Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1955, Blaðsíða 60

Frjáls verslun - 01.04.1955, Blaðsíða 60
son) á eftir konungsfulltrúa, taldi, að ,,[icssi mótmæli og samtök danskra eða útlenzkra kaupmanna" ættu ekki að- cins að vera hvatning til þingsins um að ítrcka óskir sínar, heldur einnig tilefni til ,,að sýna, hvað þau séu miður holl, og hrekja þau“. Það gæfi þinginu og „tækifæri til að votta gleði sína yfir því og viðurkenna, hversu stjórnin hefir fall- izt á tillögur þjóðfundarins og hinna undanförnu alþinga í verzlunarmálinu“. — 011 stefna þingsins í málinu mótaðist af þessum sjónarmiðum. Þingið lét sér nægja að þessu sinni að kjósa þrjá menn í nefnd til að fjalla um verzlunarmálið, enda lá aðeins fyrir að taka afstöðu til lagafrumvarpsins, sem stjórnin hafði lagt fynr danska ríkisþmgið, og þeirrar gagnrým, er það hafði sætt af hálfu kaupmanna. — Jón Sigurðsson átti ekki sæti í nefndinni. Framsögumaður hennar var Jón Guðmundsson. Nefndin tók bæði þessi atriði til meðferðar í áliti sínu. Hún gat þcss, að þótt í frumvarpi stjórnarinnar væri í aðal- atriðum fylgt sömu stefnu og í frumvarpi þjóðfundarins, væri stórnarfrumvarpið í tveimur atriðum verulega frábrugð- ið til tóns fyrir frjálsa verzlun: 1. Hvar útlendum farmönnum væri ætlað að leysa leið- arbréf hér á landi, og 2. Á hvaða staði þeir mættu sigla til verzlunar. I frumvarpi þjóðfundarins var ætlazt til, að hægt væri að leysa lciðarbréf bæði hjá verzlunarfulltrúum (konsúlum) Dana í öðrum ríkjum og hér á landi hjá amtmönum, sem og lögreglustjórum á þeim 6 aðalverzlunarstöðum, sem út- lendingar áttu fyrst að sigla til, áður en þcir færu að verzla annars staðar. Stjórnarfrumvarpið gerði ráð fyrir, að amt- mennirnir einir vcittu leiðarbréf hér á landi. I tillögum Alþingis hafði verið lagt til, að útlendir menn mættu verzla á öllum löggiltum höfnum, er þeir höfðu vitjað einhverra hinna tilgreindu aðalkaupstaða. Sam- kvæmt stjórnarfrumvarpinu máttu úflendir kaupmenn að- eins verzla á 6 aðalhöfnum, nema þeir flyttu timbur. Aðalbreytingarnar, sem kaupmcnn höfðu óskað eftir, að stjórnin gerði á frumvarpi sínu, voru þessar: 1. Að hið almenna lestargjald yrði ákvcðið 5 rbd. (í stað 2 rbd. í frumvarpi þjóðfundarins). 2. Að öll verzlun innlendra og útlendra lausakaupmanna yrði bönnuð. 3. Að engir nýir verzlunarstaðir yrðu löggiltir næstu 20 ár. 4. Að engir vöruflutningar yrðu leyfðir frá verzlunar- stöðunum inn á firði eða víkur. Kaupmenn höfðu lagt ríka áherzlu á að leiða ríkisþing- inu fyrir sjónir, hversu mikið tjón verzlun og siglingum danska ríkisins, og þó einkum íbúum Kaupmannahafnar, væri búið, ef verzlunin væri gefin frjáls á þann hátt, sem ráð var fyrir gert í stjórnarfrumvarpinu. I áliti þingnefndar- innar segir m. a. um málflutning kaupmanna: „Þessir menn hafa jafnvcl líka ■— víljað leíða rök að því, að sóma hinn- ar dönsku þjóðar væri hneysa búin, ef jafn lítill hluti kon- ungsveldisins, scm Island er, skyldi ná að setja þau lög, eða gefa tilögur og tilefni til þeirra, sem væru jafnísjárverð og skaðvænleg fyrir verzlun Dana yfirhöfuð að tala, cins og þau lög mundu verða, og fyrirkomulag á íslenzku verzlun- inni, sem frumvarp þjóðfundarins og frumvarp stjórnarinn- ar, sem þar á var byggt, fer fram“. Mjög litlar umræður urðu um verzlunarmálið á þing- inu. Kom þingmönnum saman um, að ekki væri ástæða til að bera fram bcinar tillögur varðandi ágalla þess. Hins vegar töldu þingmenn rétt að innt væri að þessum ágöllum í ávarpi þingsins til konungs, um leið og það tjáði honum þakkir fyrir, „hvað mikinn og verulegan gaum hann hef- ur gefið óskum og tillögum alþingis og landsbúa í þessu mikilvæga aðalmáli Islendinga“. Aðaláherzlu bæri þó að leggja á það að leiðir yrðu fundnar til að sigrast á þeirri andspyrnu, er frumvarpið hefði sætt, og tilraunum þeitn, sem gcrðar hefðu verið til að tefja framgang þess og spilia því. I ávarpi þingsins til konungs eru ræddar þær breytingar, sem æskilegar voru taldar, og í niðurlagi þess segir svo: „En þó þíngið telji það æskilegt, að þessum breytingum gæti orðið framgeingt, þykir því þó hitt mestu skipta, að frumvarpi því, sem yðar hátign létuð leggja fyrir ríkisþíng- ið, geti í öllu verulegu orðið framgeingt, og það scm fyrst náð lagagildi, og þess vegna Ieyfir þíngið sér allra-þegn- samlcgast með samhljóða atkvæðum að bera þá bæn fram fyrir yðar hátign: að yðar hátign, af vísdómi yðar og landsföðurlegri umönnun fyrir sannri velfarnan vor Islendínga, vilj- ið allramildilegast bægja þeim mótspyrnum burtu, sem reistar hafa verið gegn frumvarpi því til frjálsr- ar verzlunar á Islandi, scm yðar hátign hefur látið bera undir ríkisþíng Dana svo að þetta frumvarp fái sem fyrst lagagildi". Lokaþáttur Tilraun danskra kaupmanna til að skara enn einu sinni eld að sinni köku og vernda þann sérrétt, er þeir höfðu haft til verzlunar hér á landi, bar ckki tilætlaðan árangur, enda hefði það þverbrotið þá yfirlýstu stefnu stjórnarinnar að skoða málið fyrst og fremst frá „sjónarmiði Islands". Nú var og svo komið, að kaupmenn urðu ekki fyllilega sam- mála. Augu sumra voru að opnast fyrir því, að hagur þeirra og Islendinga gæti farið saman, ef rétt væri á haldið. Aðrir voru svo skynbærir að sjá, að ekki þýddi lengur að spyrna á móti broddunum. Hinni fornu sérréttindaaðstöðu yrði ekki haldið lengur til streitu. Hún samþýddist ckki kröfum hins nýja tíma um aukinn sjálfsákvörðunarrétt og aukið frelsi. Og Islendingar eignuðust nú ýmsa öfluga málsvara með 84 FRJÁLS VERZLUN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.