Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1965, Page 51
51
gögn hefi ég fundið um starf þess, og í bókum Búnaðarfé-
lags Sveinsstaðahrepps er þess ekki getið.
Mál þessi liggja svo niðri um lengri tíma. Það er fyrst á
aðalfundi búnaðarfélagsins 13. apríl 1928 að því er hreyft
af Jóni S. Pálmasyni á Þingeyrum að stofnað sé á ný naut-
griparæktunarfélag í hreppnum. Málinu var misjafnlega
tekið af fundarmönnum, þó tókst að fá samþykkta yfirlýs-
ingu um, að fundurinn væri hlynntur stofnun nautgripa-
ræktunarfélags, og var stjórninni falið að athuga málið og
koma með tillögur um það svo fljótt sem henni væri unnt.
A milli aðalfunda samdi félagsstjórnin frumvarp að sam-
þykkt fyrir nautgriparæktunarfélag og lagði það fyrir aðal-
fund 23. janúar 1929, en vegna daufra undirtekta var af-
greiðslu málsins þá frestað að sinni. Leið nú fram undir
áramót, en þá var Nautgriparæktunarfélag Sveinsstaða-
hrepps loks stofnað 16. des. 1929 og fyrsta stjórn þess kosin:
Jón Kr. Jónsson formaður og meðstjórnendur þeir Jón S.
Pálmason og Magnús Jónsson á Sveinsstöðum.
Félag þetta hefir starfað óslitið frá stofndegi og orðið tölu-
vert ágengt, svo að kýrnar í Sveinsstaðahreppi gefa nú meiri
afurðir en kýrnar í öðrum hreppum Austur-Húnavatns-
sýslu. Við síðasta uppgjör (1964) skilaði fullmjólka kýrin í
Sveinsstaðahreppi 3.535 kg mjólkur, en sýslumeðaltalið var
þá 3.294 kg.
Núverandi stjórn félagsins skipa: Magnús Sigurðsson á
Litlu-Giljá og meðstjórnendur Ólafur Magnússon á Sveins-
stöðum og Pálmi Zophoníasson á Bjarnastöðum.
V. Síðustu árin.
Undirstöðurnar treystar.
Með lögum nr. 7, 12. júní 1945 um jarðræktar- og húsa-
gerðarsamþykktir í sveitum fá búnaðarsamtökin öruggari og
hæfari grundvöll að starfsemi sinni. Löggjöf þessi var í
4*