Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1988, Side 71

Frjáls verslun - 01.10.1988, Side 71
9. Eiríkur Briem: Hann var framkvæmdastjóri Landsvirkjunar í tæp tuttugu ár en lét af því starfi sök- um aldurs þann 1. maí 1983. Þar áður var hann Rafmagnsveitustjóri ríkis- ins. Hann er nú sestur í helgan stein. 10. Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson: Forstjóri Sölumiðstöðvar Hraðfrysti- húsanna til margra ára en lét af því starfi í árslok 1985. Síðan þá hefur hann ekki verið í föstu starfi. 11. Eysteinn Helgason: Fyrr- um forstjóri Iceland Seafood Cor- poration, dótturfyrirtækis Sambands íslenskra samvinnufélaga í Bandaríkj- unum. Hann lét af störfum vegna ágreinings við forstjóra Sambands- ins. Eysteinn hefur síðan unnið að ýmsum sérverkefnum en hefur nú verið ráðinn framkvæmdastjóri Plastprents hf. 12. Erlendur Einarsson: For- stjóri Sambands íslenskra samvinnu- félaga þar til í árslok 1986. Síðan hefur hann starfað í ýmsum stjómum og nefndum, var m.a. stjómarformaður Samvinnutrygginga til vorsins 1988 og stjómarformaður Samvinnubank- ans til ársins 1987. Hann er í eftir- litsnefnd Alþjóðasamvinnusambands- ins og í stjóm Þróunarstofnunar Norðurlanda. Hann á einnig sæti í stjórn Krabbameinsfélags Islands, Almenna bókafélagsins, landsnefndar Alþjóðaverzlunarráðsins, Landakots- spítala og Samtaka um byggingu tón- listarhúss. Auk þess sinnir hann nú sínum hugðarefnum og eyðir tölu- verðum tíma við tölvuna sína. 13. Erling Aspelund: Hann var framkvæmdastjóri hjá Flugleiðum en var færður til og varð framkvæmda- stjóri ferðarskrifstofunnar Úrvals ár- ið 1986. Því starfi gegndi hann í tæpt ár. Nokkru síðar gerðist hann fulltrúi forstjóra Sambandsins og gegnir því starfi nú. 14. Geir Magnússon: Aðstoðar- forstjóri hjá Iceland Seafood Corpor- ation en hætti því starfi um leið og Eysteinn Helgason hætti hjá fyrir- tækinu (sjá nr. 11). Hann býr nú í Bandaríkjunum en ekki er ljóst hvað hann hefur tekið sér fyrir hendur. 15. Halldór Guðbjarnarson: Bankastjóri Útvegsbankans þar til bankanum var breytt í Útvegsbank- ann hf. árið 1987. Hann hefur síðan unnið að ýmsum verkefnum fyrir Samvinnuhreyfinguna, m.a. við að koma á fót greiðslukorti samvinnu- hreyfingarinnar, Samkorti. 16. Haukur Björnsson: Hann var framkvæmdastjóri Félags ís- lenskra iðnrekenda, framkvæmda- stjóri Karnabæjar, framkvæmda- stjóri Trésmiðjunnar Víðis, sem varð gjaldþrota, og einnig var hann stjóm- arformaður Arnarflugs. Nú starfar hann hjá Rauða krossinum. vék t.d. mér og hinum framkvæmda- stjóra B.Ú.R. úr starfi til að koma sínum manni að. Ef þessi lögmál ættu að gilda hefði núverandi ríldsstjóm átt að segja upp ýmsum mönnum t.d. Markúsi Emi Antonssyni útvarps- stjóra. Eg hafði áhuga á sjávarútvegsmál- um og vildi halda áfram að starfa á þeirri braut. Eftir nokkra umhugsun ákvað ég að setja á stofn fiskútflutn- ingsfyrirtæki ásamt syni mínum. Og það varð úr. Fyrirtækið heitir ís- lenskur nýfiskur og við feðgarnir rek- um það saman. Við flytjum út ferskan fisk — bæði heilan og í flökum — til Bandaríkjanna og Evrópu. I stað funda með stjómmálamönnum og embættismönnum hafa komið fundir með kaupsýslumönnum víðs vegar um Evrópu. Og hér heirna fundir með skipstjórum og sjómönnum að ógleymdum skemmtilegum heim- sóknum á fiskmarkaðina hér síðustu misserin. Nú er ég sem sagt í mjög lífrænu starf. Þegar ljóst varð að framtíðaráætl- anir mínar hjáB.Ú.R. stóðust ekkiþá hvarflaði að mér að hefja aftur afskipti af pólitík en það er ekki auðvelt að snúa aftur hafi maður einu sinni horfið Björgvin Guðmundsson: „Ég hef haft gott af því að minnka spennuna — það er ekki hægt að vera í of mörgu í einu.“ af þeirri braut. Ég hef notið mín ágæt- lega við rekstur á mínu eigin fyrir- tæki. Mér var auðvitað ljóst, þegar ég ákvað að hætta stjórnmálaþátt- töku, að ég hyrfi úr hringiðunni og öllu því félagslífi sem fylgir störfum hjá stjómarráðinu og í pólitíldnni. — En hvemig hefur lagst í þig að hverfa úr sviðsljósinu? „Ég átta mig ekki alveg á því hvernig ég hef upplifað þessar breyt- ingar. En ég hef miklu meiri tíma fyrir fjölskyldu mína, ég les meira og fer oftar í ferðlög sem er vissulega af hinu góða. Ég hef haft gott af því að minnka spennuna — það er ekki hægt að vera í of mörgu í einu, a.m.k ekki til lengdar," sagði Björgvin. 71

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.