Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2001, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2001, Page 29
LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2001 29 I>V Helgarblað DV-MYNDIR ÞOK Hryöjuverk í Bandaríkjunum Hermenn þramma inn í New York- borg og fólk minnist látinna eftir aö þúsundir sakiausra borgara voru drepnar þar í óhugnanlegri hryðju- verkaárás sem eignuö hefur veriö Osama bin Laden. Fyrsti snjorinn Þann 14. nóvember féll fyrsti snjór- inn sem hægt er aö kalla svo í Reykjavík á þessum vetri. Snjóaöi mjög duglega um tíma á reykvískan mælikvaröa. Þaö stóö þó ekki nema í fáar vikur og viö tók fádæma veö- urblíöa. Var hitastig á köflum meö því mesta í Evrópu í byrjun desem- ber og meira aö segja á Spáni ríkti þá fimbulkuldi meö frosti og snjó. Neyð í Afganistan Almenningur í Afganistan er síður en svo öfundsveröur eftir áralangar hörmungar styrjaldarátaka. Enn ein stórstyrjöldin hófst í vetrarbyrjun meö loftárásum Bandaríkjamanna í kjölfar hryðjuverkaárása á Bandaríkin 11. september. Þaö eru ekki síst konur og börn sem veröa illa úti í slíkum átökum. Þetta er einmitt sá hópur sem búiö hefur viö látlausa kúgun undir ofríki talibanastjórnarinnar í Afganistan sem nú er fallin. DV-MYND HARI Dæmdur fyrir morð Atli Helgason, 34 ára lögfræðingur, er hér leiddur í réttarsal í lok maí þar sem hann var dæmdur fyrir morö á félaga sínum, Einari Erni Birgissyni, 27 ára, í Öskjuhlíö á fyrra ári. Hlaut hann 16 ára dóm i Héraösdómi Reykjavíkur og var dómnum ekki áfrýjaö. DV-MYND E.ÓL Aöstandendur í réttarsal vegna morðsins á Einari Erni Birgissyni Aöstandendur Einars fylgdust grannt meö réttarhöldunum og fallast hér í faöma eftir aö úrskuröur lá fyrir. DV-MYND HILMAR ÞÓR Ráðherrar í Bláa lóninu Thorbjörn Jagland, fyrrverandi utanríkisráöherra Norömanna, og Halldór Ás- grímsson, utanríkisráöherra íslands, horfa hér löngunaraugum á föngulega konu stíga uþp úr Bláa lóninu á Reykjanesi. Þar voru ráðherrarnir staddir í sambandi viö fund þeirra sem haldinn var í Reykjavík. Mynd þessi þótti skondin og birtist í fjölmiölum víöa um lönd. Er það ekki síst óborganlegur svipur ráðherranna viö þetta tækifæri sem gerir myndina skemmtilega. Halldór Ásgrímsson hefur svo sem oftar veriö í sviösljósinu og síöast er hann opnaöi sendiráö í Japan sem mörgum þótti dýrt. Storbruni í Hafnarfirði Tugmilljóna tjón varö er matvælafyrirtækið íslensk matvæli í Hafnarfirði brann fyrr á árinu. Fjöldi manns missti þar vinnuna en starfsemin var í kjöl- fariö flutt til Vestmannaeyja. Sigur Evróvisjónmanna Útvarpsráösmaöurinn Möröur Árnason varö aö játa sig sigraðan vegna þrýst- ings almennings í máli sem hann hóf í útvarpsráöi. Þar fékk hann samþykkt að lag íslands í Evróvisjón-keppninni skyldi veröa flutt á íslensku. Mikil mót- mælahrina fór af staö og endaöi málið meö því aö Möröur dró tillöguna til baka. Hér boröa þeir „ friöarbollur“ Möröur og flytjendur Birtu, lags Einars Báröarsonar, sem fékk aö vísu herfilega útreiö í kepþnmni sjálfri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.