Frjáls verslun - 01.08.1976, Page 23
Forsetakosningar í Bandaríkjunum:
Þrátt fyrir einhug á demó-
krataþinginu er flokksfylgi
Carters ekki fullkomlega tryggt
Ýmsir sérhagsmunahópar innan flokksins eru ekki allskostar
ánægðir með stefnumótun frambjóðandans
Þó að einh’ugur mikill hafi ríkt á yfirborðinu á flokksþingi demókrataflokksins bandaríska, þar
sem Jimmy Carter var valinn forsetaefni. er leið hans til Hvíta hússins þó nokkrum þyrnum
stráð. I grein í bandaríska tímaritinu U.S. News and W<)rld Report var nýlega fjallað um stöðu
flokksins með hliðsjóni af kosningunum, sem í hönd fara.
Carter kominn á bak en asninn, sein er tákn dcmókrataflokksins,
cr ekki eins hraustur reiðskjóti og í fljótu bragði mætti ætla.
Stærstu ágreiningsefni
flokksmanna eru úr sögunni
eða hafa verið byrgð niðri eins
og Víetnamstríðið, jafnrétti
kynþátta og fleiri mál, sem otlu
svo heiftarlegum umræðum að
við lá að flokkurinn splundrað-
ist.
Ef grannt er skoðað kemur í
ljós, að hrifning demókrata
yfir framboði Carters og vara-
forsetaefrnis hans, Mondale,
stafar meir af löngun til að
sigra en rótgrónum stuðningi
við frambjóðendurna.
• Ólík flokksbrot
Á næstu vikum verður því
kosningabarátta Carters að
miða að því að afmá allar efa-
semdir og vinna fullan stuðn-
ing ólíkra flokksbrota eins og:
• Hinna frjálslyndu, sem í
hjarta sínu hafa aldrei sætt
sig við Carter.
• Verkalýðssamtaka, eini marg-
ir leiðtogar þeirra hafa litið
hornauga hinn skyndilega
frama Carters.
• Áhangenda ólíkra trú
flokka, aðallega kjósenda í
stærri borgum og úthverf-
um iþeirra í Norðurríkjunum.
Þeir eiga erfitt með að s'kilja
hvaða samleið þeir eiga með
baptista frá Suðurríkjunum.
• Blökkumanna, sem sumir
hverjir óttast að frambjóð-
endurnir telji stuðning sinn
alveg vísan. Marga blökku-
menn verður að hvetja einr
dregið til að greiða atkvæði
í forsetakosningunum.
• Stuðningsmanna George
Wallace, sem vilja ekki taka
höndum saman við frjáls-
lyndari öfl innan demókrata-
flokksins.
*
9 Oróabylgja
Einn af þingmönnum Kali-
forníu í fulltrúadeild banda-
ríska þingsins kom að kjarna
málsins þegar hann sagði á
flokksþinginu í New York:
„Samhugurinn hér er ekki
djúpstæður. Undir niðri ólgar
bylgja óróans. Áhuginn á
Carter er ekki meiri.“
Margir frjálslyndir demó-
kratar eru enn himinlifandi
vegna frammistöðu Carters,
sem hlaut útnefningu upp á
eigin spýtur án nokkurrar
FV 8 1976
21