Frjáls verslun - 01.12.1976, Síða 71
að borða lambakjöt matreitt
upp á allan hugsanlegan máta,
og vilja halda því áfram, þegar
heim kemur. Sérstaklega er
kjötið vinsælt að sumarlagi,
þegar grillað er úti í garði, við
sumarbústaðinn, í skóginum
eða á ströndinni. Þá setur hús-
bóndinn á sig svuntu og grillar
kótelettur. Svo höfum við átt
mjög ánægjulegt samstarf við
þá blaðamenn, sem skrifa fasta
þætti um mat og matseld í blöð
og tímarit, og það er ekki of
mikið sagt að þeir hafi mælt
hiklaust með þessari matvöru.
í verzlunum hefur kjötið líka
verið kynnt sérstaklega fyrir
húsmæðrum, matreitt og tilbú-
ið. fslenzka lambakjötið hefur
sem sagt fengið „fína pressu“,
eins og menn segja. Síðast en
ekki sízt má svo geta þess, að
samkvæmt rannsóknum vís-
indamanna hefur íslenzka
lambakjötið reynzt auðmeltara
en nokkurt annað kjöt, og fita
þess auðbrotnari niður í melt-
ingarfærum líkamans. A okkar
kólesteróltímum hefur þetta
mikil áhrif. En ég sagði áðan
að neyzluvenjur er erfitt að
hafa áhrif á — og dæmi um
það er, að á sama tíma og flutt
er inn lambakjöt frá íslandi og
Nýja-Sjálandi, þá er danskt
lambakjöt flutt út til Frakk-
lands.
f stuttu máli má segja, að
tekizt hafi að byggja upp „good-
will“ fyrir íslenzka lambakjöt-
ið, og þetta hefur haft í för
með sér jafna og stígandi eftir-
spurn.
— Þú minntist á nýsjálenzkt
lambakjöt. Hvað er um þá sam-
keppni að -segja?
— Já, nýsjálenzka kjötið er
sú vara, sem við keppum við
— hvað yerð snertir, vel að
merkja, þvi að mínu mati er
það hvað gæði snertir ekki sam-
bærilegt við íslenzkt kjöt. En
verðið er nú samt sem áður
sá þáttur, sem oftast nær ræð-
ur úrslitum á hinum almenna
markaði, og þar er nýsjálenzka
kjötið um einni krónu ódýrara
hvert kíló. Það hefur sín áhrif,
og hindrar jafnframt eðlilega
hækkun á verði íslenzka kjöts-
lækka verðið á því. Nú er út-
flutningur þessa kjöts frá Nýja-
Sjálandi greiddur niður af rík-
inu, eins og þess íslenzka, og
spurning er, hversu lengi það
fyrirkomulag helzt óbreytt. Á
Nýja-Sjálandi eru einnig uppi
háværar kröfur um hærra verð.
Menn segja sem svo: Nú hefur
gengi pundsins fallið svo og
K. C. Knudsen,
kjötkaupmaðurinn.
ins, við höfum jafnvel orðið að
svo mikið, og nú er svo komið
að við verðum að fá hækkun.
Aðstæður hvað nýsjálenzka
kjötið snertir eru að því leyti
erfiðari, að taka þarf við
stærri förmum innflutnings
þaðan í einu en frá fslandi, og
það er mikill ókostur. Það er
mjög heppilegt að aðflutning-
ur geti átt sér stað jafnt og
þétt. Við erum að sjálfsögðu
alltaf með lager hér, en hann
er endurnýjaður eins oft og
kostur er. Þetta var til hreinnar
fyrirmyndar á meðan Gullfoss
var í förum hér á milli, og er
nú allgott, en ég get sagt það
um viðskipti milli þessara landa
almennt, að það er slæmt hvað
siglingar þeirra á milli hafa
dregizt saman.
— Hvert er verðið á íslenzku
lambakjöti x Danmörku?
— Verðið er núna því sem
næst 11.60 danskar krónur í
heildsölu, og í smásölu er það
allt að helmingi dýrara. Ég álít
að verðið muni hækka, og það
ræð ég af aðstæðum í Englandi,
gengishruni pundsins og ýmsu
öðru. En auk þess er vert að
hafa í huga hvernig tollamál-
unum er háttað. í fyrstu var
enginn innflutningstollur af
þessu kjöti hér. Síðan gilti
EFTA samningur um 8% toll.
Tollurinn er núna 16%, en
verður 20% frá 1. janúar 1977,
og mér skilst að hann eigi
jafnvel að fara upp í 24% há-
mark. Til viðbótar kemur svo
15% virðisaukaskattur.
— Hefur engin umræða farið
fram um bað að fá þessum
ákvæðium breytt?
— Það var á sínum tíma rætt
um það í Brússel að aflétta toll-
um af lambakjöti. Síðan kom
landhelgisdeilan og viðræður
þessar féllu niður og hafa mér
vitanlega ekki verið teknar upp
aftur. írar voru sérstaklega
harðir gegn því að slíkar tolla-
tilslakanir yrðu veittar. En ég
tel nokkuð öruggt að hægt væri
að hækka innflutningskvótann,
ef því máli væri fylgt eftir. Við
Danir seljum t. d. núna 800
tonn af svínafleski á viku til
Bretlands. Og ég þykist vita að
tollútreikningskostnaður vegna
lambakjötsins sé e. t. v. hærri
en tollatekjunum nemur. En
hér eins og víða annars staðar
eru það stjórnmálin, sem mestu
ráða — og það er auðvitað aug-
Ijóst öllum, sem eitthvað þekkja
til íslenzkra staðhátta, að fisk-
veiðarnar eru fyrir ísland nokk-
urs konar lykill að öllum út-
flutningi.
— Svo aftur sé vikið að neyt-
andanum — hvernig fær liann
vöruna?
— Sala lam'bakjötsins fer að
langmestu leyti fram í stór-
verzlunum, súpermörkuðum.
Hröð og mikil umsetning skipt-
ir þar höfuðmáli, svo forráða-
menn þeirra gera innkaup fyrst
og fremst miðað við verð. Gæð-
in eru í öðru sæti, þótt þau
séu auðvitað ofarlega í huga. Ég
sagði áðan að við hefðum orðið
að lækka verð á íslenzka
PV 12 1976
71