Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1976, Síða 75
Sumarið 1974 dvaldist ég nokkra daga á Þeistareykjum
við landskoðun og gróðurathuganir. Vakti það undrun mína
hve mikill og fallegur gróður er þarna, þrátt fyrir hæð
landsins og mikla sauðfjárbeit, og þó ekki síður hversu
mikið er þarna af jarðhitajurtum, þ. e. jurtum sem ætla má
að séu bundnar jarðhitanum.
Töðugresi er víða á grundunum norðan við Bæjarfjallið,
enda hefur þar verið dálítill túnskiki, og sér enn móta fyrir
túngarðinum, en ekki eru þó nein skörp skil milli gróðurs-
ins utan hans og innan. Er því sýnt að graslendið er þarna
hinn eðlilegi gróður, miðað við ríkjandi aðstæður (beit
o. fl.). Þess munu dæmi að menn hafi sótt heyskap inn á
Þeistareyki alla leið utan frá Húsavík (Lýsing Þingeyjar-
sýslu), og eflaust hefur það verið graslendið, sem freistaði
manna til búsetu þarna.
Fjöldi sauðfjár var á beit á grundunum, og mun svo vera
að jafnaði á sumrum, enda er fé nú flutt þangað á bílum úr
Aðaldal og Reykjahverfi.
I graslendinu á grundunum er língresi (Agrostis) ríkjandi,
víða með íblandi af bugðupunti, snarrót og finnung, auk
blómjurta, sem eru víða áberandi, en af þeim má nefna tún-
arfa (vegarfa), vallhumal, skarifífil, túnfífil, undafífil,
brennisóley, týsfjólu, mýrfjólu, gulmöðru, ljónslappa, maríu-
stakk og gleimmérei. Hvítsmári er allvíða í gamla túninu,
en er annars sjaldséður þarna, og sama er að segja um hár-
deplu og blákollu, sem vaxa í breiðum á túninu, á grund-
unum næst því, og í brekkum Bæjarfjallsins, þar sem gras-
lendi er einnig ríkjandi gróður. Eru þessar þrjár síðasttöldu
jurtir efalaust bundnar jarðhitanum hér, þótt ekki séu þær
að jafnaði tengdar honum.
Af eiginlegum jarðhitaplöntum vaxa þarna: græðisúra
(Plantago major), yfirleitt mjög smá, vex í þéttum smábreið-
um á jarðvegi eða á klettum, og naðurtunga (Ophiogloss-
um), sem vex á stangli í leirnum í næsta nágrenni hveranna.
Jarðhitagróðurinn má nokkuð marka af eftirfarandi upp-
talningu á tegundum, sem uxu á volgum kletti, með nokkr-
um gufuaugum: blóðberg (mikið), græðisúra, blákolla, skari-
77