Frjáls verslun - 01.12.1976, Blaðsíða 12
Danmörk
K. B. Andersen, utanríkisráðherra:
„Efnahagsbandaiagið þarf að
fastmóta tengsl sín við iýðræðis-
ríki V-Evrópu, sem utan
þess standa”
Danir munu taka fullan þátt í norrænu samstarfi þrátt fyrir
EBE - aðild sína
„Ég hef lengi dáðst að íslendingum fyrir það, hve gott samband þeir hafa við umheiminn og á
þetta ekki sízt við um þátttöku þeirra í norræn ni samvinnu og sérstaklega samskiptin við Dani.
Kannski höfum við um of tekið þetta sem sjálf sagðan hlut en mér er Ijóst, að það verður stöðugt
að halda þessum samböndum við og að því vilj um við vinna í samvinnu við íslendinga“, sagði K.
B. Andersen, utanríkisráðherra Dana í samtali við Frjálsa verzlun.
Við litum inn til ráðherrans
á skrifstofu hans í Kristjáns-
borgarhöll nóvembermorgun-
inn, þegar við lá að minnihluta-
stjórn sósíaldemókrata segði af
sér vegna bílstjóraverkfallsins.
K. B. Andersen hafði þá
skömmu áður komið af fundi
með leiðtogum flokks sir.s og
var þá talið alveg eins líklegt,
að stjórnin segði af sér og boð-
að yrði til nýrra kosninga fyrir
jól. Til þess kom þó ekki og
K. B. Andersen. eða „Ko-bi“
eins og hann er nefndur manna
á meðal í Dan-mörku, er enn
utanríkisráðherra lands síns.
Það hafði vakið talsvert um-
tal i Danmörku og í öðrum
löndum Efnahagsbandalagsins,
að á allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna höfðu Danir skömmu
áður greitt atkvæði á sömu
lund og Norðurlöndin um mál-
efni S-Afríku en ekki eins og
hin löndin í Efn-ahagsbandalag-
inu, sem vildu mildari afstöðu
til stjórnar S-Afríku en Norð-
urlöndin. Við spurðum K. B.
K. B.
Andersen,
utanríkis-
ráðherra
Dana.
12
FV 12 197fi