Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1988, Síða 26

Frjáls verslun - 01.10.1988, Síða 26
STJÓRNUN SVO VIRÐIST SEM KONUR ÞURFIAÐ VERA HELMINGI KLÁRARIEN KARLAR — SEGIR MARÍA E. INGVADÓTTIR umarkaðinn og gjalda þá þess for- skots sem karlmenn hafa óneitanlega sem geta óskiptir helgað sig starfinu. Ein skýringin sem nefnd hefur verið er sú að konur geta síður unnið yfir- vinnu á þeirri forsendu að þær þurfi að sinna heimili og bömum. Hvað sem segja má um þessar skýringar er ljóst að hlutur kvenna í ábyrgðar- og sjórnunarstöðum er lítill — svo lítill að greinarhöfundur átti í hinu mesta basli með að fá viðmælendur í þessa umfjöllun. Og þá erum við komin að enn einni skýringunni á því hversu fáar konur gegna þessum stöðum. Þær virðast einfaldlega ekki vilja vera í sviðsljósinu. Því til staðfestingar skal þess getið að meirihluti þeirra kvenna í sjórnunarstöðum, sem Fijáls verslun hafði tal af, vildi ekki koma í viðtal og báru þær því gjaman við að þær kærðu sig ekki um slíka umfjöllun. Með öðrum orðum; konur eru mun tregari til þess að koma fram í fjölmiðlum en karlar í sambærilegum störfum. Þetta undirstrikar e.t.v. niðurstöður þeirrar könnunar sem Dr. Sigrún Stefánsdóttir fjölmiðlaf- ræðingur gerði á hlut kvenna í frétta- viðtölum á fréttastofu Sjónvarpsins þar sem konur voru í miklum minni- hluta. Gæti skýringin ekki einmitt verið sú að konur skorast undan þeirri ábyrgð að koma fram fyrir hönd þess fyrirtækis sem þær starfa hjá? Hér mun ekki verða lagt mat á það hvers vegna konur eru svo lítt áber- andi í ábyrgðar- og stjórnunarstöðum sem raun ber vitni. Þess í stað fékk Frjáls verslun þrjár konur, sem allar gegna ábyrgðarstöðum, til þess að skýra frá reynslu sinni og viðhorfum til þessara mála. Hver er skoðun þeirra á rýrum hlut kvenna í ábyrgð- ar- og stjórnunarstöðum? Hvaða vandamál, ef einhver eru, skapast af því að kona er í hlutverki stjómanda? Stjóma konur öðruvísi en karlar? Hvemig hefur þeim verið tekið, ann- ars vegar af samfélaginnu og hins vegar af undirmönnum? Eru þær teknar eins alvarlega og karlmenn? Hér á eftir fara viðtöl við þær Maríu E. Ingvadóttur fjármálastjóra Út- flutningsráðs íslands, Oddrúnu Krist- jánsdóttur framkvæmdastjóra Liðs- auka hf. og Hildi Petersen fram- kvæmdastjóra Hans Petersen hf. Undanfarið hálft annað ár hef- ur María E. Ingvadóttir gegnt starfi fjármálastjóra hjá Útflutn- ingsráði Islands. Hún útskrifað- ist sem viðskiptafræðingur frá H.í. árið 1983 og starfaði fyrst um sinn eftir nám hjá hagdeild Verðlagsstofnunar. Þá starfaði hún um þriggja ára skeið sem deildarstjóri á hagdeild Sam- bandsins en tók síðan við stöðu fjármálastjóra Útflutningsráðs Islands fyrir hálfu öðru ári. Þess utan hef- ur María verið virkur þátt- takandi í stjórnmál- um og sat m.a. á þingi um þriggja vikna skeið sem varaþingmaður Sjálf- stæðisflokksins á síðasta ári. Hún var auk þess fjögur ár í stjórn Hvatar, félags sjálfstæð- iskvenna, þar af þrjú ár sem for- maður. Hún segist reyndar enn vera virk í stjórnmálastarfi Sjálfstæðisflokksins þrátt fyrir að starfið taki stóran hluta af tíma hennar. Aðspurð um starf fjármálastjóra segist María m.a. hafa umsjón með bókhaldi og fjárreiðum Útflutnings- ráðsins, skrifstofustjóm og starfs- mannahaldi. Útflutningsráð íslands byggist á samtökum útflytjenda þar sem stærstu hagsmunaaðilamir eru fyrirtæki í sjávarútvegi og iðnaði. Út- flutningsráð heyrir að hluta til undir utanríkisráðuneytið og nýtur auk þess lítillega ríkisstyrkja. María vildi taka það skýrt fram að ráðið væri ekki ríkisstofnun, eins og rnargir virðast halda, heldur hagsmunasamtök einkaaðila í útflutningi. „Hlutverk ráðsins er að efla út- flutning íslendinga og er það m.a. gert með því að kynna Island og íslenskar vörur er- lendis, veita út- flutningsfyrir- tækjum að- stoð við upplýsingaöfl- un, um marka- ðina og aðstoð við markaðssetn- ingu,“ útskýrir hún. „Hér er skipulögð þátttaka í sýningum erlend- is og liggur mikill undirbúningur þar að baki — enda oft á tíðum allt upp í 20 íslensk fyrirtæki sem sýna sameigin- lega,“ bætir hún við og segir að þar sem fjármálin skipi alltaf stóran sess í hverju verkefni, komi það inn á henn- ar verksvið að fylgjast með, allt frá undirbúningi og þar til viðkomandi verkefni hafi verið gert upp endan- lega. Hennar hlutverk er jafnframt að vera í góðu sambandi við útflutnings- hópa og viðskiptaskrifstofur erlendis og hún getur þess að nú séu fjórir útflutningshópar starfandi — þar af Þeir eiga það stundum til að segja „elskan“ eða „vinan“ sem fer afskaplega mikið í taugarnar á mér. 26
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.