Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1977, Page 17

Frjáls verslun - 01.07.1977, Page 17
Bandaríkjaforseti óttast það greinilega, að víðtæk notk- un á plútóníum leiði til frek- ari útbreiðslu kjarnorkuvopna. Að mati evrópskra leiðtoga eru varnaðarorð hans yfirdrifin. í einkaviðræðum hafa sumir þessir aðilar sakað forsetann um að reyna að hægja á fram- förum á þessu sviði í Evrópu vegna þess að Bandaríkin hafi dregizt aftur úr. * # Anægðir með Carter A hinn bóginn eru þeir hæst- ánægðir með ákvörðun C^rters forseta um að fresta áformum Bandaríkjamanna um endur- nýtingu orkugjafa og fram- leiðslu á nýjum kjarnaofnum til útflutnings. Þeir sjá nú gull- ið tækifæri fyrir Frakkland, Bretland og Vestur-Þýskaland til að selja sérfræðikunnáttu sína og þjónustu um allan heim án samkeppni við bandaríska framleiðendur. En viðhorfin byggjast ekki þannig á samkeppnisviðhorf- um milli Evrópu og Bandaríkj- Kort úr U.S. News sem sýnir hclstu staði er koma við sögu í greininni. anna einum saman. Flestir þjóðaleiðtogar á meginlandinu telja kjarnorkuna eina úrræð- ið til að tryggja sjálfstæði álf- unnar í orkumálum. Leonard Williams, forstjóri orkumáladeildar Efnahags- bandalags Evrópu lét hafa þetta eftir sér: „í Bandaríkjunum kann mönnum að virðast sem þeir hafi nokkra valkosti. Við í Evr- ópu teljum okkur ekki eiga annarra kosta völ en virkja kjarnorkuna". Af þessum sökum setur kjarnorkan nú æ meir áberandi blæ á efnahagsmál Evrópu- landa. Það er verið að reisa kjarnorkuver í Belgíu, Svíþjóð, Hollandi, Ítalíu, Sviss, Búlgar- íu, Austur-Þýzkalandi, Tékkó- slóvakíu og á Spáni. Þar að auki hefur þróunin í Frakk- Vestur-Þýzkaland er í fimmta sæti á lista yfir þau lönd í heiminum sem nota mesta kjarnorku, á eftir Bandaríkj- unum, Japan, Sovétríkjunum og Bretlandi. Fýrir fjórum ár- um gerðu Þjóðverjar áætlun um að skjótast upp í 2. sæti. Þá miðuðu þýzkir skipuleggjendur við að 1985 væru 35 kjarnorku- ver tekin til starfa og fram- leiddu 50 þús. megavött af raf- magni, sem nægja ætti til að sjá 25 milljón manns fyrir nægri raforku. Þjóðverjar stefna að þessu marki og ná sennilega öðru sætinu í árslok en gangurinn hefur verið mun hægari en menn áttu von á. Efnahagskreppan. ákvarðanir dómstóla og ein sterkasta mót- mæiaalda áratugarins eru þess valdandi að nú er markmiðið 25 kjarnorkuver með 30 þús. megavatta framleiðslu og sumir tefia jnfnvel bá áætlun byggj- ast á mikilli bjartsýni. Andmæl- endur kjarnorkuvæðingar lögðu í vor undir sig aðalbyggingar- svæðin fyrir ný kjarnorkuver í V.-Þýzkalandi og lögðu megin- áhersluna á tvö dauðsföll, sem rekja mátti til geislunar í kjarn- orkuverum. Ennfremur hefur dómstóll úrskurðað, að fram- landi, Vestur-Þýzkalandi og Bretlandi komizt langt fram úr því marki, að viðkomandi lönd séu aðeins kjarnorkuveldi í orði kveðnu. Frakkar og Bret- ar stefna að því að verða elds- neytissalar fyrir kjarnorkuver um heim allan og endurvinna úrgangsefni að auki. Þjóðverj- ar og Frakkar eru helstu út- flytjendur kjarnakljúfa í Evr- ópu og ógna nú veldi banda- rískra framleiðenda á þessu sviði. Með heimsóknum til við- komandi landa er hægt að fræð- ast örlítið nánar um árangur þeirra á sviði kjarnorkunotkun- ar, — vandamál og möguleika. kvæmdum við kjarnorkuver í Brockdorf nærri Hamborg skuli frestað þar til fyrir liggi skýr stefna um meðferð úrgangs- efna. Stjórnin í Bonn hefur stöðvað leyfisveitingar vegna nýrra framkvæmda þar til nið- urstaða liggi fyrir í máli þessu. Er þar með loku fyrir það skot- ið að kjarnorkuvæðing stórauk- ist í Þýskalandi? — Nei, segir Wolf J. Schmidt- Kuster, forstöðumaður orku- rannsókna í vísindamálaráðu- neytinu í Bonn. Hann telur að tafir vegna málaferla verði senn úr sögunni en til bráða- birgða muni sala á kjarnakljúf- um til annarra landa fjármagna kjarnorkuiðnaðinn heima fyrir. Nú þegar hafa Þjóðverjar selt kjarnakljúfa til írlands, Brasil- íu. Sviss, Austurríkis, Hollands og Spánar en þetta eru allt markaðir, þar sem bandarísk fvrirtæki höfðu verið að leita hófanna um sölu. # Varúðarráðstöfun Til að draga úr líkunum á hryðjuverkastarfsemi í sam- bandi við plútóníumvinnsluna hafa Þjóðverjar farið þá lcið V.-Þýzkaland: Markið sett hátt, vandamál mikil FV 7 1977 17

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.