðum. Meiri óhamingja „Strengja áramótaheit!?" sagði einn hörkunagli við höfund greinarinnar um daginn. „Annaðhvort gerir maður bara hlutina eða sleppir þeim.“ Þetta viðhorf mætti sannarlega taka sér til fyrirmynd- ar. Margir eru nefnilega þeirrar skoðun- ar að áramótaheitin geri ekkert nema að ala á óhamingju mannanna. Menn stígi á stokk til að strengja heit en valdi svo sjálfum sér stórkostlegum vonbrigðum með því að standa ekki við heitið. Óhamingjan verði yfirgripsmeiri en áður og því sé betur heima setið en af stað farið. Áramótaheitin eru óþörf. Annaðhvort gerir maður bara hlutina eða sleppir þeim. -þhs

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.