Frjáls verslun - 01.12.1976, Síða 90
AUGLYSING
Steinavör hf.:
Hjarta- og Odelon prjónagarn
í öllum regnbogans litum
De danske kampgarnspinder-
ier A/S er eitt stærsta fyrir-
tæki á Norðurlöndum í fram-
Ieiðslu prjónagarns, en hjá fyr-
irtækinu er framleitt hið
þekkta hjartagarn og odelon
garn í öllum regnbogans litum.
Framleiðslan fer fram í Odense,
en Steinavör hf. Hamarshúsinu
við Tryggvagötu, sem stofnað
var árið 1958 hefur umboð fyrir
danska fyrirtækið hér.
Hjartagarnið er handprjóna-
garn og framleitt sem ullar-
garn, bómullargarn og úr gervi-
efnum í fjölmörgum gerðum og
sverleikum. Undanfarið hefur
mo'hair fleur hjartagarn verið
mjög vinsælt, en 'það er bæði
fyrir handprjón og vélprjón og
er til í ýmsum sverleikum.
Steinavör hefur einmig flutt
inn „Jutland“ herra og barna-
sokka frá sokkaverksmiðjunni
A/S Fyens strþmpefabrik, og
Tusnelda kvensokka og kven-
sokkabuxur í öllum tískulitum
frá danska fyrirtækinu Hjþr-
ring strþmpefabrik.
De danske kampgarnspinder-
ier átti 50 ára starfsafmæli á
þessu ári, en fyrirtæki þetta
var upphaflega stofnað sem
fjölskyldufyrirtæki, en er nú
hlutafélag. Forseti íslands, Dr.
Kristján Eldjárn heimsótti m.a.
þetta danska fyrirtæki í síðustu
opinberu heimsókn sinni til
Danmerkur.
Hjarta- og odelon garnið er
selt í flestöllum kaupstöðum
og kauptúnum á landinu.
Auk þess sem Steinavör hf.
flytur inn danskar vörur flytur
fyrirtækið út grásleppuhrogn
til Danmerkur. Á síðasta ári
seldi það grásleppuhrogn fyrir
u.þ.b. 60 milljónir króna.
radiomidun
Talstöðvar
S.P. Radio A/S í Álaborg,
sem er mjög þekkt fyrirtæki í
Danmörku framleiðir hinar
þekktu Sailor talstöðvar bæði
örbylgjustöðvar og SSB tal-
stöðvar í mörgum gerðum.
Radíomiðun hf. Grandagarði 9,
Reykjavík hefur flutt inn þess-
ar talstöðvar og selt um 12—14
ára skeið.
Sailor talstöðvar hafa verið
settar í meginhluta þeirra fiski-
skipa. sem smíðuð hafa verið
hér á landi, og auk þess verða
þær settar í þá 4 skuttogara,
sem nú er verið að smíða í Pól-
landi fyrir íslendinga.
Talstöðvarnar eru fáanlegar í
mörgum gerðum og styrkleik-
um. Nú um áramótin kemur á
markaðinn ný 400 watta tal-
stöð, Sailor T 126, sem er end-
urbætt framleiðsla og full-
í fiskiskipaflotann
komnari frá gerðinni Sailor T
122. Talstöðvar þessar eru í
notkun í skipum víða um heim
og hafa verið mjög þekktar fyr-
ir gæði og gott verð.
Radíomiðun hf. sér um vara-
hluti og þjónustu fyrir talstöðv-
arnar.
90
FV 12 1976