Frjáls verslun - 01.12.1976, Síða 41
Danfoss
Fjölþjóðlegt fyrirtæki með
10 þús. starfsmenn og fram-
leiðslu í 6 löndum
Viðskiptin við Island hafa vaxið mjög vegna kaupa á hitastillum
fyrir hitaveitukerfi
Úti fyrir austurströnd Jót-
lands, rétt norðan þýsku landa-
mæranna liggur eyjan AIs.
Landslag og landshættir eru
dæmigerðir fyrir Danmörk:
Akrar og skógabelti bylgjast
eftir ávölum hæðum, en þorp
og bóndabæir eru ímynd þeirr-
ar ótímabundnu staðfestu, sem
einkennir danskar sveitir. Það
er því undarlegt að rekast hér
á eitt stærsta iðnfyrirtæki Dan-
merkur, í miðju landbúnaðar-
héraði.
En allt á sér skýringu.
Bóndasonurinn Mads Clau-
sen, vélfræðingur að mermt,
byrjaði sjálfstæðan atvinnu-
rekstur á loftinu í bæ feðra
sinna skammt frá Nordborg ár-
ið 1933. Þar hóf hann fram-
leiðslu á sjálfvirkum lokum
fyrir kælikerfi. Þörfin fyrir
þessa framleiðslu sýndi sig
fljótt. og eftir tvö ár reyndist
nauðsynlegt að færa út kvíarn-
ar. Þá lagði hann undir sig
byggingu úr tré að húsabaki,
sem verið hafði hænsnahús fjöl-
skyldunnar, og varð það fyrsta
,,verksmiðjubyggingin“. Einn
góðan veðurdag fékk Mads
Clausen pöntun, sem augsýni-
lega varð ekki sinnt á tiltekn-
um tima miðað við húsnæði og
afkastagetu. Varð því að grípa
til róttækra ráðstafana, eða
verða af viðskiptunum ella.
Ekki máttu vélarnar stansa, svo
menn settu haligræjur á
hænsnahúsið fyrrverandi, með
vélum og verkafólki í fullum
gangi, lyftu öllu saman og
hlóðu heila hæð undir, létu
siðan verksmiðjuna síga niður
og þar með hafði Mads Clau-
sen tvöfaldað at'hafnarými sitt.
Heimsstyrjöldin síðari stöðvaði
framgang verksmiðjunnar, og
þótt bætt væri við skúrum og
bröggum var ekki lokið við
fyrstu varanlegu verksmiðju-
bygginguna fyrr en 1952. Sú
bygging var 5000 m-, og var
þegar allt of lítil, þegar hún
var tekin í notkun. Um svipað
leyti var starfsmaður nr 1000
ráðinn. Mads Clausen afhenti
honum af þessu tilefni 1000
vindlinga að gjöf. Maðurinn,
sem var algjör bindindismaður
á tóbak, þakkaði vandræðalega
fyrir sig, gekk að sinni vél og
fór að framleiða Danfoss vörur
eins og hinir 999.
# Gott nafn
Til gamans er rétt að geta
þess, hvernig nafnið Danfoss
varð til. „Dan“ er vitaskuld
dregið af Danmörk eða dansk-
ur, og „foss“ merkir á norsku
lítinn læk, sem þyrlast niður
fjallshlíð. Kælivökvinn þyrlast
líka gegnum loka i kælikerf-
inu. Einhvern tíma sló hugtök-
unum „Dan“ og „foss“ saman í
huga Mads Clausen. Þar með
varð til nafnið Danfoss, og í
fyrstu aðeins sem vörumerki.
Fljótlega kom þó í ljós að vöru-
merkið 'hafði þann kost að
framburður þess var auðveldur
á hvaða máli sem var — og
fyrirtækið fékk því nafnið Dan-
foss.
FV 12 1976
41