Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1988, Qupperneq 64

Frjáls verslun - 01.10.1988, Qupperneq 64
ERLENT bætt. Trump— „skutlufélagið“ á að skera sig úr. Svipaðan leik lék hann í vor er hann keypti hið sögufræga Plaza hótel, sem snýr að Central Park garðinum. Jafiivel keppinautar hans í hótel- rekstri hafa hrifist af því á hve skömmum tfina honum hefur tekist að gerbreyta hótelrekstrinum til hins betra. Hann gerbreytti anddyri hót- elsins, setti reglur um samkvæmis- klæðnað í matsalnum, endurbætti gluggaumbúnað í allri byggingunni og stórbætti þjónustuna á öllum sviðum. Menn eru sammála um, að þama hafi ekki orðið breytingar heldur bylting. Þetta er í hnotskum formúla fyrir ríkidæmi þessa rúmlega fertuga manns. ERFÐIHÆFILEIKA FÖÐUR SÍNS Donald Trump er fjórði í röð fimm bama Freds og Mary Trump. Fred var sænskur en kom barnungur með foreldrum sínum til Bandaríkjanna. Hann komst vel áfram, auðgaðist að- allega á fasteignasölu, og komst ung- ur að árum í tölu milljónamæringa. Donald Trump segist hafa lært margt og mikið af föður sínum, ekki síst ákveðni í erfiðum viðskiptum, þá list að vekja áhuga fólks á væntanleg- um viðskiptum, og einnig dugnað og eljusemi. Kjörorð gamla mannsins var: „Hafðu þig að verki, ljúktu því og ljúktu því rétt“. Donald Trump lauk prófi frá Whar- ton verslunarskólanum, sem er deild í háskóla Pennsylvaníu, árið 1968. Hann hefur síðar sagt, að mikilvæg- asti lærdómur hans í skólanum hafi verið sá, að ofmeta ekki háskóla- menntun og menn með háskólapróf. Eftir námið gerðist hann rukkari hjá föður sínum — innheimti tekjur af fasteignum hans og öðlaðist um leið dýrmæta þekkingu og reynslu í fast- eignaviðskiptum. Árið 1975 hleypti hann heimdraganum og hóf sjálfstæð- an rekstur. Hann keypti Commodore hótelið nálægt Grand Central jám- brautastöðinni, veitti því „Trump- meðferðina" og opnaði það á ný 1980, endumýjað og glæsilegt undir nafninu Grand Hyatt. ALLT VERÐUR AÐ GULLI Næst byggði Trump turninn á Fimmta stræti, sem virðist aðeins byggður úr gleri og kopar. Verzlunar- og skrifstofuhúsnæði ásamt lúxus- íbúðum voru leigð þar út á áður óþekktu himinháu verði. Peningamir streymdu í fjárhirslur Trumps og hann keypti æ fleiri eignir og merkti þær Trump-veldinu. Þegar Trump mætti til blaða- mannafundar eftir undirskrift samn- inga um kaup á „skutludeild“ Eastern flugfélagsins var hann í skærgulri skyrtu með hálsbindi í sama lit. Hann gerir í því að vekja athygli á þennan hátt eða annan. Þegar hann endur- byggir hótel eða aðrar eignir eru end- urbæturnar ekkert hálfkák. Hann fann það snemma, að ríkmannlegar lífsvenjur hans voru besta auglýsingin fyrir eignir hans og fyrirtæki. Hann kann að berjast ekki síður en að semja. Donald Trump er kvæntur tékkn- eskri konu, sem Ivana heitir. Hún var áður mikil skíðakona og síðar fyrir- sæta. Þau eiga þrjú börn. Fjölskyldan býr ýmist í fjögurra milljóna dollara „Pent“ -húsi á sjávarströnd Green- wich í Connecticut eða í Mar-a-Lago, 118 herbergja höll á Palm Beach í Florida. Hann ferðast ýmist í eigin þyrlu eða á 87 metra langri snekkju. HARÐUR OG ÁKVEÐINN SAMNINGAMAÐUR Trump á tvö spilavíti og hótel í At- lanta City og fullvíst er talið að kaup hans á „skutludeild“ Eastern séu ekki síst ráðin til að stórauka og bæta möguleikana á flutningi fólks til þess- ara staða. Spilavíti hans hafa verið vettvangur fyrir mikilvæga kappleiki í hnefaleikum og um tíma velti Trump því fyrir sér, hvort hann ætti að ger- ast framkvæmdastjóri fyrir Mike Ty- son, heimsmeistara í hnefaleikum. Einu sinni átti hann fótboltaliðið New Jersey Generals. Á næsta ári ætlar hann að stofna til Tour de Trump hjól- reiðakeppninnar. Hún á að standa í viku ár hvert og er ætlað að verða keppinautur Tour de France, hjól- reiðakeppninnar frægu. Donald Trump vill eignast allt það sem er stærst og best — en þó aðeins ef verðið er viðunandi að hans dómi. Hann keypti t.d. Mar-a-Lago höllina í Florida fyrir 7 milljónir dollara, eftir að annar aðili hafði boðið 13.5 milljónir en gat svo ekki staðið við kaupin. Trump þykir oftast viðfelldinn en jafnframt kænn í viðskiptum. Menn sem hafa átt viðskipti við hann segja, HVAÐA EIGNIR TILHEYRA TRUMP? Meirihluti í Alexander’s Inc., deilda- skipt verslunarkeðja í New York borg. * „Skutludeild" Eastern flugfélagsins. * Grand Ilyatt hótelið í New York. * Plaza hótelið í New York. * Resorts Intemational, spilavíti í Atlan- tic City í New Jersey. * St. Moritz hótelið f New York. * Trump-kastalinn — hótel og spilavfti í Atlantic City í New Jersey. * TrumpPark — fjölbýlishúsíNew York. * Trurnp Plaza — 40 hæða fjölbýlishús í New York. * Tmmp Plaza á Palm Beach — fjölbýlis- hús í Florida. * Trump Plaza — hótel og spilavíti í Atl* antic Cíty f New Jersey. * Trump Tower — 68 hæða verslunar- skrifstofu- og íbúðahús í New York. * 78 ekm lóð við West Side á Manhattan þar sem Trump City átti að rísa. Plaza hótelið. Trump fékk fyrir 400 milljónir dollara. 64
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.