Frjáls verslun - 01.04.1955, Síða 63
Þegar búið en að nota Ieiðarbréfin, og skipið
ætlar til útlanda, skal skila þeim til lögreglu-
stjórans á þeim stað á íslandi, sem skipið fer
seinast frá, en ef skipið fer til Danmerkur eða
hertogadæmanna, til tollheimtumannsins á þeim
stað, þar sem skipið leggur inn og segir til farms
síns, og í Altóna til forseta bæjarstjórnarinnar.
6. gr. Fyrir sérhvert íslenzkt leiðarbréf, sem
gefið er út samkvæmt ákvörðunum þeim, sem
getið er í 4. gr. laga þessara, skal greiða 2 rd.
gjald af hverju lestarrúmi í skipinu eptir dönsku
máli, hvort heldur það er innlent eða útlent, og
hvort heldur það liefir nokkurn farm eða ekki,
eða hver farmur, sem á því er, og skal gjald það
greiða áður en leiðarbréfið er látið af hendi.
Þar á móti er afnumið leiðarbréfagjald það,
sem áður hefir verið, gjald það, einn af hundraði,
sem híngað til liefir verið greitt, þegar íslenzk-
ar vörur voru fluttar úr Danmörku, og sömu-
leiðis gjald það 2 rd. 32 sk. af liverri lest, sem
híngað til hefur verið greitt af þeim skipum,
er flutt hafa vörur til útlanda.
7. gr. Ef skipið á lieima í því ríki, þar sem
lagður er hærri tollur á dönsk skip og farma
þeirra en á þau skip, sem eiga heima í ríkinu
sjálfu, ákveður konúngur, hvort og að hve miklu
leyti borga skuli fyrir þau aukagjald til ríkis-
sjóðsins fram yfir það, sem til er tekið í 6. gr.
hér að framan.
8. gr. Hver sá utanríkismaður, sem frá út-
löndum siglir til íslands til verzlunar, skal auk
leiðarbréfs hafa vöruskrá, sem skýrir greinilega
frá farminum, og skal hún vera staðfest af liin-
um danska vezlunarfulltrúa, ef nokkur er þar,
en annars af yfirvaldinu; sömuleiðis skal hann
hafa fullgild skilríki fyrir því, að livorki mislíng-
ar, né bóla, né aðrar næmar sóttir gángi þar
sem skipið fer frá, eða meðal skipverja, og skulu
skilríki þessi einnig vera staðfest af danska
verzlunarfulltrúanum eða yfirvaldinu. Fyrir
hvern flokk um sig af staðfestíngum bessum, og
eins fyrir þá, sem nefnd er í 4. gr. laga þessara,
á danski verzlunarfulltrúinn 6 sk. af liverri lest,
sem skipið tekur, eptir dönsku máli. Slíka vöru-
skrá skulu einnig þau skip hafa meðferðis, sem
eptir 2. gr. Iaga þessara vilja verzla með vörur,
sem þau flytja til íslands.
Skip þau, sem koma til íslands frá tollstöð-
um í ríkinu, mega í stað vöruskrár nota tollskrá
þaðan sem þau fara, en dönsk skip, sem frá út-
löndum sigla til íslands, verða að hafa vöruskrá
og heilbrigðis-skýrteini, eins og áður er sagt um
utanríkisskip.
Jafnskjótt og skipið hefir hafnað sig á ís-
landi, skal sýna Iögreglustjóranum bæði leiðar-
bréfið og hin önnur skilríki, sem nú voru talin,
og ritar hann á þau; á hann fyrir það 16 sk. af
lestarrúmi hverju í skipinu eptir dönsku máli,
ef skipið er að fullu affermt eða fermt innan
hans Iögdæmis, en ef skipið affermir eða fermir
í höfnum sem ekki liggja undir sama lögdæmi,
skal greiða helmíng af téðu gjaldi til lögreglu-
stjórans á hverjum stað, þar sem skipið er af-
fermt eða fermt.
Á hverjum stað, þar sem nokkuð er fermt eða
affermt, skal gefa lögreglustjóranum skýrslu um
það. Allt, sem affermt er, skal rita á vöruskrána
eða tollskrána, en á seinasta staðnum, sem skip-
ið kemur á, skal skila þessum skjölum til lög-
reglustjórans, er sendir þau til stjórnar innan-
ríkismálanna.
9. gr. Öll afbrigði gegn reglum þeim, sem
framan eru taldar, nema stórglæpir sé, svo sem
svik og falsan, varða 10 til 100 rd. sektum til
fátækrasjóðs á þeim stað, en séu þau ítrekuð,
þá tvöfalt meira, og má gánga svo eptir sektun-
um, að leggja löghald á skip og farm, og selja
á uppboðsþíngi svo mikið af farminum, sem barf
í sektargjald og málskostnað.
10. gr. Að öðru leyti eru þeir utanríkismenn,
sem sigla til íslands, skyldir að hegða sér eptir
lögum þeim, sem þar gilda, einkum að bví er
verzlun snertir, og á stjórn innanríkismálanna
að sjá um, að prentað verði bæði á danska og
frakkneska túngu ágrip af hinum helztu ákvörð-
unum um verzlunina á íslandi og skal festa ágrip
þetta við sérhvert íslenzkt leiðarbréf. Sérhver
lögreglustjóri á íslandi skal sjá um, að utan-
ríkismcnn gæti þeirra lagaboða, sem bá snerta.
11. gr. Konúngurinn hefir í hyggju að ákveða
gjör og birta þær breytíngar á forminu á þvi,
hvernig fá megi og nota islenzk leiðarbréf, sem
þörf er á, þegar öllum innanríkismönnum nú er
leyft að taka utanríkisskip á Ieigu, og utanríkis-
mönnum að verzla á íslandi, eptir því í hverju
skyni leiðarbréfið er veitt.
12. gr. Lög þessi fá gildi 1. dag April-mán-
aðar 1855.
Eptir þessu eiga allir hlutaðeigandur sér að
hegða. Gefið út í höll Vorri Friðriksborg 15. dag
Aprilmán. 1854.
frjÁls verzlitn
87