Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1985, Page 126
fjárbænda. fvar Guðmundsson fyrrverandi aðalræðismaður skipulagði
dvöl þeirra þar vestra, ásamt John McGoorty sem fyrir nokkrum árum
stofnaði fyrirtækið Pride of Iceland. Markmið þess félags var, að hefja
innflutning á íslensku dilkakjöti.
Rætt var við marga forsvarsmenn matvöruverslana um möguleika á
sölu, verðlagningu o.fl. Eftir allar þessar viðræður telur Sigurgeir sjálf-
sagt að tilraun verði gerð til þess að komast inn á þennan markað og þá
með útflutning til frambúðar i huga. Miðað verður við, að um lúxusvöru
sé að ræða, sem seld yrði á mjög háu verði. Aðlögun að innanlands-
markaði gæti þýtt algjört hrun sauðfjárræktarinnar í landinu og þvi sé
nauðsynlegt að gera þessa tilraun.
Að loknu erindi Sigurgeirs beindu allmargir fundarmenn til hans
stuttum fyrirspurnum úr sætum sínum sem hann síðan svaraði. Rætt
var m.a. um, að riðuveiki gæti sett strik í reikninginn varðandi útflutn-
ing, kröfur Bandaríkjamanna varðandi hreinlæti i sláturhúsum og
mikilvægi þess að til þess sé vandað sérstaklega meðan verið er að vinna
markaðinn. Nokkuð var spjallað um útflutning SfS á lambakjöti, um
flutningamál og tollamál, en fram kom að kjötið er lágt tollað i Banda-
ríkjunum. Varðandi skrokkstærð virðast 13-15 kg vera vinsælust og er
þetta kjöt þá auglýst sem unglambakjöt. Hvað gæði kjötsins snertir er
helst að bakvöðvinn sé ekki nógu mikill miðað við amerískan markað og
þá kom fram spurning hvort ekki þyrfti að breyta ræktunarstefnunni.
Einnig var rætt um sölumálin innanlands og nauðsyn þess að þar yrði
verulega um bætt.
5. Eftirtaldar tvær nefndir voru skipaðar á fundinum.
Fjárhagsnefnd:
Helgi Jónasson formaður, Gunnar Sæmundsson, Jón Guðmundsson,
Pétur Helgason, Björn Benediktsson, Ari Teitsson, Björn Þórðarson,
Sveinn Jónsson, Sigurður Arnason, Guðbjartur Guðmundsson, Þórir
Jökull Þorsteinsson.
Allsherjar- og laganefnd:
Gísli Pálsson formaður, Aðalbjörn Benediktsson, Teitur Björnsson,
Oddur Gunnarsson, Þorsteinn Davíðsson, Ragnar Bjarnason, Sigurjón
Tobiasson, Guðmundur Helgi Gunnarsson, Jón Sigurðsson, Gunnar
Þórarinsson, Valgeir Bjarnason.
6. Þá var tekinn fyrir liðurinn framlagning mála.
Ævarr Hjartarson lagði fram fjárhagsáætlun fyrir árið 1986. Vísað til
fjárhagsnefndar.
Jóhannes Torfason gerði grein fyrir tillögu frá stjórn félagsins um
breytingar á lögum þess, en það er gert i framhaldi af tillögu sem
samþykkt var á síðasta aðalfundi. Aðalbjörn Benediktsson tók til máls
um tillöguna og vildi að skýrt kæmi fram að tilgangur félagsins væri að
stuðla að efiingu byggðar í landinu. Ari Teitsson og Helgi Jónasson tóku
128