Frjáls verslun - 01.03.1995, Síða 30
UMHVERFISMAL
UM KAUPANDA SEM GEKK ÚT. Tökum lítið dæmi um mikilvægi umhverfisstjórnunar. Ég heyrði af erlendum
rækjukaupanda sem kom til íslands fyrir nokkrum árum til að gera samninga um kaup á rækju. Þegar hann
kom í rækjuvinnsluna byrjaði hann á að leggjast á gólfið og taka handfylli af rækjuskel upp úr frárennslinu.
Viðbrögð hans voru þau að hann gekk út og sagðist ekki skipta við svona fyrirtæki.
gæðum. En hrein og klár sjónarmið
viðskipta hafa ýtt á Japani að taka
staðlana upp. A Islandi hefur þrónun-
in hins vegar verið fremur hæg.
Hjá íslenskum útflutningsfyrir-
tækjum, fiskvinnslufyrirtækjum, eru
fyrst og fremst gæðakerfi sem við
Islendingar höfum sjálfir byggt upp.
Þess vegna er hvatningin hér á landi
til að taka upp gæðastaðla í fram-
leiðsluiðnaði fremur lítil þar sem al-
menn iðnfyrirtæki flytja lítið út. Og á
innanlandsmarkaði biðja kaupendur
ekki mikið um þessa staðla.
En lítum betur á staðlana í
umhverfisstjórnun sem koma
fram á sjónarsviðið í sumar.
Þetta eru staðlar sem verið er
að þróa vegna þarfa iðnaðarins
í Evrópu. Núna er jafn mikill
áhugi á þessum stöðlum um-
hverfisstjórnunar og var á sín-
um tíma á gæðastöðlum.
Fyrsti umhverfisstaðallinn
kemur væntanlega út núna í
júni, ISO 14001, og verður
krosstengdur beint við ISO
9001, gæðastaðalinn. Við
stjórnun fyrirtækja verður
mjög auðvelt að fara á milli
þessara staðla og láta þá vinna
saman.
ÍSLENDINGAR MEÐ
LITLA SÉRSTÖÐU
íslendingar standa nú
frammi fyrir því að þeir hafa
litla sérstöðu og það er ævin-
lega hættulegt á markaði. Ef staðlar
umhverfisstjómunar ná á næstu 5 eða
10 árum að verða jafn vinsælir og
gæðastaðlarnir, og tilvísun í þá verð-
ur jafn almenn og í gæðastaðlana í
alþjóðlegum viðskiptum, hlýtur fisk-
iðnaðurinn að dragast inn í þessi mál,
taka upp staðla umhverfisstjórnunar.
Það gefur honum mikla möguleika á
markaðssetningu. Tökum lítið dæmi
um mikilvægi umhverfisstjórnunar.
Ég heyrði af erlendum rækjukaup-
anda sem kom til íslands fyrir nokkr-
um árum til að gera samninga um
kaup á rækju. Þegar hann kom í rækj-
uvinnsluna byrjaði hann á að leggjast á
gólfið og taka handfylli af rækjuskel
upp úr frárennslinu. Viðbrögð hans
voru þau að hann gekk út og sagðist
ekki skipta við svona fyrirtæki.
Ef framleiðendur eru með markaða
umhverfisstefnu og staðla umhverfis-
stjómunar þar sem skilgreint er ná-
kvæmlega hvemig úrgangur er með-
höndlaður; hvemig eigi að lágmarka
hann; að uppfylltar séu kröfur um lög
og reglur sem gilda á sviði umhverfis-
mála, þá vita erlendir kaupendur ná-
kvæmlega hvar þeir standa. Þeir
þurfa þá ekki að senda hingað menn til
að komast að því hvort þessum mál-
um sé fullnægt í fyrirtækjunum.
EKKIAÐ BÍÐA EFTIR
SKIPUN FRÁ ÚTLENDINGUM
Ef þessir staðlar umhverfisstjóm-
unar slá í gegn á erlendum mörkuð-
um, eins og gæðastaðlamir, verðum
við að tileinka okkur þá hér á landi.
Hinn alþjóðlegi markaður mun ein-
faldlega krefjast þeirra í framtíðinni. í
raun eigum við ekki að bíða eftir að
erlendi markaðurinn krefjist staðla
umhverfisstjómunar. Það á að líta á
staðlana sem markaðstækifæri og
hefjast þegar handa. Það er klént að
þurfa að bjarga málunum á síðustu
stundu, þegar markaðurinn segir
hingað og ekki lengra, og þurfa í
skyndi að uppfylla kröfur kaupenda
um umhverfisvemd.
Kaupendur framtíðarinnar munu
vilja fá að vita hvers konar vöm
þeir em að kaupa. Hvemig er
með hráefnið sem notað er í
hana? Er hún úr endumýjan-
legri auðlind? Er tekið tillit til
umhverfisvemdar í vinnsluferli
vörunnar? Hvað með eyðingu
vörunnar eftir notkun? Hvað
með umhverfismerkið á vör-
unni sem tryggir kaupendum að
upplýsingamar um vöruna séu
réttar - að þær séu ekki aðeins
eigin orð framleiðandans?
Þama bíður okkar gott mark-
aðstækifæri ef rétt er á málum
haldið. Það felst ekki síst íþví að
það umhverfi, sem við búum við
hér á landi, er hagstætt mat-
vælaframleiðslu. Við höfum
mjög lágan bakgrunnsstyrk
mengunarefna og höfum því alla
burði til að framleiða vörur sem
hafa mjög lágt innihald aðskota-
efna.
Til þess að þessi tækifæri
nýtist íslenskum fyrirtækjum verðum
við þó að gera okkur grein fyrir því að
við Islendingar búum í neysluþjóðfélagi
þar sem sóun er mjög mikil. Mengun,
sem stafar ekki síst af sóun, er því mikil
þegar við förum að skoða mengun út
ffá íTúaíjölda. Með því að innleiða nýja
stjómunarhætti í fyrirtæki - með því að
beita stöðlum umhverfisstjómunar -
má efla umhverfisvitund almennings
hér á landi. Þá eigum við bjarta framtíð
sem matvælaframleiðendur,” segir
Guðjón Jónsson.
Guðjón Jónsson, deildarstjóri umhverfis- og efna-
tæknideildar Iðntæknistofnunar: „Ef staðlar um-
hverfisstjómunar slá í gegn á erlendum mörkuð-
um, eins og gæðastaðlamir, verðum við að tileinka
okkur þá hér á landi. Hinn alþjóðlegi markaður mun
einfaldlega krefjast þeirra í framtíðinni.“
30