Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1988, Page 39

Frjáls verslun - 01.10.1988, Page 39
ugglaust eftir að vera mörgum þungt í skauti og að töluverð uppstokkun komi til með að eiga sér stað í versluninni „þangað til menn átta sig á því að færast ekki of mikið í fang. Menn verða að forðast dýrt lánsfé og vinna sem mest með eigið fé!“ Sigurbergur segir að tal um kreppu sé bæði afstætt og óréttmætt. „íslendingar hafa það ágætt og flestir koma til með að hafa það gott þótt þeir fækki utanlands- ferðum sínum og óþarfa fjárfestingum. Menn verða að læra það að lifa á eigin launum. Það er ekki hægt að tala um kreppu í þjóðfélagi þar sem fólk lifir um efni fram!“ Lýður Friðjónsson, fjármála- og skrifstofustjóri Vífilfells: Afkoma Flugleiða verður mun betri árið 1988 en hún var árið áður. AUKIN GOS- DRYKKJA- NEYSLA Þrátt fyrir erfiðleika í verslun og veit- mgarekstri og aukna samkeppni á gos- drykkjamarkaðinum, segir Lýður Frið- jónsson að Vífilfell muni ná þeim mark- miðum sem það setti sér fyrir árið 1988. Lýður líkir ástandinu árið 1988 við kreppurnar í kringum árin 1967 og 1975 »en á þeim árum dróst sala gosdrykkja verulega saman. Það sama á ekki við um yfirstandandi kreppu enda eru gosdrykk- irnir núna hlutfallslega ódýrari en áður. Kreppan hefur einna helst birst okkur í því að erfiðara er að innheimta hjá söluaðilum okkar vegna erfiðleika þeirra." Rekstrarhorfumar á næsta ári eru ágætar að sögn Lýðs. Hann segir að þrátt fyrir aukna samkeppni haldi Vífilfell sínum hlut á markaðinum. „Enda hefur gos- drykkjaneysla aukist á undanförnum ár- um.“ Lýður gerir ráð fyrir því að kreppunni í íslenska efnahagslífinu ljúki ekki fyrr en í fyrsta lagi árið 1990. „Fyrir því liggja eink- um þrjár ástæður. Fyrir það fyrsta voru fyrirtækin verr undir kreppuna búin núna en fyrir síðustu kreppur og eiginfjárstaða þeiira mun verri. Einnig er samdrátturinn núna mun almennari en á fyrri kreppu- skeiðum og háir raunvextir hafa aukið enn meira á erfiðleika fyrirtækjanna." Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Sambandsins: STÓR- KOSTLEGT GENGISTAP „Eins og flestum ætti að vera orðið ljóst var árið 1988 afleitt ár fyrir Sambandið,“ sagði Guðjón B. Ólafsson forstjóri SÍS. Guðjón vildi engu spá um hver staða fyrir- tækisins yrði um árslok en nefndi að fyrstu níu mánuði ársins hefði tap Sambandsins verði yfir 700 milljónir króna. “Stærsti hluti hallans, eða 80-90%, er kominn til vegna gengistaps á árinu.“ Guðjón segir að Sambandið hafi „því miður tekið of dýr lán á árinu, bæði innlend og erlend. Síðan komu þrjár gengisleið- réttingar á skömmum tíma sem höfðu áhrif á rekstur Sambandsins. Ef gengið hefði hins vegar verið látið þróast á eðli- legan hátt myndi gengistapið jafnast á Iengri tíma og hefði orðið mun viðráðan- legra. En hvað er til ráða þegar um þetta mikið Piskvinnslan hefur búið við stórfellt rekstrartap á þessu ári eins og felstum ætti að vera kunnugt. 39

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.