Frjáls verslun - 01.12.1976, Síða 18
Sven Aage IMielsen, sendiherra Dana:
„Það kemur of lífið af frétfum
frá Islandi í dönskum
fjölmiðlum”
* *
\ sviði verzlunar- og menningartengsla Islendinga og Dana
þarf að vera áframhaldandi straumur í báðar áttir
„Enda þótt dönsk-íslenzk viðskipti séu allmikil held ég, að stöðugt séu möguleikar fyrir hendi til
að auka þau. T.d. mætti auka útflutning frá íslandi á hefðbundnum framleiðsluvörum svo sem
lambakjöti og ullarvörum. Það ætti ef til vill að stefna að því að undirstrika hin einstöku gæði þess-
ara vara; þær á að setja á markað sem munað arvörur. Það mætti líka hugsa sér einhverskonar
framleiðslusamvinnu milli íslenzkra og danskra fyrirtækja, þar sem einnig kæmi til hönnun og
söludreifing,“ sagði Sven Aage Nielsen sendiherra Dana í samtali við Frjálsa verzlun. Hann sagði
ennfremur:
— Útflutningur Dana til ís-
lands dreifist eins og kunnugt
er á ótal margar vörutegundir.
Einnig á því sviði eru án efa
möguleikar á aukningu. Trú
mín á þessu atriði byggist sum-
part á því, að dönsk framleiðsla
er í stöðugri endu.rnýjun með
r.ýrri sérframleiðslu, sumoart
vegna þess að danskar vörur
eru samkeppnisfærar, og að
þær tilraunir sem fara fram í
Danmörku á því að 'halda aftur
af launa- og verðhækkunum
þjóna þeim tilgangi að viðhalda
samkepDnishæfni þeirra. Marg-
ir íslenzkir inn-flytjendur hafa
sagt mér, að þeir sjái sér sér-
stakan hag í því að flytja inn
danskar vörur vegna þess að
hinir reglubundnu og öru flutn-
ingar milli Kaupmannahafnar
og Reykjavikur geri þeim
mögulegt að flytja inn tiltölu-
lega lítið magn í einu, og við
það sparast geymslu- og vaxta-
kostnaður, sem að sjálfsögðu er
afar þýðingarmikið þegar að-
stæður til lána eru erfiðar. Ná-
ið, traust og oft á tíðum ára-
langt samband milli íslenzkra
og danskra fyrirtækja, eru þeg-
ar allt kemur til alls bezti
grundvöllurinn fyrir vonum
okkar um, að það verði mögu-
legt, einnig í framtíðinni, að
auka viðskiptin úr báðum átt-
um.
— Snúa íslenzk fyrirtæki sér
mikið til sendiráðsins vegna
upplýsinga um innflutning til
Danmerkur? Hvaða þjónustu
veitir sendiráðið íslenzkum fyr-
irtækjum, sem vilja kaupa af
dönskum fyrirtækjum?
— Já, það kemur oft fyrir,
og við veitum þeim gjarnan að-
stoð. Viðskiptin eiga, eins og ég
hefi áður sagt, að vera á vegum
beggja, og við höfum á'huga á
því að auka útflutning frá ís-
landi til Danmerkur. Fyrir-
spurnirnar til okkar eru ein-
kennandi fyrir fyrstu skrefin
til undirbúnings, og þar af leið-
andi er oftast um að ræða at-
huganir á frumstigi. Þegar far-
ið er að athuga málin nánar t.d.
viðvíkjandi markaðsathugun-
um í Danmörku eða upplýsing-
um um lánstraust danskra fyr-
irtækja, verðum við þó að vísa
Starfslið danska sendiráðsins í Reykjavík: Ellen Steindórs, Nanna
Kaaber, sendiherrann, frú Madden sendiráðsritari og Asta Stok-
lund.
18
FV 12 1976