Frjáls verslun - 01.10.1988, Blaðsíða 38
REKSTUR
Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða:
FÆRRI FERÐIR
OG HAGKVÆMARI
FARGJÖLD!
Sigðurður Helgason segist ekki geta
gefið upp neinar tölur varðandi afkomu
félagsins á yfirstandandi ári en hann segir
ljóst að afkoma Flugleiða sé mun betri árið
1988 en hún var árið þar á undan.
„Rekstur Flugleiða gekk vel á árinu.
Arið 1987 var rekstrartap Flugleiða um
225 milljónir króna en miðað við afkomuna
fyrstu m'u til tíu mánuði ársins er ljóst að
afkoman verður mun betri en enn er ekki
ljóst hvorum megin núllsins við lendum. Á
árinu seldum við einnig nokkrar flugvélar
en hagnaðurinn af sölu þeirra er fyrir utan
þessar tölur, þetta er eingöngu rekstrar-
hagnaður."
Að sögn Sigurðar var rekstrarafkoma
Flugleiða betri vegna breytinga á rekstri
fyrirtækisins. „Við drógum úr flugi yfir
Norður-Atlantshafið en fjölguðuðum að
sama skapi flugferðum til Evrópu. Elds-
neytisverð á árinu varð einnig örlítið lægra
en árið 1987. En mikið munaði um að við
tókum upp nýja stefnu við bókun farþega,
einkum á flugleiðunum yfir Norður-Atl-
antshafið. Við lögðum mun minna upp úr
hópferðum og öðrum farþegum sem ferð-
uðust á lægsta fargjaldi. Áherslan var með
öðrum orðum lögð á færri ferðir og hærri
fargjöld."
Sigurður segir einnig að Flugleiðir hafi
beitt miklu aðhaldi í rekstrinum og forðast
óarðbærar fjárfestingar. „Um tíma stóð til
að Flugleiðir færu út í viðbyggingu við
Hótel Esju en þar sem góð rekstraraf-
koma hótelsins var ekki tryggð féllum við
frá þeim áformum."
Sigurður sagðist líta björtum augum á
framtíðina, „því auk bættrar rekstraraf-
komu er fjárhagsstaða fyrirtækisins góð,
bæði hvað varðar Iausafjárstöðu og eigin-
fjárstöðu. Á næsta ári hefst endumýjun
flugflotans og nýju vélamar, Boeing 737/
400, em mun sparneytnari en vélarnar
sem Flugleiðir eru nú með í notkun, elds-
neytissparnaðurinn verður um 45-50%
miðað við hvert sæti í vélunum. Auk þessa
er viðhaldskostnaður við nýju vélarnar
mun minni. Nýju vélunum fylgir því aukin
hagræðing." Sigurður segir að 10% af
kaupverði nýju vélanna hafi þegar verið
greidd, „afgangurinn er á mjög hagstæð-
um lánum til 17 ára. Lánin eru einungis
með veðum í vélunum sjálfum. Ríkið þarf
engin afskipti að hafa af þessum lánum.“
En þrátt fyrir sæmilega afkomu Flug-
leiða og góðar horfur á næstu árum segist
Sigurður óttast það að kreppan í þjóðfélag-
inu komi til með að vera í nokkur misseri
til viðbótar, „þótt ég sé nú ósköp lítill
spámaður í þessum efnum.“
Sigurbergur Sveinsson,
kaupmaður í Fjarðarkaupum:
ENGAR
SKÝJABORGIR
Þrátt fyrir samdrátt og gjaldþrot í versl-
uninni hefur Sigurbergi Sveinssyni, kaup-
manni í Fjarðarkaupum, tekist að halda
velli og reyndar segir hann það varla rétt
að tala um kreppu í þjóðfélaginu.
Sigurbergur staðgreiðir allar sfnar vör-
ur og það hefúr vakið athygli á tímum
skuldasöfnunar og vanskila. „Það er lítil
stjórnkænska fólgin í því að gefa upp for-
múluna fyrir góðum rekstri. En reynslan
hefur sýnt mér að fáir trúa sannleikanum
og þess vegna er engin ástæða til að leyna
því að lykillinn að velgengninni er sá að
sníða sér stakk eftir vexti. Eg er jarðbund-
inn, allavega í annan fótinn og byggi því
engar skýjaborgir."
Sigurbergur segir að gjaldþrot síðustu
mánaða segi vissulega sína sögu. „Fram-
leiðnin í þjóðfélaginu hefur minnkað og það
hefur áhrif á launakjör almennings sem
aftur hefur áhrif á verslunina og að því leyti
er barlómurinn skiljanlegur." En það er
meira en slæm staða heimilanna sem hef-
ur áhrif á stöður verslunarinnar. „Um 50%
af sölu matvöruverslana eru landbúnaðar-
afurðir og á þær er mjög takmörkuð álagn-
ing. Á mjólk er til dæmis 10% álagning og
hún mætir engan veginn þeim kostnaði
sem fylgir mjólkursölunni."
Sigurbergur segir það liggja í augum
uppi að verslunina í iandinu verði að end-
urskipuleggja og draga ef til vill úr þjón-
ustu sem þótti eða þykir sjálfsögð en við-
skiptavinirnir hafa ekki greitt sérstaklega
fyrir. I því sambandi nefndi hann íburðar-
mikið húsnæði og beina þjónustu, svo sem
„pokadýrin" svokölluðu „og umfram allt
þarf að draga úr offjárfestingu, það þýðir
lítið að eyða allt upp í helmingi meira en
mönnum tekst að afla. Það segir sig
sjálft."
Hvað varðar afkomu verslunarinnar á
næsta ári segist Sigurbergur ekki óttast
um eigin rekstur „því fólk þarf allaf að
borða." En hann segir að árið 1989 eigi
/■ . N
Stjómendur
fyrirtælga
athugið
Við tökum að okkur bókhald fyrir allar stærðir af
fyrirtækjum. Fyrsta flokks tölvuvinnsla IBM 36.
Söluskattsuppgjör, mánaðaruppgjör.
Mikil reynsla tryggir örugg og traust vinnubrögð.
BÓKHALDSÞJÓNUSTA
ARINIAR
Nýbýlaveg 4, Kópavogi.
Sími 45800, á kvöldin í síma 672741.
V _______________/