Frjáls verslun - 01.12.1976, Síða 77
Álafoss-vörur
Selt fyrir 60 milljónir til Danmerkur
Kaufmann á Strikinu stærsti útsölustaðurinn
Hjá Kaufmann á Strikinu var
neðsta hæðin að hálfu lögð
undir vörur frá Álafossi —
peysur, treflar, sokkar, húfur
og annað — og verðið yrði
vafalaust mörgum landanum
umhugsunarefni. En reglulegir
viðskiptavinir hjá Kaufmann
eru hvort eð er varla aðrir en
þeir, sem spyrja þá fyrst um
verðið, þegar varan er greidd
við kassann.
Þessi verslun er stærsti út-
sölustaður prjónavara frá ís-
landi í Kaupmannahöfn, og
verslunarstjórinn, Hovgárd,
kvaðst ánægður með vöruna,
hún hefði þróast skemmtilega
og væri eftirsótt, ef til vill
venjulegir kaupendur yrðu þó
rnest af ferðamönnum, en
sífellt þýðin.garmeiri fyrir
markaðinn. Innflytjandi á Ála-
foss ullarvörum til Danmerkur
er Elinor Jelsdorf. og frétta-
maður F.V. skoðaði nokkra
staði í Kaupmannahöfn sem
kaupa vörur frá þessum inn-
flytjanda, í fylgd manns henn-
ar. Auk hinnar áberandi og
gullfallegu útstillingar frá
Kaufmann var litið inn hjá
Illums Bolighus í Hotel Scandi-
Að ofan:
Svipmynd
frá
Strikinu
fyrir
framan
verslun
Kauf-
manns
sem er
stærsti
útsölu-
staður Ála-
fossvara í
Danmörku.
Inni í
verslun-
inniskoða
ferðamenn
varninginn.
Að neðan
er hr.
Jelsdorf
ásamt
fulltrúa
verslunar-
innar.
navia og deild frá sama fyrir-
tæki í flughöfninni í Kastrup.
Jelsdorf er heildsali, og kaup-
ir vöruna beint frá Álaf0!ssi.
Lager fyrirtækisins er á heimili
þeirra hjóna, gömlum bóndabæ
í nágrenni Kaupmannahafnar.
Þar hafa þau fasta útstillingu í
gömlu útihúsi fyrir viðskipta-
vini sína, og kalla „Strik-
gárden“. Flutt hefur verið inn
á danskan markað í 6—7 ár á
þennan hátt. Varan hefur tekið
nokkrum stakkaskiptum og
verið aðlöguð hinum danska
markaði sem segja má að sé
hinn fyrsti í Evrópu, er tekur
„vel við sér“ hvað þessa vöru
snertir. Háþróuð tískuvara hef-
ur ekki reynst vera það, sem
mest söluvon er í, heldur sport-
fatnaður ótengdur árlegum
sveiflum. Innflytjandinn selur
nú Álafoss prjónavörur um alla
Danmörku, og nemur kaupverð
frá Álafossi í ár u.þ.b. 60 millj-
ónum ísl. króna.
FV 12 1976
77