Frjáls verslun - 01.03.1995, Blaðsíða 29
Staðlar umhverfisstjórnunar:
STÓRKOSTLEGT
MARKAÐSTÆKI
— segir Guðjón Jónsson, deildarstjóri hjá
Iðntæknistofnun
jafnt matvælum sem almennum iðn-
aðarvörum. Góður vitnisburður
þeirra ýtir jafnframt undir komu enn
fleiri erlendra ferðamanna.
En fallið getur Kka verið nokkurt ef
umhverfisvernd er ekki raunverulega
á bak við merkið. Umpólun er hröð.
Imynda má sér að verið sé að mark-
aðssetja hreint kjöt. Síðan birtist
mynd í víðlesnu erlendu blaði af belju
fyrir utan fjós að sleikja gamlan raf-
geymi skammt frá einhverju gömlu
bflflaki. Eða að mynd birtist af
brennslu sorps í skurði við hliðina á
túninu þar sem beljurnar eru að bíta.
Mestu skiptir að það er að kvikna
ljós hjá mörgum stjórnendum ís-
lenskra fyrirtækja. Þegar eru nokkur
fyrirtæki farin að láta þessi mál til sín
taka af alvöru. Því miður eru þau enn
of fá. Vonandi verða hins vegar marg-
ar giftingar á næstu árum, mörg „kaþ-
ólsk hjónabönd“ fyrirtækja og um-
hverfis.
„Á undanförnum árum hafa ís-
lenskir stjómendur heyrt mikið um
gæðastaðla í ISO 9000 röðinni. Þeir
tryggja kaupendum að varan sé alltaf
eins, að hún breytist ekki á milli send-
inga. En í sumar koma fram á sjónar-
sviðið í Evrópu sérstakir staðlar um-
hverfisstjórnunar í ISO 14000 röð-
inni. Þeir eru ekki síður forvitnilegir.
Þeir munu tryggja að vara komi úr
viðurkenndu umhverfi, að fyrirtæki,
sem selur vöruna, uppfylli ákveðna
umhveríisvernd samkvæmt stöðlun-
um. Staðlar umhverfisstjórnunar
geta verið lífsspursmál fyrir íslensk
útflutningsfyrirtæki í framtíðinni og
einstaklega gott markaðstæki.
Samband staðla gæða og umhverf-
isstjórnunar verður örugglega náið í
framtíðinni. Gæðastaðlarnir hafa
blómstrað í viðskiptum í Evrópu á
undanförnum árum og fjöldi fyrir-
tækja í Evrópu, sem hefur tekið þá
upp, hefur margfaldast á síðustu ár-
um. Sömuleiðis hefur þeim snarfjölg-
að í Japan en Japanir ætluðu raunar
aldrei að taka þá upp þar sem þeir eiga
sinn fyrirtækjabrag sem tengdur er
Taktu þátt
í átaki
sem skilar
árangri
til framtíðar
GRÆÐUM
toii LANDIÐ MEÐ
29