Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1976, Side 65

Frjáls verslun - 01.12.1976, Side 65
í skipa- sniíða- stöðinni Lindp. Þarna er verið að smíða 339. þús. tonna olíuskip fyrir A.P. Möller skipafélag- ið. Þetta er eitt stærsta skip, sem smíðað hefur verið i Evrópu ef ekki hið stærsta. má eflaust fyrst og fremst þakka langri og strangri þjélf- uo iðnaðarmanna. Þetta hefur gert stöðu dönsku fyrirtsekj- anna sterka enda kemur ungt og vel menntað fólk til starfa hjá fyrirtækjunum sér full- komlega meðvitandi um þörf- ina fyrir vönduð vinnubrögð í hvívetna. Margir framleiðend- urnir eru uppfinningamenn á sínu sviði. Dönsku iðnfyrirtæk- in eru yfirleitt lítil og þegar starfsmaður fær góða hugmynd er hægt að hefja framleiðslu eftir henni mjög fljótlega. Skriffinnska aftrar því ekki. Hægt er að gera tilraunir þeg- ar í stað og ný framleiðsla get- ur verið komin á markaðinn innan mánaðar. # Meðal 10 tekju- hæstu þjóða 1974 Danski kaupskipaflotinn er um 3300 skip, samtals 4,8 millj- ónir brúttólesta, og þykir stór miðað við fólksfjölda. í þessum flota eru stóreflis olíuflutninga- skip og vöruflutningaskip, sem eru í reglubundnum gámaflutn- ingum um -heimshöfin. Danir hafa ýmis tækifæri til að njóta lífsins og geta almennt veitt sér það. Þjóðartekjur á mann voru sem svarar 6,992 dollui'um árið 1974 og að þessu leyti voru Danir meðal 10 tekjuhæstu þjóða í heiminum. Þá voru þjóðartekjur á mann í Svíþjóð, 8,445 dollarar, í Sviss 8412 dollarar, Noregi 7057, Kanada 6738 og 6598 í Banda- ríkjunum. Það eru um 1,9 milljón fjölskyldur í Danmörku og símatæki eru 2,2 millj. Sjón- varpstæki eru 1,6 milljón, bíl- ar 1,5 millj. Á degi hverjum koma út 17 millj. eintök af dag- blöðum og vikublöð koma út í 29 millj. eintökum. í bókasöfn- unum eru 84 millj. eintaka af bókum tekin að láni árlega og rúmlega 7000 bækur eru gefn- ar út. 6,7 millj. manns fara á söfn á ári og 19,2 millj. bíómiða seljast árlega. Danskar fjölskyldur eyða um 25% af tekjum sínum í mat- væli, drykkjarvörur og tóbak og 16,4% í húsnæðiskostnað. Þá er ealsvert eftir enn til að verja í síður mikilvæga hluti eins og bíla og ferðalög en þess má geta að Danir drekka 125 lítra af bjór á hvert manns- barn á ári, 9,7 lítra af léttum vínum og 3,7 lítra af sterkum vínum. Um helmingur allra danskra f jölskyldna býr í eigin húsnæði nánar tiltekið búa 56% þeirra í einbýlishúsum, en 44% í sam- býlishúsum. Sjö af hverjum hundrað fjölskyldum eiga sum- arbústað til að dveljast í um helgar. Þá má geta þess, að á hverja 1000 íbúa eru 1,8 læknar í Dan- mörku, 0,39 tannlæknar og sex sjúkrarúm. Háskólar eru fimm talsins og æðri menntastofnan- ir 32. Hver er framleiðandinn? Þegar þú þarft aö afla þér upplýsinga um hver hafi umboö fyrir ákveöna vöru eöa selji hana þá er svarið aö finna í "ÍSLENSK FYRIRTÆKI” sem birtir skrá yfir umboösmenn, vöruflokka og þjónustu sem islensk fyrir- tæki bjóöa upp á. Sláió upp í "ÍSLENSK FYRIRT/EKi” og finniö svariö. FÆST HJÁ ÚTGEFANDA. | e Útgefandi: FRJÁLST FRAMTAK hf. Laugavegi 178-Símar: 82300 82302 FV 12 1976 65

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.