Frjáls verslun - 01.08.1976, Qupperneq 47
Aton - husgögn
Framleiða
fyrir
JL-húsið
hótelið er enn ekki komið í
gagnið. Við tókum hins vegar
hluta af því í notkun fyrir gagn-
fræðaskólann. Á þessu og síð-
asta ári eru komnar í þessa
byggingu 100 milljónir, en
heildarkostnaður fer í 145 millj-
ónir. Ástæðan fyrir því að svona
stór hótelbygging er tekin í
notkun undir skóla er sú að í
dag er enginn grundvöllur fyr-
ir hótelrekstur. Fé úr Ferða-
málasjóði, sem á að lána 60%
af byggingarkostnaði, hefur al-
gjörlega brugðist. Til að bjarga
þessu, þar sem byggingin var
tilbúin undir tréverk og í henni
lá mikið fé, var frestað að byrja
á fyrirhuguðu skólahúsi og
hótelið innréttað fyrir skólann,
þ. e. a. s. matsali og frmdarsali
en herbergin látin bíða.
Nú er verið að undirbúa að
skapa frekari rekstrargrundvöll
með því að reka heimavist í
hótelinu, því gamla heimavist-
arhúsnæðið er orðið mjög lé-
legt og þarfnast endurnýjunar
ELLI- OG
H JÚKRUN ARMÁL
— Gert er ráð fyrir að taka
gömlu heimavistina undir elii-
heimili eftir gagngerar breyt-
ingar og að þar verði 16 vist-
menn.
Verið er að undirbúa stækk-
un sjúkrahússins og byggingu
heilsugæslustöðvar. Sjúkrahús-
ið, sem rekið er af St. Fran-
siskushreyfingunni, er orðin
gömul bygging og þarf að gera
vissar endurbætur svo hægt sé
að veita þá þjónustu, sem er
krafist eins og rannsóknarað-
stöðu og fleira.
— Þá má að lokum benda
á það, sagði Sturla, að í Stykkis-
hólmi er mjög góður flug-
völlur og þess vegna hægt að
nýta sjúkrahúsið betur fyrir ná-
grannabyggðirnar.
Árið 1968 var Húsgagnagerð-
in Aton í Stykkishólmi stofnuð,
en fyrir einu ári urðu eigentla-
skipti, 'þar eð JL-húsið í Reykja-
vík keypti fyrirtækið.
Er FV var þar á ferð var
Hrafnkell Alexandersson, sem
veitir fyrirtækinu forstöðu, tek-
inn tali.
— Það er verið að koma
rekstrinum í gang aftur og þá
undir nafninu JL-húsið, Stykk-
ishólmi. Bæði þeir og ég vild-
um fara hægt af stað aftur tii
að sjá hvað hagkvæmast yrði
að framleiða, sagði Hrafnkell.
— Nú framleiðum við aðal-
lega ruggustóla, hornhillur og
símabekki, sem eingöngu er selt
í JL-húsinu Reykjavík, en mein-
ingin er að selja þessa hluti
víðar, ef framleiðslan eykst.
— Þetta fyrirtæki er aðallega
byggt upp í kringum renni-
smíðina og er rennibekkurinn
aðaltækið.
— Það eru vissir annmarkar
á því að reka svona fyrirtæki
úti á landi frekar en í Reykja-
vík. Það er þá helst flutningur-
inn og eins ef eitthvað vantar,
þá tekur það lengri tíma. Hér
er engin húsgagnaverzlun, en ef
fólk óskar eftir að fá hluti hér,
sem við framleiðum, er sjálf-
sagt að afgreiða það. Það er
mjög hæpið að borgi sig að reka
slíka verzlun hér, því salan hér
er ekki svo mikil og eins vantar
húsnæði.
— Nú er verið að reyna að
fjármagna fyrirtækið upp til að
endurbæta reksturinn og auka
framleiðsluna. Lögð var inn um-
sókn um aðstoð úr Byggðasjóði
í því skyni, því hér gætU' 10-20
manns haft atvinnu, eins og
þegar mest var áður.
FV 8 1976
45