Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1988, Qupperneq 48

Frjáls verslun - 01.10.1988, Qupperneq 48
IÐNAÐUR notkun á innlendri orkulind, vatns- orkunnni, í stað innfluttrar olíu og bensíns þannig að afleiðingin yrði gjaldeyrissparnaður. Þetta kann að reynast mikilvægt þegar fram líða stundir og ganga fer á olíuforða jarðar eftir fáeina áratugi að talið er. Það er heldur ekki tilviljun að mörg olíufyrir- tæki erlendis verja nú fjármunum í tilraunir með rafbfla og þá einkum þróun nýrra rafgeyma. TILRAUNIR HÁSKÓLANS MEÐ RAFBÍL Árið 1979 voru hafnar í Há- skóla íslands til- raunir með notk- un rafbfls hér á landi. Bfllinn, sem er af gerð- inni Subaru, var upphaflega með bensínvél en var breytt í rafbfl. Kannað var notagildi bflsins sem annars fjöl- skyldubfls við hlið bensínbfls til lengri ferða. Bflnum var ekið 10 þúsund km í bæjarakstri á einu ári og varð niður- staðan sú að notagildi bflsins er svipað og annarra bfla í bæjarakstri. Aðeins reyndist hægt að aka 50 til 100 km á milli þess sem hlaða þurfti rafgeym- ana. Geymar þessa bfls vógu 435 kg og voru um 40% af eiginþyngd bflsins. Hið takmarkaða aksturssvið á hverri hleðslu rýrir nokkuð notagildi rafbfla en er þó að líkindum nægilegt í innan- bæjarakstri þar sem venjulegum bfl- um er ekki ekið meira en 30 til 60 km á degi hverjum. Nóttin er síðan notuð til að hlaða geymana að nýju. Háskól- inn hefur lokið tilraunum sínum með bflinn og er hann nú í eigu Rafgeyma- verksmiðjunnar Póla hf. og hefur verið notaður þar með góðum ár- angri. RAFBÍLAR ERLENDIS Vel þekkt er notkun rafdrifinna gaffallyftara, golfbfla og dráttarbfla á flugvöllum. Rafdrifnir dráttar- eða flutningabflar eru einnig notaðir víða innanhúss í verksmiðjum, sjúkrahús- um og annars staðar þar sem óæski- legt eða óhugsandi er að nota bens- índrifin ökutæki vegna mengunar og hávaða. Sé hægt að skipta um raf- geyma og setja þá fullhlaðna í stað hinna sem tómir eru er hægt að stór- auka notagildi rafbfla enda eru dæmi þess að mjólkurbflar, sendibflar og jafnvel strætisvagnar séu drifnir með rafmagni. í Bretlandi eru nú um 60 þúsund rafknúin ökutæki í notkun. Víða eru nú gerðar tilraunir með nýjar gerðir rafbfla. í Finnlandi hafa rafveitur, olíufyrirtæki og ýmis fyrir- tæki í iðnaði tekið höndum saman við að þróa rafbfl sem ætlunin er að verði bæði hagkvæmur og gagnlegur til einkanota. Bfllinn verður tveggja manna, gerður úr plasti og mun geta ekið 50 til 60 km á hleðslunni. Há- markshraði verður um 60 km á klst. Bíllinn verður með venjulegum raf- geymum til að byrja með en hönnuð- irnir hafa von um að innan tíðar komi fram betri geymar sem munu þá gera bflinn vel samkeppnisfæran. NÝR OG SPENNANDIBÍLL í DANMÖRKU Ahugi Dana á orkusparnaði og um- hverfisvemd hefur lengi verið mikill og fyrir stuttu var í Danmörku hafin fjöldaframleiðsla á rafbfl sem hefur vakið þar mikla athygli. Bfllinn er aðeins fyrir einn mann og er ekið á þremur hjólum. Bflnum er lýst sem eins konar yfirbyggðu mótorhjóli á þremur hjólum. Rafgeymarnir eru þrír venjulegir blýgeymar, samtals 36 Volt og 90 Amperstundir. Aka má 70 km á hverri hleðslu og hámarkshraði er 40 km á klst. Framleiðendur hugsa sér bflinn sem ákjósanlegan í bæjar- asktri, sendiferðum, innkaupsferðum o.s.frv. Aksturseiginleikar em góðir og bfllinn er svo fyrirferðarlítill í umferðinni að hann jafnast næstum á við mótorhjól. Yfir- byggingin gefur bflnum auk þess mikla yfirburði miðað við mó- torhjólin. Ef bfll- inn nær hylli al- mennings verð- ur hægt að draga verulega úr mengun í mið- borg Kaup- mannahafnar og gera hana hljóð- látari. REKSTRARKOSTNAÐUR RAFBÍLA Helstu kostnaðarliðir við rafbíl eru rafmagnsverðið, viðhaldskostnaður rafgeyma og innkaupsverð bflsins. í tilraun Háskólans reyndist orku- notkun vera að jafnaði 0,6 kWh á hvern ekinn kflómetra. Ef reiknað er með 10 þús. km akstri á ári og miðað við næturtaxta Rafmangsveitu Reykjavíkur (1,57 kr/kWh) þá kostar rafmagnið 0,94 kr fyrir hvem ekinn km eða um 9400,00 kr á ári. Sam- svarandi fyrir smábfl sem eyðir 8 lítr- um af bensíni á hverja 100 km er bens- ínkostnaður 2,90 kr á km (miðað við blýlaust bensín á 36,60 kr lítrinn) eða um 29.000,00 kr á ári. Mismunurinn er um 20.000,00 krónur rafbflnum í hag. En þar með er ekki öll sagan sögð. Líklegt er að af rafbílum verði innheimtur þungaskattur lflít og af dísilbflum og þar með hyrfi trúlega sparnaðurinn sem fyrr var nefndur. Þessi rafbíll er nú í reynsluakstri í Svíþjóð. Eitt af „vandamálunum" með bílinn er hversu hljóðlátur hann er, næstum því hljóðlaus. Bíllinn gæti þess vegna reynst gangandi vegfarendum hættulegur að sögn sænska umferðar- ráðsins. 48
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.