Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1974, Side 77

Frjáls verslun - 01.01.1974, Side 77
5. Lokaútfærzla handrits fer síðan fram á teiknistofu. Taka þarf ákvörðun um let- urgerð, myndskreytingar, leikmuni, bún- inga, leikara, þuli og annað. Sérteiknun og myndskreytingar: Erik C. Watson og Hilmar á teiknistofunni. 6. Oftast þarf að leita til sérþekkingar ljósmyndarans við ljósmyndun og ljós- myndavinnu í sambandi við kvikmynda- gerðina. Þá kemur samvinnan við ljós- myndastofu KM sér vel. Ljósmyndun, eftirtökur o. fl.: Kristján Magnússon. 7. Hugmyndin fest á filmu. Innitökur eru flestar teknar í eigin stúdíósal. Hvert atriði er marg tekið til þess að hægt sé að nýta alla möguleika handritsins til hins ýtrasta, þegar myndin er klippt síðar. Kviömyndataka: Jón Þór Hannesson. 8. Vélavinna. Aökeypt vinna frá sérhæfu starfsfólki sjónvarpsins felst í framköllun filmunnar, klippingu í klippiborði, tónupp- töku og yfirfærzlu á sérstakt tónband, og samhæfingu tónbands og filmu (blöndun tónefnis og tónsetning): Umsjón vélavinnu hafa Jón Þór Hannes- son og Ólafur Stephensen. 9. Nú fyrst fær auglýsandinn að skoöa auglýsingu sína fullgerða. En þá er ekki öllu lokið. Gerð er auglýsingaáætlun um birtingartíma, og kostnað. Pantaðir eru tímar í sjónvarpinu, og þeir staðfestir skriflega. Síðan hefur Argus eftirlit með birtingunum og endurskoðar reikninga fyrir þær. Auglýsingadreifing: Valgeröur Siguröar- dóttir, Ingibjörg Valdimarsdóttir. Auglýsingastofan Argus h.f. vinnur að að- hliða auglýsingaþjónustu, en hefur frá upphafi starfs síns, 1967, lagt áherzlu á eigin kvikmyndagerð, — með tækjakosti og stúdíósal. Argus hefur gert flestar aug- lýsingakvikmyndir hérlendis. „Við höfum staðið að bæði þeim góðu og þeim slæmu,“ segja starfsmenn Argusar. „Megin áherzla okkar í kvikmyndagerðinni er að gera auglýsingar, sem selja vöruna, sem er aug- lýst. Það er verkefni annarra að sjá sjón- varpsáhorfendum fyrir skemmtiefni.“ FV 1 1974 77

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.