Frjáls verslun - 01.07.1977, Page 86
HEIMILIÐ 77:
llm 200 syningaraðilar með
um 150 sýningarbása
— Fimmta stórsýningin á vegum Kaupstefnunnar býður upp á
ýmsar nýjungar og forvitnileg atriði
Sýningar Kaupstefnunnar hafa dregið til sín þriðja hvem lands-
mann. Hér eru forsetahjónin að skoða sýninguna ásamt Bjama
Ólafssyni, framkvæmdastjóra sýningarinnar.
Sýningin Heimilið ’77 var
opnuð í Laugardalshöll í
Keykjavík föstudaginn 26. ág-
úst s.l. með athöfn. Heimilið
’77 er fimmta st'órsýningin á
vegum Kaupstefnunnar hf.
Reykjavík. Sýndar eru allar
vörur sem bústofn og rekstur
heimilis varða, fjölbreytt úr-
val innlent og erlent, s.s. allar
tegundir húsgagna og innrétt-
inga, heimilistæki, ljósabúnað-
ur, búsáhöld, gluggatjöld, teppi.
sjónvarps-, hljómlistar- og út-
varpstæki, málningarvörur,
fatnaður, listmunir, og skraut-
vörur svo eitthvað sé nefnt.
Sýningar á vegum Kaupstefn-
unnar hf. Reykjavík hafa dreg
ið til sin 55—75 þúsund gesti,
nánast þvi þriðja hvern lands-
mann. Búist er við milli 70-80
þúsund gestum á sýninguna
nú. Sýningarsvæðið er Laug-
ardalshöllinn í Reykjavík og
stórt útisvæði. Sýningarbásar
eru í anddyri, aðalsal og neðri-
sal, auk þess sem rekinn er
veitingasalur meðan á sýning-
unni stendur. Á útisvæði er sýn-
ing á bílum, sumarhúsum og
hjólhýsum. Og á öðru útisvæði
kynnir Landssamband hjálpar-
sveita skáta starfsemi sína.
Alls eru milli 130—140 bás-
ar á sýningunni, og sýningar-
aðilar eru um 200.
Landsmenn hafa sýnt mikinn
áhuga á vörusýningum. Þátt-
taka í slíkum sýningum gefur
beint samband við geysimikinn
fjölda fólks og hefur náð mikl-
um kynningar og söluárangri.
Reynslan hefur svnt að þátttaka
í slíkri vörusýningu og mark-
viss notkun dreifiefnis hefur
langvarandi áhrif.
f bæklingi, sem Kaupstefnan
hf. Reykjavík hefur gefið út
um þátttöku í vörusýningum
Vpm,ir frm’clegt fram um tæki-
færi þeirra, sem taka þátt í slík-
um sýningum. Þar kemur m.a.
fram, að flestum finnst þeir
ekki hafa fengið fulla hugmynd
um eðli og gæði hluta og efna
fyrr en þeir hafa handleikið þá.
Aðdráttarafl vörusýninga er
m.a. fólgið í því að gestir vita
af þeim möguleika. Reynslan
hefur sýnt, að jafnan er fjöl-
mennt í sýningarbásum þeirra,
sem bjóða gestum gott tækifæri,
til að taka þátt í einhverju.
Það vekur líka áhuga
gesta þegar sýndar eru lit-
skyggnur eða starfið í sýning-
arbásunum er gert lifandi með
því að leika á hljóðfæri sem
til sýnis eru, taka þátt í get-
raunum, prjóna á prjónavél,
mála með málningu o.s.frv.
Slíkt á ekki síður við á þessari
sýningu nú.
Á sýningunni er starfsfólk,
sem leiðbeinir gestum, veitir
upplýsingar um verð, efni og
annað það er vekur áhuga gesta
í sýningarbásunum. Einnig er
ýmis konar dreifiefni til staðar
s.s. myndskreyttir vöru- og
verðlistar og sýnishorn. gestum
taka þátt í getraunum, happ-
drættum o gkönnunum.
Heimilið ’77 býður upp á
ýmsar nýjungar og forvitnileg
atriði í sambandi við vörur og
þjónustu.
Fyrirtækið Kaupstefnan hf.
Reykjavík var stofnað árið
1955 af Hauki Björnssyni, stór-
kaupmanni. Fyrirtækið var
endurskipulagt árið 1968, og þá
var jafnframt hafinn undirbún-
ingur að sýningunni „Heimilið
veröld innan veggja“, sem hald-
in var vorið 1970, og tókst sér-
staklega vel.
Eftir það hefur Kaupstefnan
hf. ráðist í enn stórfelldari verk-
efni m.a. alþjóðlega vörusýn-
ingu 1971 og aðra slíka 1975.
en hana skoðuðu um 70 þús-
und manns. Kaupstefnan hefur
því fengið mikla reynslu i að
halda slikar sýningar.
86
FV 7 1977