Frjáls verslun - 01.07.1977, Qupperneq 75
verið með þéttbýlinu og stöðum
eins og Hvolsvelli og Grímsey,
sem þær heimsóttu. Var það vel
til fundið af þessum tandur-
hreinu meyjum, skrúbbuðum
og stroknum.
í næsta húsi við Sesar er
stundaður annar angi af menn
ingarstarfsemi, þ.e. prentlistin
hjá Steindórsprenti. Þar fyrir
innan er svo Bader-umboðið og
aðsetur hjólbarðaumboðsins
Barðans, sem er hin eina pen-
ingalega máttarstoð Alþýðu-
flokksins um þessar mundir, ef
marka má Vilmund. Einhverjir
myndu kannski halda að
gúmmítékkar væru gefnir út á
svona stað, en því trúum við
ekki að óreyndu og vitum að
Emanúel Morthens rekur sína
dekkjasölu og viðgerðarverk-
stæði af miklum myndarskap.
Inni á opna svæðinu, sem við
nefndum áðan stendur ein
bygging, mikil umfangs. Það er
Armúlaskóli, sem tók við af
Gagnfræðaskóla verknáms en
er nú almennur frarphaldsskóli.
LEIFAR FYRRI TÍMA
Fyrir innan Barðann er eitt
af óleyfishúsunum svonefndu,
sem þetta hverfi samanstóð af
fyrr á árum. Reykjavíkurborg
hefur lengi átt í samningum við
íbúana og reynt að finna heppi-
legar lausnir á húsnæðismálum
þeirra. Þessi hús hverfa nú óð-
um og enn standa aðeins fá
þeirra eftir og minna á þá tíð,
þegar húsnæðismál Reykvík-
inga voru með öðrum hætti en
nú og fólk dreif sig til að
Snyrtileg
bygging í
Ármúla 11,
þar sem
Þór hf. er
til húsa.
byggja eitthvert afdrep þó á ó-
skipulögðu svæði væri og án
leyfis borgaryfirvalda.
Næst verður á vegi okkar
mjög snyrtilegt hús Þórs h.f.,
en í sýningargluggum þar má
greina svo ólíka hluti sem
vasareiknivél, tölvuúr, Evin-
rude-utanborðsmótora og Ford-
dráttarvél.
Nú höldum við okkur aftur
hægra megin á götunni og kom-
um að Ármúla 16 en þar er fyr-
irtækið Þ. Þorgrímsson & Co.
til húsa og býður viðskiptavin-
um spónaplötur, sólbekki, ein-
angrunarefni eða gólfdúka fyr-
ir menn í byggingarhugleiðing-
um. Þeir og aðrir sem lengra
eru komnir, líta svo gjarnan
við í næsta húsi, þar sem Ossur
og Oddur í Byggingarvörum
eru reiðubúnir að leysa úr
hvers manns vanda, hvort sem
hann vantar skrúfu (enga útúr-
snúninga!), statív fyrir klósett-
rúlluna eða skrá til að læsa vel
að sér.
FYRIRFERÐARMIKIL
ÚTGÁFUSTARFSEMI
Yfir Byggingarvörum eru
síðan aðalstöðvar eins af fyrir-
ferðarmeiri útgáfufyrirtækjum
landsins, Frjáls framtaks, í nýj-
um og smekklegum húsakynn-
um. Þar ræður ríkjum Jóhann
Briem og stjórnar útgáfu
Frjálsrar verzlunar, Sjávar-
frétta, íþróttablaðsins, Iðnaðar-
blaðsins og uppsláttarbókarinn-
ar Islenzk fyrirtæki. En þar
sem maður hefur fyrir sið að
ræða ekki innanhússmál opin-
berlega verður ekki farið
lengra út í þessa sálma.
SAMFELLD HÚSARÖÐ
Þarna þéttist Ármúlabyggð-
in hægra megin og á löngum
köflum er húsaröðin samfelld.
Fyrir innan hús Byggingarvara
og Frjáls framtaks kemur fyr-
irtækið Álímingar, sem verzlar
m.a. með bremsuborða og vara-
hluti í bremsukerfi bifreiða.
Sommer umboðið er á hæðinni
Ármúli 16
og 18.
Hægra
megin er
fyrirtækið
Þ. Þor-
grímsson.
Frjálst
framtak er
á efri liæð
en verzlun-
in Bygg-
ingavörur
á þeirri
neðri.
FV 7 1977
75