Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1955, Síða 62

Frjáls verslun - 01.04.1955, Síða 62
Lög um siglingar og verzlun á íslandi frá 15. apríl 1854 1. gr. Eptirleiðis skal öllum innanríkiskaup- mönnum vera heimilt að taka utanríkisskip á leigu, og hafa til verzlunar sinnar á íslandi, þó skulu þeir gæta þess, sem fyrir er mælt í lögum þessum. 2. gr. Utanríkisskipum skal einnig leyft vera að hleypa inn á þessar liafnir á íslandi: Reykja- vík, Vestmanneyjar, Stykkishólm, ísafjörð, Ak- ureyri og Eskifjörð, þó ekki hafi þegnar Dana- konúngs leigt þau. Þó eiga skipstjórar, undir eins og þeir koma, að gefa lögreglustjóranum það til vitundar, og séu þeir ekki útbúnir með tilhlýði- leg heilbrigðisskýrteini, verða þeir að láta rann- saka heilsufar skipverja, og í öllu hegða sér ept- ir því, sem yfirvaldið segir fyrir. En ekki mega þeir selja neitt af farminum né kaupa aðrar vör- ur en þær, sem skipverjar þurfa sjálfir til nauð- synja sinna eða skips síns, fyrri en heir hafa fullnægt skilmálum þeim, sem settir eru til að geta verzlað, og einkum útvegað sér íslenzkt leið- arbréf, og skal yfirvaldið hafa vandlega gætur á þessu. 3. gr. Svo skal einnig utanríkismönnum leyft vera héðan í frá að sigla upp öll Iöggild kaup- tún á íslandi og verzla har. Þó eiga öll utanríkis- skip, sem koma beinlínis frá útlöndum, að koma fyrst inn á einhverja af höfnum beim, sem nefnd- ar eru í 2. grein, áður en hau sigla upp aðrar hafnir á landinu, svo að þess verði gætt, sem boðið er í téðri grein. Einnig mega utanríkis- menn eins og innanríkismenn flytja vörur hafna á milli á íslandi, og eins fara kaupferðir milli ís- lands og annara landa Danaveldis, hó má ekki hafa utanríkisskip 15 lesta og baðan af minni til vöru- flutnínga, hvorki hafna á milli á íslandi, né milli íslands og hinna hluta ríkisins. Að öðru leyti mega bæði utanríkis- og innanríkismenn, án þess að vera bundnir við nokkurn tíma, selja vörur sínar eða leggja bær upp til sölu hjá fastakaup- mönnum á öllum löggildum kauptúnum á ís- landi, og eins verzla við landshúa í 4 vikur, þó einúngis af skipi, á þann hátt, sem fyrr er skip- að um verzlun lausakaupmanna, og má verzlun þessi ekki fara fram á landi, hvorki í byrgjum, húsum, tjöldum, né nokkru öðru skýli. 4. gr. Allir, hvort þeir eru innlendir eða út- lendir, sem ætla að verzla á íslandi, og flytja þángað eða þaðan vörur, eiga að kaupa íslenzkt leiðarbréf fyrir hvert skip, er þeir hafa til slíkr- ar verzlunar, og hverja ferð. Á leiðarbréfinu skal standa nafn skipsins, heimili bess og stærð, og einnig nafn skipstjóra, og skal útgerðarmað- ur skipsins vitna að þetta sé rétt, og hinn danski verzlunarfulltrúi, þar sem nokkur er, en annars yfirvaldið á utanríkisstöðum, eða tollheimturáð á innanríkisstöðum staðfesta þann vitnisburð. Þegar Ieiðarbréfið er keypt handa skipi, sem fer til íslands, gildir það fyrir ferðina þángað, fyrir ferðir hafna á milli á íslandi — ef skipið ekki um leið fer til annarar hafnar erlendis og fyrir ferðina aptur til einhverrar hafnar fyrir utan ís- land. Ef leiðarbréf er keypt á íslandi fyrir skip, sem annaðlivort á þar heima og fer þaðan, eða sem komið er til íslands leiðarbréfslaust, en er tekið á leigu af kaupmanni, sem býr þar, þá gild- ir leiðarbréfið fyrir ferðina frá íslandi og til íslands aptur, ef skipið kemur aptur áður en 9 mánuðir eru liðnir frá því að það fór af stað. Þegar öðruvísi er ástatt, og leiðarbréf er keypt á íslandi, og einkum þegar skipstjóri, sem kom- inn er Ieiðarbréfslaus, vill kaupa það, til þess að geta verzlað fyrir sjálfan sig, og flutt farm frá íslandi, gildir Ieiðarbréfið aðeins fyrir þær ferðir, sem farnar eru hafna á milli á íslandi, og fyrir ferðina frá landinu. 5. gr. íslenzk leiðarbréf fást lijá stjórn inn- anríkismálanna, hjá hinum dönsku verzlunar- fulltrúum í heldri kaupstöðum í Norðurálfunni, þeim er við sjó liggja, hjá lögreglustjórunum á þeim sex höfnum á íslandi, sem að framan eru nefndar, og hjá landfógetanum í Færeyjum. 86 FR.TÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.