Frjáls verslun - 01.07.1977, Side 65
Flugfélag \orðurlands
Fjórar flugvélar og
ein væntanleg
Geta þá flutt samtals 42 farþega í einu
Hótel KEA. í Súlnabergi er
hægt að fá 3 mismunandi heim-
ilisrétti, auk mun fjölbreyttari
sérrétta frá grillinu en áður.
FYRSTI ÁFANGI
Framkvæmdir þessar eru
skilgreindar sem fyrsti áfangi
í heildarendurbyggingu Hótels
KEA og stækkunar. Kostnað-
urinn við þetta var um 26 millj-
ónir. f öðrum áfanga er gert ráð
fyrir breytingum og stækkun
á anddyri og gestamóttöku á 2.
hæð, setustofu hótelgesta og fl.
í fyrrverandi húsnæði Stjörnu-
apóteks. í þriðja áfanga eru fyr-
irhugaðar breytingar á veit-
ingasölum á 3. hæð í 15 gisti-
herbergi, öll með anddyri og
baði og fullkomnum búnaði, og
í fjórða áfanga verða breyting-
ar á vínstúku og fleiru í 9 gisti-
herbergi öll með anddyri og
baði. í fimmta áfanga verða
gerðar breytingar á 1. hæð, þar
sem nú er starfrækt brauðgerð
KEA. Á að koma þar fyrir að-
alinngangi hótelsins, fata-
geymslu og snyrtingum fyrir
samkomusali. Á annarri hæð,
sem einnig er núna undir
brauðgerðinni, á að koma fyrir
samkomusölum, danssölum og
vínstúku. f sjötta og síðasta á-
fanga á að stækka hótelið til
vesturs og hækka vesturálmu
þess, Það er Teiknistofa Sam-
bandsins sem hefur unnið teikn-
ingar að þessum framkvæmd-
um og samkvæmt kostnaðar-
áætlun, sem gerð var í lok árs
var heildarkostnaðurinn við
þessar breytingar og endurbæt-
ur áætlaður 270 miiljónir
króna.
FRAMHALD
AÐKALLANDI
Að sögn Arngríms Bjarna-
sonar aðalfulltrúa hjá KEA á
Akureyri er ekki ákveðið hve-
nær ráðist verður í áfanga nr.
II en það mun ráðast af því
hvernig gengur að útvega láns-
fé til verksins. E-n að hans sögn
er það orðið mjög aðkallandi
að hægt verði að ráðast í þessa
áfanga einn af öðrum með sem
stystum hléum á milli.
Fyrir tveimur árum var
stofnað á Akureyri fyrirtækið
Flugfélag Norðurlands h.f. Það
voru nokkrir ungir og bjartsýn-
ir menn, sem stóðu að stofnun
þess og er elsti starfsmaðurinn
aðeins 33 ára gamall.
Þrátt fyrir hrakspár margra
hefur félaginu vegnað vel og á
nú fjórar flugvélar, og er að fá
eina til viðbótar um þessar
mundir. Nýja vélin er af Piper
Navaho Chieftain-gerð og er 10
sæta vél. Með henni getur Flug-
félag Norðurlands þá tekið sam-
tals 42 farþega í sæti í einu í
vélum sínum.
MIKIÐ UM
GRÆNLANDSFLUG
Frjáls verslun hafði tal af
Sigurði Davíðssyni hjá Flugfé-
lagi Norðurlands. Hann sagði
að félagið hefði nú reglulegt á-
ætlunarflug til Egilsstaða,
Vopnafjarðar, Þórshafnar,
Raufarhafnar, Kópaskers, Húsa-
víkur, Grimseyjar og Isafjarð-
ar. Auk þess flygju vélar þeirra
í leiguflugi um allt land og þar
að auki til útlanda ef þannig
stæði á. Hefði t.d. verið mikið
um Grænlandsflug hjá þeim að
undanförnu, væri þetta verk-
efni fyrir dönsku ríkisstjórn-
ina.
Á síðastliðnu ári hafa starfs-
menn fyrirtækisins lagt mikla
vinnu í byggingu viðgerðarflug-
skýlis á Akureyrarflugvelli.
Þessu verki er nú lokið og hafa
þeir nú skapað sér aðstöðu til
að gera við allar sínar vélar
þar. Sagði Sigurður að með
skýli þessu hefði Flugfélag
Norðurlands skapað sér full-
komnustu viðgerðaraðstöðu hér-
lendis meðal litlu flugfélag-
anna.
Fyrirsvarsmenn Norðurflugs við eina af flugvélum félagsins.
FV 7 1977
65