Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1977, Page 27

Frjáls verslun - 01.07.1977, Page 27
f Ráðstöfun eigna í lifanda lífi — í lifanda lífi hefur arfleif- andi fullan ráðstöfunarrétt yfir eignum sínum. Sé samningur- inn uppfylltur meðan viðkom- andi eru á lífi, getur arfleifandi, selt eða gefið allar eigur sínar. Þannig getur hann gefið einum erfingjanna stórgjafir, ef hann vill, þó það skerði arf hinna. Skilyrði þess að lífgjöf sé bindandi er að hún sé afhent í lifanda lífi gefanda. eða að ljóst sé að gefandinn hafi ætl- ast til þess að gjöfin kæmi til efnda að honum lifandi, enda þótt reyndin verði önnur. Dánargjöf er gjafaloforð, sem gefið er á dánarbeði, eða að ekki er ætlast til þess að það komi til framkvæmda fyrr en að gefandanum látnum. Um dánargjafir gilda sömu form- regiur og skyldur og um erfða- skrár. Það að maður geti í lifanda lífi gefið eigur sínar að vild, á að fullu um séreignirnar. Ráð- stöfunarréttur hjúskapareignar er hins vegar takmarkaður með lögum um réttindi og skyldur hjóna frá 1923. Hvoru hjóna er skylt að fara svo með hjúskap- areign sína, að hinu verði ekki til tjóns vegna óhæfilegra at- hafna þess. Þannig er öðru hjóna óheimilt að afhenda eða veðsetja, úr hjúskapareign sinni fasteign, sem fjölskyldan býr í, eða notuð er við atvinnurekst- ur hins eða beggja, búshluti eða atvinnutæki, án samþykkis hins. Hafi annað hjóna gert slíkan samning, án áskilins samþykkis getur hitt fengið samningnum hrundið með dómi og krafist slita á fjárfélagi. Sé annað hjóna fallið frá og hitt situr í óskiptu búi, hef- ur það í lifanda lífi eignarráð á fjármunum búsins. En lang- lífari maki getur ekki gefið ó- hæfilega verðmætar gjafir, miðað við efni búsins, án sam- þykkis erfingja. Hafi það gerst, getur erfingi fengið gjöfinni hrundið og krafist skiptingar búsins. Erfingi getur krafist skipta, ef maki rýrir efni bús- ins með óhæfilegri fjárstjórn, og geta erfingjar krafist endur- gjalds út af því af búshluta maka. Maka er skylt að skipta með sér og erfingja, sem verð- ur fjárráða og krefst skipting- ai- sér til handa. Fjárráða erf- ingi getur krafist skipta sér til handa með eins árs fyrirvara. Þannig er sá, sem situr í ó- skiptu búi, mjög bundinn í ráð- stöfunum sínum á eignum bús- ins. # Hjúskapareign — Samkvæmt lögum um réttindi og skyldur hjóna verða þær eignir, sem hjónin eiga við giftinguna eða eignast síðar, hjúskapareign (hvors um sig), sé það ekki séreign samkvæmt kaupmála. eða gjöf eða arfur, sem slík skilyrði hafa fylgt, eða eitthvað sem kemur i stað sér- eignar. Hvort hjóna ræður hjúskap- areign sinni (þ.e. því sem það hefur flutt í búið) með þeim takmörkunum, sem áður eru nefndar. Það er hins vegar þeg- ar fjárfélagi hjóna lýkur, til dæmis með skilnaði eða dauða, að áhrif fjárfélagsins koma fram með fullum styrk. Eftir- lifandi maki á skilyrðislausa kröfu á helmingi af félagsbúi hjónanna, það er samanlögðum hjúskapareignum, án þess að nokkru máli skipti hvort hjón- anna hefur flutt eignirnar í búið. Þessi helmingur bætist við þann arf,sem kemur í hlut makans samkvæmt erfðalögun- um. Sé um að ræða niðja arf- láta á lífi, fær maki eins og áð- ur segir, V3 hluta af búshluta hins látna, eða þannig % hluta búsins. Séu engir niðjar á lífi, en foreldrar hins látna, fær maki hins vegar % hluta bús- hluta hins, eða alls 5/6 hluta búsins. Sé slíkum erfingjum ekki til að dreifa, erfir það langlífara allan hluta hins, auk þess helmings, sem það á fyrir. Eftir lát annars hjóna, sem hafa búið saman við fjárfélag, á hitt rétt á að sitja í óskiptu búi með ófjárráða niðjum beggja, með þeim undantekn- ingum, sem áður er getið. Hjón- um er einnig mögulegt að á- kveða með kaupmála, að við lát annars þeirra verði ákveðn- ar séi’eignir að hjúskapareign, og verði þar með hluti af ó- skiptu búi. Þegar eftirlifandi maki situr í óskiptu búi, er uppgjöri við aðra erfingja frestað, og ekki reiknast erfðafjárskattur af bú- inu. Sá se msitur í óskiptu búi hefur, eins og áður er sagt, eignarráð á fjármunum búsins. Hann getur selt eignir búsins, svo framarlega sem hann fær fullt verð fyrir, og hann getur rýrt eignir búsins, sé það nauð- synlegt til þess að viðkomandi þurfi ekki að líða skort. En sé bruðlað með eignir búsins, geta aðrir erfingjar krafist skipta búsins, og bóta fyrir. Gifti maki sig aftur, fellur nið- ur heimild til setu í óskiptu búi. Hins vegar getur maki, sem situr í óskiptu búi, kraf- ist skipta hvenær sem er. # Séreign — Með kaupmála, sem gerð- ur er á undan hjúskap, eða meðan hjúskapur stendur, geta aðilar ákveðið, að munir, sem annað hjóna á eða kann að eignast og annars yrðu hjú- skapareign, skuli verða séreign þess. Kaupmáli verður að vera skriflegur, og það þarf að skrá- setja hann í kaupmálabók hjá fógeta. í kaupmála má einnig ákveða að séreign skuli verða hjúskapareign, ef hjónabandinu lýkur við dauða. Arfleifandi getur ákveðið með erfðaskrá, þó um skyldu- arf sé að ræða. að arfur skuli verða séreign. Lífsábyrgð, líf- eyris- eða aðra framfærslu- tryggingu þarf þó ekki að stað- festa með kaupmála, til þess að hún verði séreign viðkomandi. Við skipti á séreignum arf- leifanda fær eftirlifandi maki einungis sinn hluta samkvæmt erfðalögum, en ekki helming áður, eins og þegar um hjú- skapareign er að ræða. Um sér- eign, sem samkvæmt ákvæðum kaupmála á að hlíta reglum um hjúskapareign að öðru hjóna látnu, gilda þó sömu reglur og um hverja aðra hjú- skapareign. Erfðafjárskattur- inn er stighækkandi, og verður því lægri í heildina ef dreifing- FV 7 1977 27

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.