Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1977, Page 55

Frjáls verslun - 01.07.1977, Page 55
Hitaveitulagnir í götu á Akureyri. Um áramót verða 20% húsa með hitaveitu. sagði Helgi. — Ég er sannfærð- ur um að þessi hitaveita á eft- ir að spara Akureyringum drjúgar upphæðir í framtíðinni, sem annars hefðu farið til olíu- kaupa. Að vísu er stofnkostnað- ur við framkvæmdir sem þessar alltaf mikill en innan fárra ára verður hitaveitukostnaðurinn aðeins brot af kostnaði við að hita hús með olíu. Ég giska þar á 30—40% af olíukostnaði. Margt mætti segja um hita- veituna til viðbótar því sem hér á undan er komið, en þetta verður látið nægja að sinni. Helgi var síðan spurður um aðrar framkvæmdir á vegum bæjarins. Hann nefndi þá fyrst miklar viðbyggingar við Fjórð- ungssjúkrahúsið á Akureyri. Það eru Aðalgeir og Viðar h.f. sefn eru verktakar við þær fr;\mkvæmdir og á þessu ári verður unnið fyrir um 150 milljónir króna. I nýju bygg- ingunni verða m.a. slysavarð- stofa, skurðstofur, röntgendeild og starfsmannaaðstaða og margt fleira. Þá sagði Helgi að því miður hefði ríkið staðið sig mjög slælega í fjármagnsöflun til þessa verks og fengi Fjórð- ungssjúkrahúsið litlu meiri fyr- irgreiðslu en venjuleg heilsu- gæslustöð úti á landi. Þætti forráðamönnum Akureyrarbæj- ar þetta súrt í brotið, sérstak- lega þegar það væri haft í huga að Fjórðungssjúkrahúsið á Ak- ureyri er þjónustuaðili fyrir mjög stórt svæði og er löngu sprungið utan af starfsemi sinni. NÝTT ÍÞRÓTTAHÚS Að lokum minntist Helgi á svæðissíþróttahúsið, sem verið er að byrja á. íþróttahús hefur lengi verið draumur Akureyr- inga, enda hefur aðstaða til íþróttaiðkana þar verið mjög slæm í mörg ár. Verður íþrótta- hús þetta byggt á Sundlaugar- túninu, inni í miðju skólahverfi bæjarins og er gert ráð fyrir að það verði fullbúið eftir 4—5 ár. Heildarflatarmál hússins er tæplega 5000 fermetrar en rúmmetrafjöldi er 24.430. Á húsið að geta rúmað alls um 1400 manns en á venjulegum kappleikjum um 800 manns. Þetta verður löglegt hús til landsleikja. Auk þess sem það verður notað til íþróttakennslu og keppni er gert ráð fyrir margs konar fé- lagsstarfsemi í því. Má þar nefna tónleikahald, málverka- sýningar og ýmsa aðra starf- semi sem bæjarbúar hafa ver- ið á hrakhólum með til þessa. STOFIMAIMIR, FÉLÖG VERZLUN ARJtÁÐ ÍSLANDS er allsherjarfélagsskapur kaupsýslumanna og fyrir- tækja. Tilgangur þess er að vinna að sameiginlegum hagsmunum þeirra, að styðja að jafnvægi og vexti efnahagslífsins og efla frjálsa verzlun og frjálst framtak. Verzlunarráð íslands, Laufásvegi 36, Reýkjavík. Sími 11555. Skrifstofan er að Hagamel 4, sími 26850. Verzlunarmannafélag Reykjavík. © KAUPMANNASAMTÖK ÍSLANDS Marargötu 2. Símar 19390-15841. FÉLAG ÍSLENZKRA STÓRKAUPMANNA er hagsmunafélag stórkaupmanna innflytjenda og umboðssala. FÉLAG ÍSLENZKRA STÓRKAUPMANNA TJABNARGÖTU 14 -- REYKJAVlK — SÍMl 10650. FV 7 1977 55

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.