Frjáls verslun - 01.10.1988, Blaðsíða 79
aði þyrfti að vera háttað. Og í þessu
sambandi segir Ragnar: E C does it!,
en EC er enska skammstöfunin á því
sem á íslensku er EB — Evrópu-
bandalagið.
Ragnar er einnig að kanna mögu-
leika á nýtingu jarðvarma til iðnaðar
og mun sitja í starfshópi sem skipaður
verður bráðlega af Félagi íslenskra
iðnrekenda. Auk þess vinnur hann að
athugun á því hvort hægt sé að nýta
veiðiheimildir í bandarískri fiskveiði-
lögsögu, þannig að Ragnar er vart
aðgerðarlaus. Hann er varaformaður
í stjórn Útflutningsráðs, fulltrúi iðn-
rekenda í Evrópusamtökum málm-
framleiðenda, í stjórn Verzlunarráðs-
ins, Hlutabréfasjóðsins hf., Lands-
nefndar Alþjóðaverzlunarráðsins og
síðast en ekki síst stjórnarformaður
ÍSAL.
Ragnar virðist hafa gaman af því að
ræða um tengsl íslendinga við aðrar
Evrópuþjóðir og í framhaldi af því var
hann spurður hvort hann langaði til að
starfa fyrir íslands hönd á erlendri
grund. „Nei, ég hef ekki í hyggju að
flytjast til Evrópu en ég á hins vegar
von á því að ég eigi mörg erindi þang-
að á næstunni. Eldri sonur minn og
tengdadóttir starfa sem verkfræðing-
ar í Kaupmannahöfn og eldri dóttir
mín, sem er jarðfræðingur að mennt,
hefur í hyggju að flytjast frá Banda-
ríkjunum til Englands. Yngri sonur
minn stríðir mömmu sinni stundum á
því að hann vilji fara í framhaldsnám til
Sovétríkjanna en að öllu gamni
slepptu ætlar hann til útlanda til frek-
ara náms. Hann líkur námi í bygginga-
verkfræði frá Háskóla íslands á vori
komanda. Yngri dóttir mín er í grunn-
skóla og ennþá er ekki ljóst hvaða
framhaldsnám hún velur sér. Hún
hefur þó lýst áhuga sínum á að verða
bankastjóri.“
Ragnar var að lokum spurður að
því hvort hann hefði sótt um fleiri
störf en stöðu forstjóra Bifreiðaskoð-
unar íslands hf. „Nei, en ég mun at-
huga það sem býðst og verð vonandi
kominn með næg verkefni áður en
margar vikur líða. Reyndar hafa mér
boðist mörg afar áhugaverð verkefni
nú síðustu daga,“ sagði hann að lok-
um.
JÓN SIGURÐSSON:
SKÚTAN RÚMAR
AÐEINS EINN
SKIPSTJÓRA
Á þessum ólgutímum í íslensku
efnahagslífi skipast skjótt veður í
lofti. Jón Sigurðsson, fýrrum fram-
kvæmdastjóriMiklagarðs, vart.d. á
kafi í að aðstoða alifugla- og eggja-
bændur við að koma upp sameigin-
legri sölu- og dreifingarmiðstöð, er
Frjáls verslun hitti hann að máli á
dögunum. En skömmu síðar voru
alifugla- og eggjabændur ekki inni í
Jón Sigurðsson: „Nú er ég hættur og maðurinn sem bauð mér vinnu
fyrir 6 árum hefur tekið við fyrirtækinu sem ég byggði upp. En við
hittumst oft í Sundhöllinni á morgnana og keppum í lauginni."
79