Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1965, Page 25

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1965, Page 25
25 inn norður á engið. Lágmarks stærð skurðarins, til þess að það takist, er um 250—350 rúmmetrar. Miðast þá við, að dýpi skurðarins hafi verið einum metra minna en nú er og flái skurðarins hafi verið mjög lítill. Hér lýkur skýrslu Péturs Péturssonar og var mikilsvert, að sú athugun fór fram fyrir um aldarfjórðungi, því að um- merki öll eru nú ógreinilegri en þau voru þá. Framkvæmd- ir þessar allar, taldi Jón á Másstöðum, að Ólafur á Sveins- stöðum hefði gert með þeim takmörkunum einum, sem getið er við Tíðaskarðsskurðinn. Heimildin getur naumast verið betri. Jón á Másstöðum var alinn upp á Sveinsstöð- um, og hann var 6 ára, þegar Ólafur afi hans lézt. Þeir, sem þekktu Jón á Másstöðum treysta honum líka til þess að hafa farið rétt með, því að hann var greindur maður og gætinn og svo grandvar að af bar. Enginn veit nú, hvenær Ólafur á Sveinsstöðum hóf þess- ar jarðabótaframkvæmdir, en töluvert af þeim hefir senni- lega verið unnið fyrir stofnun Búnaðarfélags Sveinsstaða- hrepps. Ólafur varð dannebrogsmaður 1854. Hvers vegna varð hann þess heiðurs aðnjótandi? Ekki var það fyrir þing- mennskuna, því að hann sat ekki á Alþingi fyrr en 1859— 61. Ólafur hafði að vísu þegar 1847 tekið við hreppstjóra- störfum af Þorgrími Þorleifssyni á Hjallalandi. Enginn efast um, að honum hafi tekizt svo vel sveitarstjórnarstörf- in, að þau hafi verið launaverð, en þó hygg ég, að braut- ryðjendastarf hans í búnaðarframkvæmdum, hafi ráðið mestu um„ að hann var gerður að dannebrogsmanni. Eg tel ekki óvarlegt að áætla, að búnaðarframkvæmdir Ólafs á Sveinsstöðum, sem hér hefir verið sagt frá, hafi samlagt verið sem hér segir: 1. Túnasléttur eins og talið er hér að framan 4500 ferm. 2. Vörzlugarðar og skurðir, áætlað af mér 2800 rúmm. Auk þessa hefir Ólafur að sjálfsögðu unnið eitthvað að húsabótum, en um það hefi ég engar skýrslur.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.