Frjáls verslun - 01.07.1977, Page 59
Kaupfélag Eyfirðinga:
Launagreiðslur félagsins
og fyrirtækja þess námu
1,2 milljörðum 1976
Fastráðnir starfsmenn 737 talsins
Um langt árabil hefur Kaupfélag Eyfirðinga verið langstærsti launagreiðandinn við Eyjafjörð.
Á sl. ári námu launagreiðslur félagsins og fyrirtækja þess 1.2 milljörðum og höfðu aukist frá árinu
áður ium 38%. Fastráðnir starfsmenn voru 737, auk allra þeirra vikukaupsmanna, sem vinna að
staðaldri hjá félaginu bæði á Akureyri og hjá útibúum félagsins, einkum við fiskvinnslustöðvarn-
ar á Dalvík og í Hrísey. Mun vera óhætt að gera ráð fyrir að talsvert á annað þúsund lausavinnu-
fólks hafi verið á launaskrá hjá félaginu um lengri eða skemmri tíma sl. ár.
í hinni nýju verslun KEA við Ilrísalund en þar er m.a. kaffitería.
En þó umfang félagsins sé
orðið þetta mikið, er langt í frá
að numið hafi verið staðar.
Stöðugt er unnið að nýjung og
aukningu í starfi KEA. Frjáls
verslun hafði nýlega tal af Arn-
grími Bjarnasyni hjá KEA til
þess að fræðast um hvað helst
væri nýtt í starfseminni. Hann
sagði að þess væri skemmst að
minnast að nýlega hefði verið
tekin í notkun ný stórverslun
KEA við Hrísalund á Akureyri.
ÞJÓNAR NÝJU
HVERFUNUM
Þessari verslun væri ætlað
það hlutverk að þjóna nýju
hverfunum efst í bænum, en
það hefði þegar sýnt sig að það
væru ekki aðeins íbúar úr því
hverfi sem skiptu við verslun-
ina heldur kæmi þangað fólk
alls stað.ar að úr bænum.
í nýju búðinni eru margar
deildir á tveimur hæðum. Á
fyrstu hæðinni eru fatadeild,
búsáhaldadeild og húsgagna- og
leikfangadeildir auk þess sem
versluninni Örkinni hans Nóa
er leigð aðstaða undir hús-
gagnaverslun. Á annarri hæð er
matvöruverslun og kaffitería.
KAFFITERÍA í
VERSLUNINNI
Arngrímur sagði að þetta
væri fyrsta verslunin í bænum,
sem starfrækti kaffiteríu á
þennan hátt og virtist það taka
nokkurn tíma fyrir viðskipta-
vinina að átta sig á þessari nýj-
ung. En nú væru vinsældir
kaffiteríunnar að aukast og
fólk farið að gefa sér tíma til
að tylla sér niður þegar það
væri að sinna verslunarerind-
um. I kjörbúðinni við Hrísar-
lund vinna 12 manns auk af-
leysingafólks. Er þarna um að
ræða 12. kjörbúðina, sem versl-
ar með matvörur á vegum KEA
á Akureyri.
Á sl. ári voru fjárfestingar
KEA meiri en nokkru sinni fyrr
i sögu félagsins, eða rúmlega
520 milljónir króna. Af einstök-
um fjárfestingum fór mest til
nýju mjólkurstöðvarinnar eða
rúmlega 220 milljónir króna,
en í nýju verslunina við Hrísa-
lund fóru 112,6 milljónir króna.
Arngrímur var spurður eftir
því hvað framkvæmdum við
FV 7 1977
59