Frjáls verslun - 01.12.1976, Side 17
Danmörk og EBE
Hfikill áhugi Dana á samkomulagi
við Islendinga um fiskveiðimál
Rætt við Ivar IMörgaard, markaðsmálaráðherra
Ivar Nörgaard, markaðsmálaráðherra Dana, hefur verið formaður
ráðherranefndar Efnahagsbandalags Evrópu og hann hefur einn-
ig verið fulltrúi Danmerkur í ráðherranefnd Norðurlandaráðs.
Hann hefur því öðrum Dönum betri yfirsýn yfir samstarfið við
grannana í suðri annars vegar og í norðri hins vegar. Það var því
eðli málsins samkvæmt að við spyrðum Nörgaard fyrst, hvort
hann teldi einhverja hættu á því, að norræn samvinna reyndist
örðugri í framkvæmd eftir aðild Dana að EBE en áður.
— Þvert á móti finnst mér
norrænt samstarf hafa borið
meiri árangur en oft áður eftir
að við gengum í EBE, sagði
Nörgaard. Ég get nefnt stofnun
Norræna fjárfestingarbank-
ans sem dæmi, og samræmingu
á löggjöf í ýmsum málaflokk-
um.
— Teljið þér hag Dana af
EBE-aðildinni óumdeilanlega
eftir þá reynslu, sem nú liggur
fyrir?
— Aðildin að EBE hefur ráð-
ið úrslitum fyrir danskan land-
búnað. Við flytjum út % af
landbúnaðarframleiðslunni og
nú kaupa Efnahagsbandalags-
löndin af okkur landbúnaðar-
vörur fyrir 3 milljarða króna á
föstu verði. Þessu væri ekki til
að dreifa ef við stæðum utan
bandalagsins. Danskur iðnaður
byggist mjög á landbúnaðar-
framleiðslu og afkoma hans er
því afar háð afkomunni í land-
búnaðinum Við gætum ekki
haldið gengi dönsku krónunnar
óbreyttu nú ef við stæðum utan
EBE og atvinnuleysið væri enn
verra en það er.
— Eru horfur á að atvinnu-
leysið aukist hér í Danmörku á
næstunni?
— Hér er vinnuaflið um tvær
milljónir manna en 116 þús.
ganga atvinnulausir. Nú er at-
vinnuleysið mest í byggingar-
iðnaðinum og ástandið gæti
vissulega versnað, ef staðan í
efnahagsmálum í heiminum al-
mennt ætti eftir að versna aft-
ur. Við erum mjög háðir inn-
fluttri olíu og fylgjumst því af
miklum áhuga með verðlags-
þróun á því sviði. Við bindum
líka miklar vonir við samstarf-
Norðurlandanna í orkumálum
og einmitt um þessar mundir er
verið að ræða möguleika á að
leggja leiðslur frá gaslindum
Norðmanna í Norðursjó beint
til Danmerkur og héðan til Sví-
þjóðar. Með þessu móti yrði
gasið miklum mun ódýrara fyrir
okkur en ef það færi um leiðsl-
ur. sem liggja um Þýzkaland.
— Hafa Danir mjög ákveðn-
ar meiningar um fiskveiði- og
landhelgismál Efnahagsbanda-
lagsins og afstöðu þess til ís-
lendinga í þeim málum?
— Við höfum mikinn áhuga á
þessum málum og mikilla hags-
muna að gæta. Danir eru and-
vígir hugmyndum Breta og íra
um einkalögsögu enda myndi
hún t.d. útiloka danska sjómenn
af mikilvægum fiskimiðum á
DoggerSbanka. Færeyjar og
Grænland sem hlutar danska
ríkisins koma þarna einnig
mikið við sögu. Færeyjar eru
ekki í EBE en við munum
blandast inn í viðræður um
fiskveiðiréttindi við Færeyj-
ar. Grænland er aftur á móti
í bandalaginu en er þó óháð
fiskimálastefnu þess.
Hvað samningaviðræður
bandalagsins við íslendinga
snertir, vil ég aðeins segja, að
ég vonast til að frambúðarlausn
náist. Vona ég, að Danir geti
haft áhrif í þá átt, og ennfrem-
ur að viðskiptamálum verði
haldið utan við þessa samninga.
Ivar
Nörgaard,
markaðs-
málaráð-
herra
Dana.
FV 12 1976
17