Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1976, Blaðsíða 81
Fundir.
Búnaðarsamband Skagfirðinga gekkst fyrir fræðslufundum
í Miðgarði, Hofsósi og Ketilási um ýmislegt er að búskap
laut dagana 18., 19., og 20. nóv. 1975. Fyrirlesarar á þeim
fundum voru, auk heimamanna, frá Búnaðarfélagi Islands,
Bændaskólanum á Hvanneyri og Ræktunarfélagi Norður-
lands. Ræddi ég um sláttutíma grasa og þýðingu þess að slá
á réttum tíma til þess að fá sem mest og best fóður.
Búnaðarfélag Islands og Rala hélt ráðstefnu í Reykjavík
að venju í feb. sl. Sótti ég þá ráðstefnu.
Búnaðarsamband Eyjafjarðar hafði nokkra fræðslufundi
vorið 1976. Fór ég á tvo fundi, í Öngulsstaða- og Glæsi-
bæjarhreppi. Þá fór ég á aðalfund Búnaðarfélags Öxndæla.
Á öllum þessum fundum var m.a. rætt um bætta heyverkun
og betri búskap.
Þá fór ég á aðalfund Mjólkursamlags Skagfirðinga og hélt
þar erindi. Einnig hélt ég erindi á Landbúnaðarráðstefnu
Fjórðungssambands Norðlendinga á Blönduósi 21. og 22.
júní sl.
Við starfsmenn Rf. Nl. höfum, einkum á seinni árum,
reynt að sitja aðalfundi búnaðarsambandanna. Reyndin hef-
ur orðið sú að langflest ár síðan ég hóf störf hjá Rf. Nl. hef
ég setið aðalfund BSE, mjög oft fund hjá BSSÞ, sjaldnar í
Skagafirði og A.-Hún., en aldrei í V.-Hún. og í fyrsta sinn
á liðnu vori í N.-Þing. Vonandi stendur þetta til framfara
á þann veg, a.m.k. annar hvor okkar Þórarins geti að jafn-
aði setið alla aðalfundi búnaðarsambandanna.
Ú tgdfustarfsemi.
Ársritið fyrir árið 1975 kom ekki út fyrr en í febrúar á þessu
ári. Olli því fyrst og fremst fjárskortur þar sem ekki fór að
rýmkast um fjárhaginn fyrr en um áramót. Stærð ritsins er
128 síður, níu greinar auk skýrslna og fundargerða.
Nokkur umræða varð á síðasta aðalfundi um efni árs-
ritsins og kom glöggt í ljós sú skoðun að efni ritsins á und-
83