Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1965, Síða 3
3
á aðalfundi félagsins 27. okt. sama ár, og var þar samþykkt
eftirfarandi tillaga:
„Aðalfundur Ræktunarfélags Norðurlands haldinn á Ak-
ureyri 27. okt. 1962 telur mjög mikla nauðsyn á, að stofnuð
verði og starfrækt rannsóknarstofa hér norðanlands, þar sem
framkvæmdar séu m. a. jarðvegs-, fóður- og efnarannsóknir.
Felur fundurinn stjórninni að beita sér fyrir stofnun slíkrar
rannsóknarstofu og undirbúa þetta mál sem bezt fyrir næstu
aðalfundi Búnaðarsambandanna og Ræktunarfélags Norð-
urlands."
Málið var mikið rætt og almennur áhugi fundarmanna
kom þar skýrt fram. Enginn mælti í móti, en allflestir full-
trúanna létu í ljós fögnuð sinn yfir því, að málið skyldi vera
fram komið og hétu því stuðningi sínum heima í Búnaðar-
samböndunum. Með þessari fundarsamþykkt voru lögð
frumdrögin að þeirri skipan mála, sem nú er orðin.
Þegar eftir þennan fund, tók stjórn Ræktunarfélagsins að
kanna möguleikana á stofnun rannsóknarstofu og einkum
að leita eftir hvers fjárhagsstuðnings mætti vænta frá Bún-
aðarsamböndunum, og hver hugur þeirra væri til málsins
umfram það, sem fram kom á aðalfundinum. I ljós kom að
almennur áhugi var að vakna fyrir málinu, og fyrirheit um
fjárframlög sýndu, að ekki skyldi staðar numið. Var nú
gengið að því að tryggja húsnæði, afla fjár og svipast um
eftir forstöðumanni.
Á aðalfundi Ræktunarfélagsins 19. okt. 1963 var sam-
þykkt að félagið skyldi stofna og reka efnarannsóknastofu
á Akureyri, og skyldi 1/5 af söluverði eigna félagsins varið til
stofnunarinnar, og síðan tekjum félagsins eftir því, sem
unnt væri. Með þeirri samþykkt var efnarannsóknarstofan
stofnsett, og tímamót mörkuð í sögu félagsins.
Árið 1964 var fjársöfnun haldið áfram og hafði þá í árs-
lokin safnazt rúm ein milljón króna, frá Ræktunarfélaginu,
Búnaðarsamböndunum í Norðlendingafjórðungi, kaupfé-
lögunum norðanlands og Sambandi íslenzkra samvinnu-
félaga.
Haustið 1964 var Jóhannes Sigvaldason licentiat ráðinn
1*