Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1976, Blaðsíða 86
Tafla 2. Hreyfingar á fjölda bænda og sýna milli áranna
1974 og 1975 eftir búnaðarsambandssvæðum.
Bún.- samb.- svæði Aukning bænda % fjölda sýna % Sýni pr 1974 bónda 1975
V.-Húnavatnss. . . 87 51 2,6 2,1
A.-Húnavatnss. 275 372 2,3 2,8
Skagafjarðars -=-20 -r-9 2,6 3,0
Eyjafjarðars 8 17 3,7 3,9
S.-Þingeyinga .... -i-9 2 1,8 2,0
N.-Þingeyinga .... 200 108 2,5 2,1
Austurlands 143 185 1,3 1,4
Meðaltal 25 26 2,4 2,5
nautar telja sig best geta leiðbeint á sínu svæði. Öxnadals-
heiðin hefur reynst Þrándur í Götu á fleiri sviðum en sam-
göngum. Heyverkunarþröskuldur hennar kemur æ betur í
Ijós með hverju efnagreiningarárinu sem líður. Sumarið
1975 sýnir þetta mjög greinilega á töflu 1. Samkvæmt henni
þarf um og yfir 2 kg í fe. vestan Heiðar, en undir 1,8 kg í
fe. austan hennar, miðað við meðaltöl búnaðarsambands-
svæðanna. Rétt er að vekja athygli á því að þótt meltanlegt
prótein sé talið hærra vestan heiðar getur sá munur verið
óraunverulegur vegna mismunar í heyverkun, sem ekki
kemur fram með þeirri aðferð sem meltanleikinn er reikn-
aður út á Rannsóknarstofunni.
Rannsóhnarverkefni.
Selenrannsóknum er fram haldið. Auk langtímatilraunar í
Fjósatungu í Fnjóskadal og athugunum með áhrif selen-
gjafar á heilbrigði lamba og fallþunga þeirra á tveim bæj-
um var gerð rannsókn á áhrifum selengjafar á frjósemi geml-
inga í samfloti með Sveini Hallgrímssyni hjá B.í. Sá Rf. Nl.
88