Frjáls verslun - 01.12.1976, Side 14
IMorræna menningarmálaskrifsfofan:
IMorrænt gerfihnattarkerfi fyrir
útvarp og sjónvarp tilbúið 1981
Samkeppni um teikningar af Morræna húsinu í Færeyjum
fer fram á næsta ári
Árið 1971 var undirritaður samningur milli Nor ðurlandanna fimm um samstarf á sviði menningar-
mála, byggður á Helsingforssamningnum frá 1962. I samræmi við ákvæði samningsins var komið á
fót norrænni menningarmálaskrifstofu í Kaupm annahöfn. Magnús Kull frá Finnlandi veitti henni
forstöðu fyrstu árin, en stjórnandi hennar nú er Klas Olofsson frá Svíþjóð. Fréttamaður Frjálsrar
verslunar ræddi skömmu fyrir jól við Olofsson og deildarstjóra almennu menningardeildarinnar,
Norðmanninn Björn Skau, einkum um þau atriði, er snerta afskipti stofnunar þeirra af norrænum
samskiptum á sviði ferðamála og dreifingu sjón varpsefnis. Eftirfarandi pistill er efnilegur úrdrátt-
ur úr viðtalinu.
Hvað ferðamál snertir hafa
einkum verið uppi tillögur um
að auðvelda ungu fólki ferða-
lög innan Norðurlanda. Norður-
landaráð hefur fjallað um þetta
efni, og hvað ferðir með t.d.
járnbrautum snertir, eru gild-
andi ákvæði um afsláttarmiða
fyrir æskufólk mjög hagkvæm.
Það hefur hins vegar komið í
ljós að vart verður í bráð ger-
legt að koma á afsláttarfar-
gjöldum með flugvélum með
öðru móti en þegar tíðkast, þar
eð slíkt hefði í för með sér mjög
erfið vandamál hvað fjárhags-
og framkvæmdahlið snertir.
Samvinna á íþróttasviði hefur
verið mjög á dagskrá og menn-
ingarmálaskrifstofan fjallað um
mörg verkefni á því sviði. Jað-
arsvæðin, svo sem Færeyjar og
Island, eiga hér augljóslega
mestra hagsmuna að gæta, enda
hefur verið tekið mjög mikið
tillit til landfræðilegrar legu
þessara landa þegar fjallað er
um styrkbeiðni til samskipta
milli þeirra og „fastalandsins",
og eru þá slíkir styrkir gjarnan
hærri.
FERÐALÖG MILLI LAND-
ANNA
Norræna félagið hefur annast
vel ýmislegt það sem óskað er
eftir almennt t.d. skiptiferðir
kennara og sérstök afsláttar-
flug milli landa. Um ferðamál
af þessu tagi gildir annars það,
að á sviðiNorðurlandasamvinnu
verður svo best um þau fjallað,
að fyrir hendi sé áhugi hjá til-
teknum hópum fyrir ferðum.
Meðal annars af þessum sökum
hafa íþróttirnar verið sérstak-
lega rannsakaðar. En nauðsyn-
legt er að gera sér ljóst, að hér
er um mjög kostnaðarsaman
þátt að ræða, sem m.a. snertir
náið afkomu flugfélaga, og er
því ekki óeðlilegt að þróunin sé
hæg.
Húsakynni Norrænu menningarmálaskrifstofunnar Snorregade 10
í Kaupmannahöfn.
14
FV 12 1976