Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1985, Side 25

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1985, Side 25
nagla, flísar og annað sem sært getur féð vegna hugsanlegrar smit- hættu. Ráðlegt gæti verið, að úða eða bera sótthreinsiefni á nafla- streng nýfæddra lamba. 6. Hafa skal vakandi auga með fénu með tilliti til byrjunareinkenna og umfram allt að lóga fyrir burð þeim kindum sem grunsamlegar verða, áður en þær bera. Hafa ber hug- fast, að kindur kunna að smita út frá sér nokkurn tíma, áður en einkenna verður vart og að riðuveiki kemur oftast fram síðar í af- kvæmum þeirra. Óheppilegt er að hafa burðarstíur í hlöðum. 6. Verjist nýju smiti inn á bæinn.“28 Sigurður Sigurðarson segir að vakni grunur um riðu, sé öruggast . . . „að hafa samband við dýralækni og láta hann svæfa kindina. Ekki er allt riðuveiki, sem veldur uppdrætti, því er vænlegast til árangurs að senda öll innyfli úr uppdráttarkindum til rannsóknar auk haussins og alltaf ætti að fylgja greinargerð með stuttri lýsingu á einkennum sjúkdómsins o.fl.“28 En hvað segja bændur, er átt hafa riðuveikt fé, um varnir gegn veikinni? Við lestur frásagna þeirra af baráttu gegn riðu, kemur margt athyglisvert í ljós og aðferðirnar sem beitt er til varnar eru nær jafn margar og bændurnir sjálfir. Fyrir þær sakir er afar lærdómsríkt og fróðlegt að heyra hvað þeir hafa til málanna að leggja. Hér verða birt ráð og varnir nokkurra bænda gegn riðu og hvaða árangur aðferðir þeirra hafa borið. Óskar Magnússon, Brekku, Seyluhreppi, Skagafirði: Hann fargaði öllu sínu fé jafnskjótt og riða var staðfest hjá honum. Sótthreinsaði með eitursódalegi (mjög sterkum lút skv. fyrirmælum frá Keldum) alla þá staði í fjárhúsum sínum er hann taldi féð geta náð til og einhver sýkingarhætta gæti verið. Framkvæmdi sótthreinsunina með strákústi, kústaði síðan allt með volgu vatni og sprautaði að lokum yfir allt til að hreinsa burt lútinn. Hafði áður mokað öllum skít út, vandað til þess verks og þegar dreift öllu á tún. Tók inn í þessi sömu hús, strax sama haust, aðkeypt fé, lömb og fullorðið. Riðan hefur ekki komið upp hjá honum aftur svo vitað sé (nær 10 ára riðuleysi). Vésteinn Vésteinsson, Hofstaðaseli, Viðvíkursveit, Skagafirði: Hann hefur ekki orðið fyrir tilfinnanlegu tjóni og hefur „búið við veikina“ síðan 1978 að hann telur. Hann aflífar 27
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.