Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1965, Side 37

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1965, Side 37
37 get ég fullyrt, að hann bar aldurinn vel og hélt enn ágæt- lega minni. Heimild þessa tel ég því örugga það sem hún nær. Jón ræðir fyrst um handverkfæri við jarðabætur, og gef ég honum nú orðið: „Fyrsta túnaslétta, sem ég man eftir að gerð var á Sveins- stöðum var gerð á þann hátt, að rist var grasrótin ofan af þúfunum með torfljá. Ristir voru mjóir strengir, jafnþykkir í báðar brúnir og skorið fyrir strengjunum með grasljá. Torfið borið burtu og þúfurnar pældar með páli og reku, og moldin pæld og jöfnuð með sömu verkfærum. Upp úr 1880 munu undirristuspaðar fyrst hafa farið að tíðkast. Herfi var farið að nota á árunum 1880—1900. En ekki var farið að plægja með grasrót fyrr en Magnús á Sveinsstöðum kom úr Noregsför sinni og fór að stunda plægingar og taka pilta til kennslu í þeirri grein 1903 og árin þar eftir.“ Eftir þessari heimild virðist mega ætla, að plógur hafi ekki komið til notkunar að ráði í Sveinsstaðahreppi fyrr en eftir 1900. Sama heimild getur þess að vísu, að Ólafur á Sveinsstöðum hafi á sinni tíð, sennilega um 1850, fengið norskan mann, Jens Stæhr, til að plægja 2 sléttur í túninu á Sveinsstöðum. Þá telur og Jón á Másstöðum í ritgerð sinni um Búnaðarfélag Húnavatnssýslu (Búnaðarrit 54. ár, bls. 24), að Jón Ásgeirsson hafi komið með plóg og herfi úr utanför sinni, áður en hann hóf búskap á Þingeyrum. Ekk- ert er kunnugt um þessi verkfæri Jóns á Þingeyrum, not- hæfi þeirra eða notkun. Þá vann Búnaðarfélag Húnavatnssýslu töluvert að útveg- un og kynningu landbúnaðaráhalda. Samkvæmt gjörðabók þess félags átti það 1877: kerru með aktygjum, plóg og herfi og tveim átum fyrr hafði það pantað töluvert af hand- verkfærum, sem það hefir selt félögum sínum. Drjúgur hluti þeirra tækja virðist hafa farið í Svínavatnshrepp, eftir sérstakri pöntun Erlends Pálmasonar í Tungunesi. Ókunn- ugt er um, hvað af þessum verkfærum lenti í Sveinsstaða- hreppi.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.