Frjáls verslun - 01.12.1976, Qupperneq 53
vesturströnd Jótlands eru vin-
sælar baðstrendur en meðfram
allri strandlengjunni, sem er
um 500 kílómetra löng eru á-
gæt tækifæri til sjó- og sólbaða.
Þessi skilyrði eru víðar fyrir
hendi i Danmörku, eins og t.d.
á Borgundarhólmi.
Til þess að taka á leigu sum-
arbústað í Danmörku þarf að
snúa sér til einhverra þeirra
fyrirtækja, sem sérhæfa sig í
*
Sumargestir á dönskum bónda-
bæ.
útleigu þeirra. Þau eru mörg í
Danmörku. í landinu eru 530
skipulögð tjaldsvæði og meir
en 50 þús. sumarhús, sem leigð
eru út en Þjóðverjar leigja um
90 % alls húsakostsins á sumr-
in. Sumarhúsin, sem leigð eru
út, eru öll í einkaeign og inn-
réttuð eftir smekk eigendanna
sjálfra. Yfir hásumarið er leig-
an 450—1800 d. kr. á viku mið-
að við 4—5 manns, sem séu
saman. Utan háannatíma er
leigan talsvert lægri. Þá er líka
hægt að leigja lítil hús á bónda-
bæjum 'fyrir 650 kr. á viku, há-
mark 4—5 manns. Þá er gert
ráð fyrir að húsið standi sér, sé
með dagstofu, svefnherbergi,
eldhúsi, salerni og sturtu með
heitu og köldu vatni. Hins veg-
ar er svo um að ræða íbúð inni
í bænum, með stofu, svefnher-
bergi, eldhúsi og salerni.
Danmerkurkort. Það skal tekið fram að á þetta kort eru sérstak-
lega merktar baðstrendur í landinu.
# Þrír tlokkar
tjaldstæða
í opinberum skrám yfir tjald-
stæði í Danmörku eru þau
flokkuð niður í mismunandi
gæðaflokka með eiinni, tveimur
eða þremur stjörnum auk fleiri
merkja. Ein stjarna merkir að á
viðkomandi stað sé lágmarks
hreinlætisaðstaða og rennandi
vatn. Tveggja stjörnu svæði
hafa meðal annars sturtuklefa,
þvottastað og verzlun með
helztu nauðsynjar í minna en 2
km fjarlægð. Á þriggja stjörnu
stæðum er hreinlætis- og
þvottaaðstaða öll betri, verzlun
er á stæðinu sjálfu, gæzlumað-
ur er á staðnum, leiksvæði er
fyrir börn og aðstaða til eldun-
ar fyrir hendi. Gjaldið á tjald-
stæðunum er 8—10 d. kr. á sól-
arhring og eitthvað fyrir bílinn
að auki.
Tiltölulega nýverið er farið
að bjóða erlendum ferðamönn-
um að dveljast á dönskum
bóndabæjum, en þeir sem hafa
fcCampinq |^|
CAMPING
JL
GODKENDT
LEJRPLADS
Mismunandi merkingar tjald-
stæða.
reynt þennan dvalarmáta segja,
að þarna sé skemmtileg ný-
breytni á ferðinni fyrir alla
fjölskylduna.
Oft hafa ferðamenn fremur
yfirborðskenndar hugmyndir
um lönd og þjóðir, sem þeir
sækja heim. Hugmyndin á bak
við dvölina á sveitabæ er sú að
gefa gestunum tækifæri til að
kynnast Dönum og Danmörku á
eðlilegan hátt í réttu umhverfi.
Þetta er að sjálfsögðu ekki
þægilegasti gistingarmáti, sem
völ er á en þó öllu fremur heil-
brigður, ódýr og streitueyðandi,
þar sem menn geta rólegir
FV 12 197(5
53