Frjáls verslun - 01.04.1955, Síða 31
Olafur G. Eyjólfsson,
skólastjóri 1905—1915.
Jón Sivertsen,
skólastjóri 1915—1931.
Vilhjálmur Þ. Gíslason,
skólastjóri 1931—1953.
Jón Gtslason,
skólastjóri frá 1953.
1943. Lærdómsdeildarbekkiriiir eru tveir, 5. og
G. bekkur. Fyrstu stúdentarnir frá Verzlunar-
skólanum brautskráðust vorið 1945. Eiga þeir
því nú á vori komanda tíu ára stúdentsafmæli.
Lengi stóð það Verzlunarskólanum mjög fyrir
þrifum, að allir kennarar við hann voru stunda-
kennarar. Arið' 1941 var fyrst ráðinn einn fastur
kennari við' skólann, en 1944 voru ráðnir fjórir
fastir kennarar til viðbótar. Nú starfa sex kenn-
arar fastráðnir við skólann auk skólastjóra.
Stundakennarar eru sextán.
Er Vilhjálmur Þ. Gíslason var skipaður út-
Varpsstjóri árið 1953, tók Jón Gíslason við skóla-
stjórninni.
A síðastliðnu sumri var hafizt handa um
verulegar endurbætur og endurnýjun á gamla
skólahúsinu. Þó að því verki sé eigi að fullu
lokið, þá eru umskiptin til hins betra stórmikil.
Að ýmsum nytsemdarmálum og nauð’synja-
málum skólans er nú verið að vinna. Hið helzta
þeirra er húsbyggingarmálið. Hefur það lengi
verið á döfinni. Flestir virðast nú vera komnir
á þá skoðun, að skólinn muni einnig í framtíð-
inni bezt settur, þar sem hann er núna. Er það
kappsmál þeirra, sem að skólanum standa, að
allar ákvarðanir í þessu máli liafi verið teknar,
áður en skólinn heldur hátíðlegt fimmtugsaf-
mæli sitt, svo að gömlum nemendum og nýjum
gefist kostur á að athuga við þetta tækifæri
framtíðarfyrirætlanir skóla síns og leggja þeim
lið í orði eða verki.
Hér að framan hefur verið drepið á nokkur
meginatriði í sögu Verzlunarskólans. Þessi skóli
hefur mótazt af þeirri stefnu, sem honum var
mörkuð í upphafi: að efla menningu og þroska
verzlunarstéttarinnar með sérhæfingu á traustri
undirstöðu almennrar menntunar. Þótt ekki hafi
alltaf blásið byrlega, munu menn yfirleitt sam-
dóma um, að skólinn hafi átt verulegan þátt í
að' mynda hæfa, framtakssama innlenda verzl-
unarstétt.
Verzlunin er og verður hyrningarsteinn undir
sjálfstæði voru. En verzlun og viðskipti verða
aldrei rekin, svo að í lagi sé, nema af gagnmennt-
uðum og víðsýnum mönnum. Það er ekki á færi
nema fárra afbragðsmanna að læra svo vel í
skóla reynslunnar einum saman að geta komizt
af án undirbúningsmenntunar í skóla. Flestum
er skólaganga nauðsynleg og ómissandi. Frá
Verzlunarskóla Islands hafa líka komið ýmsir
þeirra manna, sem drýgstan þátt hafa átt í því
að' flytja \7erzlunina úr höndum útlendinga í
liendur landsmanna sjálfra. Skólinn hefur þannig
verið vagga og skjól vaxandi framtaki og mann-
dáð með þjóð vorri á þessu mikilvæga sviði.
Hin unga kaupsýslustétt vor hefur verið einn
helzti fulltrúi vor út á við í vaxandi samskipt-
um vorum \'ið önnur lönd. Hennar hlutverk 'hef-
ur það verið að kynna þjóð vorri nýjungar sið-
menningarinnar og tækninnar. Hefur það átt
mikilvægan þátt í að lyfta atvinnuvegum vor-
um og daglegum lífsvenjum á það stig, sem hæf-
ir nútíma menningarþjóð. En þessu Grettistaki
hefði aldrei verið unnt að lyfta á jafnskömmum
tíma og raun ber vitni, ef verzlunaraienn vorir
hefðu ekki í byrjun þessarar aldar lagt grund-
völl að traustri innlendri menntun stéttar sinnar
með stofnun Verzlunarskóla íslands.
Heillavænlegur fyrirboði var það fyrir framtíð
skólans, er hin sömu félagasamtök, sem stóðu
að' stofnun hans fvrir hálfri öld, skyldu nú á
fimmtugasta starfsári lians bera gæfu til að leysa
vandamál sín í bróðerni og sameinast um veg-
lega gjöf til þessarar menntastofnunar sinnar.
FRJÁLS VERZLUN
55